Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 98
Skyrgámur enn þá sólginn í prótíngjafann góða
Skyrgámur er
með vörtu á litlu
tánni en annars er
hann góður.
fréttablaðið/eyþór
Jólasveinarnir íslensku eru
skrítnar skepnur sem dvelja,
líkt og einhvers konar aftur-
á-bak bjarndýr, í hellisskúta
sínum frá miðjum janúar
og láta vart sjá sig fyrr en í
desember.
jme@frettabladid.is
Hvað þeir gera á þessu tímabili er
hulin ráðgáta sem ólíklega verður
svarað í nánustu framtíð. Líklegt
þykir þó að þeir lifi tvöföldu lífi og
dulbúi sig sem almennir borgarar
megnið af árinu. Blaðamaður
hitti fyrir Skyrgám á förnum vegi
óvenju snemma fyrir jólin, þegar
hann var í árlegri heilsugöngu
í Öskjuhlíðinni. Líkt og sannur
blaðasnápur var undirrituð reiðu-
búin með upptökutækið og vatt
sér upp að honum.
Hlakkarðu til jólanna?
„Heldur betur! Spenningurinn
byrjar yfirleitt að byggjast upp um
páskana og vex svo dag frá degi!“
Hvernig eru jólin hjá jólasvein-
unum?
„Við erum lúnir á aðfangadag
eftir vinnutörnina. En jólahátíðin
er yndisleg. Kertasníkir kveikir
á kertunum sem börnin gefa
honum á aðfangadag, Þvörusleikir
er ábyrgur fyrir möndlugjöfinni
og svo sér Gáttaþefur um að stilla
útvarpsgarminn á jólamessuna kl.
18.00 svo helgiandanum sé hleypt
inn.“
Hvað borða jólasveinar á
aðfangadagskvöld?
„Við blöndum hefðum. Í forrétt
er kæst skata með kampavínslegn-
um rófum. Í aðalrétt er tvíreykt
hangikjöt með uppstúfi og nutella
og í eftirrétt er hafragrautur með
pepperoní.“
Gefið þið systkinin hvert öðru
jólagjafir?
„Já, svo sannarlega. En þú platar
mig ekki til að segja þér frá hvað
ég gef þeim. Það má alls ekki
fréttast að ég sé búin að kaupa Air-
Fryer handa þeim öllum.“
Hvernig er dagskráin hjá ykkur í
desember?
„Jólaböllin sem við mætum á
eru óteljandi eins og stjörnurnar
á himninum. Svo elskum við Jóla-
þorpið í Hafnarfirði og erum dug-
legir að koma þangað í heimsókn.
Ég minni áhugasama á heimasíð-
una mína www.skyrgamur.is, en
ég var á vefnámskeiði og er mjög
stoltur af henni!“ Þar má óska eftir
því að fá jólasveinana í heim-
sókn á jólaböll eða aðra viðburði
tengda jólunum.
Hvað er að frétta af þér Skyr-
gámur?
„Mínir persónulegu hagir eru
góðir. Ég var að panta ferð til Tene
um mánaðamótin janúar-febrúar,
svo er ég með eina vörtu á annarri
litlu tánni, en annars er ég góður.“
Hvað er að frétta af systkinum
þínum, gömlu hjónunum og kett-
inum?
„Þau ætla að koma með til Tene,
gamla settið verður reyndar bara
seinni vikuna. Kötturinn var úti í
mýri síðast þegar ég sá hann.“
Hvers vegna heitir þú Skyr-
gámur?
„Ég er sólgnastur okkar bræðra í
þennan bráðholla próteingjafa og
þetta nafn festist á mér.“
Áttu þér uppáhaldsskyrtegund?
„Það er best að borða þetta
hreint eins og Íslendingar gerðu í
aldir og drekka mysu með. En ég
fæ mér stundum nýtínd bláber
með á haustin því þau er svo rík af
andoxunarefnum.“
Hvað finnst þér þá um öll þessi
brögð sem eru sett út í skyrið nú til
dags?
„Ég fagna því bara ef þetta fær
f leiri til að borða skyr!“
Færðu ekkert í magann af öllu
þessu skyri?
„Ónei, ég með einstaka þarma-
flóru, sennilega út af súrsaða
matnum sem við borðum.“
Hefurðu smakkað skyr sem
framleitt er í útlöndum? Hvernig
finnst þér það?
„Siggi litli sem byrjaði að fram-
leiða Siggi´s skyr í Bandaríkjunum
er mjög glúrinn í að gera skyr. Ég
kynntist því þegar mamma fór
í hnjáskiptaaðgerðina í Minne-
sota.“
Því miður náði blaðamaður ekki
að draga það upp úr Skyrgámi að
þessu sinni hvar jólasveinarnir
og fjölskylda þeirra hafast við
yfir sumartímann því heilsuúrið
sem Skyrgámur bar á úlnliðnum
byrjaði að gefa frá sér ógurlegt
tíst. Til þess að missa ekki púlsinn
alveg niður, kvaddi Skyrgámur
snögglega, bað að heilsa Ásbirni
Þorsteinssyni og hélt áfram kraft-
göngunni inn í skógarþykknið. n
76 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022