Fréttablaðið - 02.12.2022, Page 20

Fréttablaðið - 02.12.2022, Page 20
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Rúmföt frá okkur eru hin fullkomna jólagjöf því þau eru eitthvað sem allir geta notað, en dettur kannski ekki í hug að kaupa handa sjálfum sér. Við heyrum sögur frá viðskiptavinum okkar sem hafa gefið börnunum sínum rúmföt frá okkur í jólagjöf og núna vilja þau fá fleiri. Það eru svona sögur sem ylja okkur um hjarta- stöðina og fá okkur til að gera enn betur. Við erum nefnilega alltaf að bæta vöruúrvalið og gera búðina okkar skemmtilegri,“ segir Hildur. Hildur Þórðardóttir, verslunar- stjóri hjá Rúmföt.is, segir að versl- unin hafi tekið miklum stakka- skiptum eftir að hún hóf störf hjá fyrirtækinu. „Þetta hefur undið heilmikið upp á sig. Fyrir fjórum árum fluttum við hingað á Nýbýla- veginn og þetta eru önnur jólin síðan við stækkuðum verslunina um meira en helming og bættum þá heilmiklu við vöruúrvalið,“ segir Hildur. „Fagmennska er það sem við viljum standa fyrir. Við erum eina sérverslunin á landinu sem sérhæfir sig í rúmfötum og veitum þjónustu í samræmi við það,“ bætir hún við. Þýskar lúxus-dúnsængur „Við erum sérstaklega stolt að geta boðið upp á sennilega flottustu sængur í heimi sem ekki kosta bílverð, frá þýska fjölskyldu- fyrirtækinu OBB. Fyrirtækið var stofnað árið 1900 og er í dag eitt fárra sem eru með alla fram- leiðslulínuna innanhúss. Flestir sængurframleiðendur í Þýskalandi kaupa dúninn tilbúinn til að setja í sængina. OBB er hins vegar með tækjakost til að bæði hreinsa/ flokka dúninn og blanda honum saman í hvaða hlutföllum sem er. Við heimsóttum fyrirtækið í fyrsta skipti núna í sumar og var það alveg ógleymanlegt. Við látum framleiða fyrir okkur 100% dún- sængur úr Kanadagæsadúni sem er a.m.k. 850 CUIN. Venjulegar gæsadúnsængur sem margar búðir selja á Íslandi eru 450-650 CUIN. En þessi CUIN tala mælir einangr- unargildið eða hversu loftkenndur dúnninn er. Sæng með háu CUIN gildi er því bæði léttari og hlýrri en jafnþung sæng með lægra gildi.“ Gámur á dag kemur skapinu í lag Björn Þór Heiðdal, eigandi Rúmföt. is, segist vera með ólæknandi rúm- fatadellu og elskar að sofa undir mjúkum rúmfötum. Til að svala þessari dellu sinni hefur hann heimsótt sýningar úti um allan heim og fengið prufur frá hundr- uðum vefara af öllum stærðum og gerðum. „Heimtextil er stærsta textílsýning í heimi og er haldin í Frankfurt. Þarna koma saman mörg þúsund fyrirtæki til að sýna framleiðslu sína. Ég er búinn að heimsækja sýninguna fimm sinnum og er alltaf að rekast á eitthvað nýtt og spennandi. Fyrsta daginn á fyrstu sýningunni sem ég heimsótti fattaði ég hvað Ísland er pínulítið. Ég var í Asíu-hlutanum þegar ein- hver vel skeggjaður herramaður frá Pakistan tók mig á eintal og spurði hversu marga gáma á mánuði ég væri líklegur til að panta. Ég horfði einlægur í augun á honum og sagði: „Gámur á dag kemur skapinu í lag, en fyrst þyrfti ég að opna búð,“ sem ég gerði stuttu síðar.