Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 42
Humarinn
er mitt
uppáhald
og það er
alltaf
passað upp
á að hann
sé til þegar
ég kem
heim um
jólin.
Guðmundur
Hilmarsson
gummih
@frettabladid.is
Sara Björk Gunnars-
dóttir, leikjahæsti leikmaður
íslenska kvennalandsliðsins
í knattspyrnu frá upphafi,
fyrirliði þess, og leikmaður
ítalska liðsins Juventus, seg-
ist alltaf hlakka til jólanna
og lítur á þau sem samveru-
stund fjölskyldunnar.
Sara hafði vistaskipti í sumar. Hún
yfirgaf franska stórliðið Lyon sem
hún varð í tvígang Evrópumeistari
með og gekk í raðir Juventus í Tór-
ínó. Þrátt fyrir þétta leikjadagskrá
í jólamánuðinum og að deildin á
Ítalíu byrjar að loknu jólafríi þann
5.janúar, ætlar Sara ásamt manni
sínum, fótboltakappanum Árna
Vilhjálmssyni og Ragnari Frank,
eins árs syni þeirra, að bregða sér
heim til Íslands og halda jólin hér
á landi í faðmi fjölskyldunnar.
Síðasti leikur Söru með Juventus
fyrir jólin er á móti gamla liðinu
hennar, Lyon, í Meistaradeildinni
sem fram fer í Frakklandi þann 21.
þessa mánaðar.
„Það er krafa frá ömmum og
öfum að koma heim um jólin með
litla kútinn,“ segir Sara Björk, sem
eignaðist sitt fyrsta barn fyrir rúmu
ári síðan.
Sláum upp
hlaðborði af
kræsingum
Sara Björk
og Árni með
Ragnar Frank á
háhesti á rölti í
Tórínóborg en
þau halda jólin á
Íslandi.
MYND/AÐSEND
„Það verður gaman að koma
heim og hitta fjölskylduna í
kringum jólin. Við stoppum í
stuttan tíma og ætlum að njóta
hans saman,“ segir Sara, sem stefnir
á að koma heim 22. desember og
halda aftur út til Tórínó á fyrsta
degi ársins 2023.
Alltaf heima um jólin
Sara Björk hefur spilað sem
atvinnumaður frá árinu 2011. Fyrst
í Svíþjóð, síðan í Þýskalandi, þá
Frakklandi og nú á Ítalíu.
„Frá því ég fór út í atvinnu-
mennsku hef ég alltaf verið heima
á Íslandi um jólin, sem hefur
verið æðislegt. Við fengum langt
jólafrí þegar ég spilaði í Svíþjóð
og í Þýskalandi en eitthvað aðeins
minna þegar ég spilaði með Lyon,“
segir Sara Björk, sem í haust hélt
áfram að bæta landsleikjametið en
leikir hennar með íslenska lands-
liðinu telja nú 139.
Sara hefur á atvinnumannsferli
sínum sankað að sér titlum en
hún var fjórum sinnum sænskur
meistari, fjórum sinnum þýskur
meistari og varð bikarmeistari
nokkrum sinnum á báðum
stöðum. Þá varð hún bikarmeistari
og Evrópumeistari með Lyon. Auk
þess hefur Sara sjö sinnum verið
valin knattspyrnukona ársins
á Íslandi og í tvígang hefur hún
orðið þess heiðurs aðnjótandi að
vera útnefnd íþróttamaður ársins.
Sannarlega glæsilegur ferill, sem
hófst með Haukum í Hafnarfirði.
Spurð að því hvort hún sé jóla-
barn segir Sara: „Já ég held að ég
geti alveg sagt það. Mér finnst jóla-
hátíðin ótrúlega kósí og sérstak-
lega þegar maður getur verið með
allri fjölskyldunni, notið saman og
borðað góðan mat. Svo gerir það
enn meira gaman að vera komin
með lítinn gutta. Bróðir minn
er með einn strák sem er fæddur
þremur vikum á eftir Ragnari svo
það verður mikið fjör þegar við
komum saman.“
Erum mikil matarfjölskylda
En hvað skyldi nú vera í matinn hjá
Söru á jólunum?
