Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 108
Lucinda Svava Friðbjörnsdóttir starfar sem
sjúkraliði á gjörgæslu í Fossvoginum og er að
eigin sögn mikið jólabarn. Fátt þykir henni
meira gefandi í aðdraganda jólanna en að
þræða nytjamarkaðina og finna nýjar leiðir
til að blása jólum í gamla hluti.
jme@frettabladid.is
„Ég hef alltaf verið jólabarn og hef það líklega frá
foreldrum mínum. Mamma er mikil jólastelpa eins og
ég. Hún var alltaf að dúllast fyrir jólin og pabbi að gera
og græja. En það var ólíkt því sem er nú, því skreyt-
ingarnar fóru mun seinna upp. Það liggur við að það
væri allt sett upp á Þorláksmessu og ekki degi áður.
Aðventuljósin fengu þó að loga út aðventuna,“ segir
Lucinda, eða Lucy eins og hún er alltaf kölluð.
Hún bætir við að hún og mamma hennar hafi sama
háttinn á, að skreyta hóflega fyrir jólin. „Jólaskrautið
er ekkert að kaffæra mann á heimilinu,“ segir hún
og hlær. „Mamma heldur í dag mikið upp á gamla
skrautið sitt á meðan ég hef gaman af því að föndra
nýjar jólaskreytingar úr ýmsu sem ég á heima hjá mér
og finn á nytjamörkuðum og prófa nýjar útstillingar
fyrir hver jól,“ bætir hún við.
Aðventan byrjaði snemma í ár
„Ég er yfirleitt byrjuð að skreyta fyrsta sunnudag í
aðventu og hún byrjar snemma í ár. Ég er líka byrjuð
ívið fyrr en vanalega núna, enda hafði ónefndur
blaðamaður samband við mig,“ segir Lucy og kímir.
„Ég er óvenjusnemma búin að setja aðventuljós í tvo
glugga, en ég fann nokkur á nytjamarkaði ABC.“ Eitt
aðventuljósið var rautt og hvítt, en Lucy málaði það
svart og skipti út kertunum fyrir svört. Þannig passar
það mun betur inn á heimilið.
Lucy hefur fundið fleiri falleg aðventuljós og kerta-
stjaka á nytjamörkuðum og meðal annars fann hún
dýrindis veglegan sjö ljósa stjaka úr málmi í ABC á
1500 krónur. „Hann var allur laus í sér en ég var viss
um að maðurinn minn gæti hert hann upp. Ég pússaði
hann svo og í ljós kom þessi dásamlega fallegi aðventu-
stjaki sem ég ætla ekki að kveikja á fyrr en á jólunum.
Þessi er í miklu uppáhaldi hjá mér núna,“ segir hún.
„Ég sé líka að aðrir eru byrjaðir mun fyrr að skreyta
hjá sér. Hér í götunni er mikið búið að skreyta og ég
sé aðventuljós í gluggum og seríur. Fólk hefur gaman
af þessu í skammdeginu. Fólk byrjaði að skreyta fyrr
Kann betur
við endurnýtt
jólaskraut
Lucy hefur sér
staka ástríðu
fyrir því að nýta
hluti úr nytja
mörkuðum og
búa til eitthvað
nýtt úr þeim.
Fréttablaðið/
Ernir
Hér er jólatréð með gullstjörnu og gömlu silfurbjöllunum.
Aðventuljósið fann Lucy á nytjamarkaði. Hún pússaði
viðinn og málaði svartan til að draga fram áferðina.
Hér má sjá aðventukrans sem Lucy setti saman úr ýmsu jólaskrauti sem hún fann á nytjamörk
uðum. Nema bjöllurnar sem eru úr The Pier.
Þessar tvær kertaluktir fann Lucy á
nytjamarkaði fyrr á árinu. Þær voru
fullkomnar í jólaskreytinguna.
Hér má sjá
annan að ventu
krans sem Lucy
setti saman úr
ýmsu sem hún
fann á nytja
mörkuðum.
