Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 102
Guðmundur
Hilmarsson
gummih
@frettabladid.is
Hersir Freyr Albertsson
fékk óvæntan glaðning frá
dætrum sínum þremur á
dögunum, en þær buðu
honum á konfektnámskeið.
Hersir, ásamt dætrunum Signýju
og Ingimundu, sótti námskeiðið
hjá Halldóri Kristjáni Sigurðssyni,
bakara og konditor í Minigarð-
inum, en á því er farið í alla grunn-
þætti konfektgerðar.
„Það var feðradagurinn um
daginn og þær komu mér svona
skemmtilega á óvart. Þær vildu
endilega fara með karlinn á kon-
fektnámskeiðið. Elsa Ant-
heia, dóttir mín sem býr
í Svíþjóð, gat ekki verið
með okkur þótt glöð
vildi,“ segir Hersir.
„Þetta var tveggja og
hálfs tíma námskeið
þar sem við lærðum
að tempra súkkulaði,
fylla í mót og búa til fyllingu.
Þetta var alveg geggjað og ég er
strax orðinn heitur fyrir því að
fara aftur og læra meira. Ég mun
pottþétt föndra eitthvað við kon-
fektgerðina fyrir jólin. Ég er búinn
að kaupa mér fullt af mótum en á
eftir nota þau. Við erum að plana
Dæturnar
buðu í
konfektgerð
Hersir ásamt
dætrum sínum,
Ingimundu og
Signýju, sæl og
glöð eftir kon-
fektnámskeiðið.
MYNDIR/AÐSENDAR
Þeir eru girni-
legir, konfekt-
molarnir sem
Hersir bjó til.
að hafa konfektgerðarkvöld
fljótlega og nýta okkur
það sem við lærðum á
námskeiðinu, sem ég mæli
svo sannarlega með,“ segir
Hersir.
Hersir kann hvergi betur
við sig en í eldhúsinu, en hann
hefur ákaflega gaman
af því að baka og af
allri matargerð.
„Ég elska það að
baka og er alltaf
opinn fyrir ein-
hverju nýju. Við
ræddum það í fyrra
að það væri sniðugt að fara
á svona námskeið. Við vorum að
reyna að gúgla þetta sjálf með mis-
jöfnum árangri, en svo kom þetta
óvænta boð frá stelpunum mínum
og það var virkilega gaman og
gagnlegt. Nú held ég að það sé næst
á dagskrá að fara á námskeið fyrir
lengra komna og reyna fyrir sér
meira út í skrautið. Þetta var svona
grunnnámskeið til að koma sér af
stað. Ég held að Halldór sé búinn
að vera að kenna fólki konfektgerð
í um 25 ár og við feðginin vorum
afar ánægð.“
Þægilegt að kúpla sig frá
vinnunni
Nú í jólamánuðinum er Hersir
svo sannarlega í essinu
sínu, enda fær hann
meiri tíma til að brasa í
eldhúsinu og stússast
við eldamennsku og
bakstur.
„Ég er í stressvinnu
og í miklum látum og þá
finnst mér afskaplega þægi-
legt að kúpla mig frá vinnunni,
setja hrærivélina í gang og hita
bakarofninn. Í desember verður
gríðarleg stemning og mikil við-
vera í eldhúsinu þar sem ég mun
prófa mig áfram með ýmislegt
góðgæti,“ segir Hersir, sem starfar
við sölumennsku hjá Ó. Johnsen &
Kaaber/ISAM/SD
Hersir segist ekki vera einn í
matar- og bakstursgerðinni fyrir
jólin. „Konan mín er með mér á
fullu í þessu og við erum mjög góð
í að skipta verkum.“
Haldið þið í hefðirnar um jólin
hvað matinn varðar?
„Við erum alltaf með mjög
svipað. Þetta er hamborgarhrygg-
ur, kalkúnn og hangikjöt. Núna
er ég hins vegar að spá í að breyta
aðeins til og vera með
nautalund annan í
jólum. Ég á góða
vini og félaga
sem eru
kokkar og þeir eru alltaf
tilbúnir í að henda til
mín góðum ráðum
og láta mig prófa
hitt og þetta,“ segir
Hersir, sem veit fátt
skemmtilegra en að
skella deigi í form og
baka.
„Ég geri ansi mikið af því
að baka og oftar en ekki fæ ég
barnabörnin mín til taka þátt í
bakstrinum en þá hef ég þetta
einfalt, kaupi tilbúið deig, sker
það niður og baka. Fyrir jólin hef
ég haft það fyrir sið að baka alltaf
mömmukökur. Búa til kökur sem
mamma gerði, en þegar ég var
strákur át maður þær upp til agna.
Ég mun baka eina sort af þeim
fyrir jólin og svo auðvitað heima-
lagað brauð,“ segir Hersir.
Hersir segir að áhugi hans á
eldamennsku og bakstri hafi
verið lengi til staðar. „Ég hef eldað
og bakað í mörg ár og það hefur
bara aukist með árunum. Ég elska
að setja inn myndir af hinum
ýmsu réttum á Facebook og ég
veit um tvo félaga mína sem hata
mig fyrir það,“ segir Hersir og
hlær dátt. „Þeir eru alltaf að biðja
mig um hætta þessu en ég læt
það ekki eftir þeim. Mér finnst
það veita sálinni ró að elda og
baka og ég næ að kúpla mig frá
öllu á meðan. Samstarfsfólk
konunnar elskar mig hins
vegar því ég er stöðugt að
færa þeim einhverjar kræs-
ingar eftir sjálfan mig. Þau njóta
góð af þessu.“ n
Ég mun pottþétt
föndra eitthvað við
konfektgerðina fyrir
jólin. Ég er búinn að
kaupa mér fullt af
mótum og við erum að
plana að hafa konfekt-
gerðarkvöld fljótlega.
Hersir Freyr Albertsson
80 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022