„Við erum mikil matarfjöl-
skylda. Bróðir minn er mikill
veiðimaður og hann er búinn að
veiða vel fyrir jólahátíðina. Hann
verður með gæsir og rjúpur og svo
er alltaf humar á boðstólum. Hum-
arinn er mitt uppáhald og það er
alltaf passað upp á að hann sé til
þegar ég kem heim um jólin. Það
má eiginlega segja að við sláum
upp hlaðborði af kræsingum og
allir éta á sig gat,“ segir Sara Björk.
Sara segist vera lítið fyrir að
fara í kirkju eða sækja tónleika í
kringum jólahátíðina.
„Við stórfjölskyldan reynum að
vera eins mikið saman og hægt er.
Við röltum oft niður í bæ eins og á
Þorláksmessu og setjumst niður til
að fá okkur eitthvað gott að borða.
Ég nýt þess best að vera heima
með fjölskyldunni, spjalla saman
og kíkja kannski út í göngutúra.
Ég er ekki oft heima á Íslandi svo
þegar ég kem heim þá vil ég hitta
fólkið mitt og vera sem mest með
því.“ n
jme@frettabladid.is
Það virkar fátt jafnvel til að hlýja
köldum nebbum, tám og fingrum
eftir góða útiveru í snjónum en
sjóðandi heitt súkkulaði með
rjómaslettu. Það þýðir þó ekki að
það megi ekki poppa það smá upp
endrum og eins og til þess eru
margar leiðir.
Piparmyntukakó
Ein leið til þess
að setja einfalt
tvist á kakóið er
að mylja pipar-
myntubrjóstsykur
eða jólastaf og strá
ofan á rjómann.
Kryddað jólakakó
Einnig er hægt að leyfa
mjólkinni að malla í smá
stund með kanilstöng og öðru jóla-
legu kryddi eins og negulnöglum,
stjörnuanís og fleiru áður en það
er veitt upp úr pottinum og súkku-
laðið er brætt út í. Svo er um að
gera að raspa smá múskathnetu og
strá kanil yfir rjómann.
Appelsínu súkkulaði
Til er undarlegur hópur fólks
sem virðist þykja gott að hafa
appelsínubragð af súkkulaðinu
sínu og það afvegaleidda fólk þarf
víst að virða eins og annað fólk.
Til eru ýmsar tegundir af súkku-
laði með appelsínubragði eins og
kattatungur og fleira sem hægt er
að bræða með mjólkinni. Endi-
lega varið þó gesti við enda er
appelsínusúkkulaði alls ekki
allra. Þá má einnig ýkja
upp appelsínubragðið
með því að raspa
appelsínubörk yfir
rjómann.
Tíu dropar
Það er ástæða fyrir því að heitt
súkkulaði og kaffi er svona vinsæl
blanda. Best er að bæta nýlög-
uðum espresso út í tilbúið heitt
súkkulaði en í neyð má bæta við
teskeið af skyndikaffidufti. Skot
af kahlúa eða öðrum kaffilíkjör
væri líka góð viðbót. Gott er að
blanda saman smá af púðursykri og
örlitlu af möluðu kaffi og strá yfir
rjómann. n
Hugmyndir að heitu súkkulaði
Piparmyntustafur
er fullkominn til að
peppa upp jóla-
kakóið. fréttAblAÐiÐ/
gEttY
Jólalegt krydd gefur bæði jólalegt bragð og angan af súkkulaðinu í desember.
Miðasala við innganginn og á tix.is - Miðaverð kr. 3.500 / 2.500
Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og Garðabæ
Mozart við kertaljós
í 30 ár
Camerarctica
Hafnarfjarðarkirkju mánudag 19. des. kl 21.00
Kópavogskirkju þriðjudag 20. des. kl 21.00
Garðakirkju miðvikudag 21. des. kl 21.00
Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudag 22. des. kl 21.00
Kammertónlist á aðventu 2022
20 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022