Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 114
Það er
varla til
meira
jólabarn í
allri ver-
öldinni
heldur en
ég.
Jólahátíðin er uppáhaldstími margra og einn
fallegasti tími ársins. Hægt er að skreyta og
lífga upp á dimmasta skammdegið með fal-
legum jólaljósum og hlýjum hlutum sem ylja
og brjóta upp hversdagsleikann.
sjofn@frettabladid.is
Inga Bryndís Jónsdóttir, fagurkeri og stílisti með
meiru, hefur ávallt haft mikinn áhuga á því sem við
kemur heimili og hönnun. Stíllinn hennar er míní
mal ískur og hlýlegur þar sem hver hlutur fær að njóta
sín. Gaman er að sjá hvernig henni tekst að halda
sínum stíl í jólaskreytingunum og hver hlutur fær að
halda sínum karakter.
Inga og eiginmaður hennar búa í einstaklega fallegu
húsi ofarlega á Skólavörðustígnum í nánd við Hall
grímskirkju, húsi með sál. Skólavörðustígurinn nýtur
sín vel í jólabúningnum og rómantísk jólastemning
ríkir á heimili Ingu.
„Jólin er sá tími sem auðvelt er að vera skapandi,
því þau gefa tóninn með öllu því
fallegasta og besta sem hægt er að
hugsa sér á þessum árstíma. Það er
greni, könglar, bjöllur og kryddaður
jólailmur,“ segir Inga Bryndís. Hún
segist ávallt hafa haft gaman af því
að skapa og búa til stemningu og á
það líka við ólíkar árstíðir og hátíðir
eins og jólin.
„Það er varla til meira jólabarn í
allri veröldinni en ég. Nándin við
Hallgrímskirkju hefur alla tíð gefið
mér mikinn innblástur í öllu sem
ég geri. Þemað í ár er jól í Marokkó,
þar sem marokkóskt handverk og
íslensk jól magna upp ævintýralega
stemningu.“
Hlutirnir sem fanga auga Ingu og laða hana að sjá
um að veita henni innblástur fyrir sköpun og skreyt
ingar. Frumleikinn er oft til staðar og Inga er óhrædd
við að fara ótroðnar slóðir þegar kemur að því að
skreyta á einfaldan hátt, svo einfaldan að það er hrein
lega ótrúlegt hvað henni tekst vel til við að láta hlutina
njóta sína og tala sínu máli. „Innblásturinn verður til
þegar ég sé fallegan hlut sem höfðar til mín og mig
langar til að gera eitthvað meira með skreytingarnar.“
Inga segist ávallt vera með lifandi jólatré, án þess
geti hún ekki verið. „Lifandi og sígræn grenitré koma
einungis til greina. Jólatréð er tákn um lífsins tré, sem
ilmar og gefur grósku, engin tvö tré eru eins og hvert
og eitt þeirra færir okkur vissu um nýtt upphaf og
trú á lífið og tilveruna,“ segir Inga hughrifin af anda
jólanna sem kominn er í húsið hennar. n
Mínímalísk jól
í anda Marokkó
Inga Bryndís Jónsdóttir býr í fallegu
húsi á Skólavörðustígnum þar sem
hún fangar jólastemninguna með
marokkósku þema í ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Borðstofan
er stílhrein og
borðið prýðir
hlýr ólífugrænn
litur sem kemur
vel út með
jólaþemanu.
Gluggarnir eru
skreytir með
einföldum
krönsum úr
basti og yfir-
bragðið er lát-
laust.
Marokkóskt
þema er í borð-
búnaðinum þar
sem einfaldleik-
inn ræður för.
Greni og könglar eru ríkjandi í jólaskreytingum Ingu og fá
að gleðja augað í öllum rýmum.
Gamlar hand-
gerðar bjöllur
eru hluti af
borðskrautinu,
festar á fal-
legar, svartar
hörservíettur
með smá greni,
mínímalískt og
tímalaust.
Fagurlega skreyttur krans tekur á
móti gestum í forstofunni við hlið
vasans.
Stjörnur úr
smíðajárni
heilla Ingu líka
og þar er eina
að finna í glugg-
anum sem snýr
út á Skólavörðu-
stíginn.
Stórar og miklar svalir fylgja húsinu og þar er stórt og fallegt ólífugrænt borð
sem Inga nýtir fyrir borðskreytingar með kertum og greni.
92 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022