Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 88
Það má
kannski
segja að
skrautið
okkar sé
persónu-
legt og með
sögu.
Guðný Gunnars
Systurnar Guðný og Helga
Sigrún Gunnarsdætur
skreyta heimili sín fallega
fyrir jólin. Þær hafa ekki síst
gaman af því að nota jólatré
sem faðir þeirra hannaði og
smíðaði, til að gera umhverf-
ið enn skemmtilegra. Trén
er hægt að skreyta og nota á
fjölbreyttan hátt.
elin@frettabladid.is
Þær systur hittust heima hjá Helgu
til að hjálpast að við að skreyta.
Þeim er annt um umhverfið og
nota hluti sem endast eða hægt er
að endurnýta. Smátréð sem faðir
þeirra, Gunnar Valdimarsson,
smíðar, hefur vegna vinsælda
vaxið og er nú hægt að fá í mis-
munandi stærðum og útfærslum.
Sagan á bak við tréð er skondin því
hún kom óvænt. „Pabbi fékk beiðni
frá kunningjakonu árið 2012 um
að smíða jólaskreytingu í glugga.
Hann er mikill listasmiður og mjög
útsjónarsamur. Honum datt strax í
hug gömlu skandinavísku jólatrén.
Tréð sló rækilega í gegn og pant-
anir fóru að berast frá fleiri vinum,
kunningjum og fjölskyldunni.
Þetta vatt upp á sig því vinkonur
okkar fóru líka að panta tré og fólk
í kringum þær. Árið 2020 var ég í
fæðingarorlofi og okkur systrum
datt í hug að setja upp Instagram
og Facebook-síður undir nafninu
Smátré Gunnars. Satt að segja
urðum við hissa á þessum ótrú-
lega mikla áhuga því það rigndi
yfir okkur óskir um tré,“ útskýrir
Guðný, en faðir hennar er húsa-
smíðameistari og kennir fagið, en
gerir trén í frístundum. „Það er
eins og að hann hafi f leiri klukku-
stundir í sólarhringum en aðrir,“
segir Guðný.
Fengu jólaáhuga í Austurríki
Fyrir utan áhugamálið og fullt
starf hefur faðir þeirra hjálpað
systrunum að taka húsin þeirra í
gegn. Systurnar eru ekki í smíða-
vinnu en sjá um sölu trjánna. „Við
skiptum með okkur verkum eftir
því sem við höfum tíma. Hefð-
bundnu Smátrén hafa verið þau
vinsælustu en stóru trén sem eru
160 cm á hæð hafa verið að sækja
í sig veðrið að undanförnu. Í fyrra
prófuðum við að gera lítil tré sem er
til dæmis hægt að nota sem borð-
skreytingu og það hefur líka verið
mikil eftirspurn eftir þeim í ár.“
Guðný segir að þær systur
séu jólabörn og hafi gaman af
því að skreyta, sérstaklega með
hlutum sem þær hafa sankað að
sér í gegnum tíðina, til dæmis frá
Austurríki þar sem þær bjuggu
um tíma með foreldrum sínum.
„Austurríki er alveg sérstaklega
sjarmerandi um jólin. Við fórum
gjarnan á jólamarkaði og heilluð-
umst af öllu fallega jólaskrautinu og
stemningunni sem þar ríkti. Einnig
höfum við haldið í hefðina að senda
jólakort og í þeim kemur fram
annáll fjölskyldunnar það árið. Við
búum líka báðar til samverudagatal
fyrir fjölskylduna um hver jól og
nýtum Smátrén okkar að sjálfsögðu
sem slík.
Það má kannski segja að skrautið
okkar sé persónulegt og með
sögu,“ segir Guðný, sem starfar sem
mannauðssérfræðingur hjá Side-
kick Health og Helga er lífeinda-
fræðingur á Landspítalanum. Þær
eru báðar með fjölskyldur, Helga
með þrjú börn og Guðný með tvö.
Alls konar skreytingar
Guðný segir að það sé hægt að
skreyta og nýta Smátrén á ótrúlega
margvíslegan hátt. „Fyrst settum
við jólakúlur á þau og saumuðum
litla poka, svo trén hafa verið nýtt
sem jóladagatöl á heimilum okkar
systra. Síðan höfum við þróað þetta
áfram, sett greni, jólaljós, tréperlur,
Einfalt jólatré
sem gaman
er að skreyta
Systurnar
Guðný og Helga
skreyttu fallega
heimilið og
notuðu smátréð
sem uppistöðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Smátrén eru falleg á veisluborðinu og setja skemmtilegan svip. Stellið fékk Helga í brúðargjöf en hún gifti sig í ár.
Takið eftir
greninu fyrir
ofan borðið
sem setur jóla
legan svip á
umhverfið.
Hægt er að fá trén í mismunandi stærðum. Hér hafa þær systur pakkað inn
jólagjöfum á umhverfisvænan hátt.
Önnur gerð af smátré en þetta er
skreytt perlum. Fallegur aðventu
krans er fyrir framan. Systurnar nostra við skreytingarnar.
jafnvel blómaskreytingar og það
kemur mjög vel út. Einnig höfum
við stundum hengt jólakort á tréð
eða piparkökur. Börnin mín velja á
hverju ári eitt skraut á jólatréð sem
merkt er með upphafsstöfum og
ártali. Jólatréð verður skrautlegra
með hverju árinu.
Vinkonuhópurinn minn hittist
fyrstu aðventuhelgina og hver
skreytti sitt Smátré. Okkur finnst
mjög gaman að sjá hve fjölbreyttar
skreytingarnar eru hjá fólki og
okkur þykir mjög gaman að fá
sendar myndir af trjánum. Sumir
leita eftir innblæstri fyrir skreyt-
ingar hjá okkur systrum og aðrir
máta þau að sínum stíl og sumir
bæsa jafnvel trén. Það er allt leyfi-
legt,“ segir Guðný, en þær systur
ætla að vera með Smátré til sölu á
jólamarkaði í Heiðmörk um helgina
í fyrsta skipti. n
66 FRÉTTABLAÐIÐ 2. desember 2022JÓL 2022