í faraldrinum og það hefur fengið að halda sér að
minnsta kosti fyrir þessi jól,“ segir Lucy.
Lítið jólatré og ævafornar bjöllur
Lucy er orðin tíður gestur á nytjamörkuðum í
aðdraganda jólanna. „Sérstaklega hef ég gaman af því
að skoða í ABC barnahjálp, en jólaskrautið hjá þeim er
svo æðislegt. Margt af þessu er líklega úr dánarbúum
enda er töluvert um eldra jólaskraut.
Ég fann um daginn lítið jólatré í Góða hirðinum
sem minnti mig á það sem pabbi minn fékk eftir
pabba sinn. Hann er alltaf með tréð uppi á borði um
jólin sem skraut og ég hef alltaf verið hrifin af því. Tréð
sem ég fann var á 700 krónur og var greinilega búið
að liggja lengi í geymslu og var frekar skítugt. Ég greip
það með mér og sápuþvoði hverja grein uns það varð
grænt og fallegt. Það var þó enginn toppur á trénu eða
bjöllur eins og á trénu hans pabba. Svo var ég í ACB
barnahjálp og fann pínulitlar, ævagamlar og veglegar
messingbjöllur í kassa með blönduðu jóladóti. Þarna
var líka lítil silfurlituð stjarna. Ég keypti kassann til
að fá bjöllurnar og stjörnuna. Svo þreif ég bjöllurnar
vel og málaði stjörnuna gyllta. Þetta passaði fullkom-
lega á litla jólatréð. Ætli þetta sé ekki uppáhaldsjóla-
skrautið mitt í dag. Tengdapabbi er fæddur rétt fyrir
1950 og það var líka svona tré hjá honum. Þú færð
þessi tré ekki lengur.
Við fórum til Danmerkur í vinnu-
ferð fyrir stuttu og á meðan sam-
starfskonur mínar þræddu fatabúð-
irnar kíkti ég á flóamarkaðina og lét
freistast þar.“ Lucy finnst þó einnig
skemmtilegt að fara í aðrar búðir en
nytjamarkaði. „Mér finnst til dæmis
búðin Heimili og hugmyndir alveg
æðisleg og fæ mikið af hugmyndum
þaðan,“ segir hún.
„Ég get alveg farið út í búð og keypt
mér tilbúið jólaskraut og annað sem
mig langar í, en þetta er orðin ástríða
hjá mér, að endurnýta. Það er hægt
að búa til svo rosalega margt fallegt
úr hlutum sem aðrir hafa hent. Ætli
megnið af jólaskrautinu mínu sé
ekki úr nytjamörkuðum,“ segir hún.
Það gleymist oft hvað er til
Lucy hefur verið dugleg að deila
bæði jólaföndrinu og öðru sem hún
endurgerir úr nytjamörkuðunum á
Skreytum hús-hópnum á Facebook,
og hefur einnig opnað eigin Facebo-
ok-síðu, Fyrir og eftir hjá Lucindu.
„Þegar ég byrjaði að sýna fólki á Skreytum hús hvað
ég væri að gera þá hafði ég svo gaman af því hvað
margir fengu innblástur. Sumir áttu kannski alveg
eins uppi á lofti einhvers staðar og ætluðu að gera eins.
Við eigum svo margt inni í geymslum og skápum sem
hægt er að nýta í stað þess að kaupa alltaf nýtt í sífellu.
Það gleymist nefnilega oft hvað er til í geymslunni og
mér finnst gott að geta vakið fólk til umhugsunar um
það,“ segir Lucy að lokum. n
Á meðan
samstarfs-
konur
mínar
þræddu
fatabúð-
irnar þá
kíkti ég á
flóamark-
aðina og
lét freistast
þar.
Lucy
Jólarósina fann Lucy á nytjamarkaði,
hreinsaði hana og setti í bronspott
sem hún fann líka á nytjamarkaði.
86 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022