“ 300, 600 og 900 þráða satín „Okkar vinsælustu rúmföt eru úr hágæða 300 og 600 þráða áprent- uðu satíni. Við látum framleiða þessi rúmföt fyrir okkur í Kína úr langþráða bómull í verksmiðju sem er ein sú fullkomnasta í heimi. Reyndar eru þetta nokkrar verksmiðjur sem við skiptum við. Ein vefur 300 og 600 þráða efnin, Magga saumar dýrindis rúmföt úr silkidamaski og satíni frá Ítalíu. MYNDIR/ AÐSENDAR Okkar vinsælustu rúmföt eru úr hágæða 300 og 600 þráða áprentuðu satíni og eru framleidd í Kína. Rúmfötin fást í ýmsum litum eða með áprentuðu mynstri. 600 þráða satín og silkidamask rúmfötin sem Magga saumar fyrir verslunina rjúka út eins og heitar lummur fyrir jólin. Einfaldasta leiðin til þess að fríkka upp á svefnherbergið er að klæða rúmið með fallegum rúmfötum í heillandi litum og mynstrum. Góður koddi getur gert kraftaverk og er tilvalinn í jólapakkann. Við erum eina sérverslunin á landinu sem sérhæfir sig í rúmfötum og veitum þjónustu í samræmi við það. Hildur Þórðardóttir önnur vefur 900 þráða satínið og síðan er verksmiðja sem sérhæfir sig í að prenta á rúmfötin. Svo er ég með Kínverja í vinnu sem heldur utan um þetta allt saman og sér um samskipti við þessa aðila. 300 þráða bómullarsatínið okkar er mjög vandað efni og til með mörgum mynstrum. 600 þráða rúmfötin eru síðan enn betri og líka til einlit í nokkrum litum. Grá rúmföt eru vinsæl en við eigum líka sinnepsgul og pipar- myntugræn fyrir fólk sem þorir. Ég er samt persónulega hrifnastur af 900 þráða rúmfötunum okkar. Þau eru alveg meiri háttar. Ef fólk vill eitthvað verulega mjúkt og kósí þá eru þau málið. Mér skilst að Rúmföt.is sé eina búðin í Evrópu sem selur rúmföt úr þessu efni. Þetta er nefnilega ætlað fyrir kínverska milljarðamæringa í Hong Kong með alveg óraunveru- legar kröfur um áferð og mýkt.“ Lúxus í bresku höllinni „Við bjóðum líka upp á rúmföt frá allra flottustu og vönduðustu vef- urum Ítalíu. Meðal annars erum við með rúmföt frá ítalska vefar- anum Quagliotti sem vefur dúka og sængurföt fyrir bresku hirðina. Fyrir rúmum fjórtán árum ákvað Hotel Ritz í París að bjóða gestum sínum upp á rúmföt frá Quag- liotti eftir ítarlega leit að bestu rúmfötum í heimi. Ég hef það líka eftir áreiðanlegum heimildum að þegar Karl og Camilla giftu sig, hafi Quagliotti saumað rúmföt fyrir brúðkaupsnóttina. Oftast eru rúm- fötin sérstaklega ofin fyrir hvern viðskiptavin eftir óskum hans. Við skiptum líka við aðra ítalska verksmiðju sem er stærri og hefur útvegað okkur ótrúlega flott satín og silkidamask efni sem Magga saumakona saumar síðan úr eins og henni einni er lagið. Því miður er Magga bara með tvær hendur og annar ekki eftirspurn. Við höfum því flutt inn tilbúin rúmföt úr sömu efnum beint frá saumastofu á Ítalíu. Ég held að það sé engin önnur búð á Íslandi að selja svona flott lúx- usrúmföt frá Ítalíu,“ segir Björn Þór Heiðdal, eigandi verslunarinnar. Góður svefn í jólagjöf „Ekki má heldur gleyma kodd- unum sem við seljum og silki- koddaverum sem eru alltaf vinsæl í jólagjafir. Góður svefn er gulli betri og það að gefa í jólagjöf eitt- hvað sem stuðlar að betri svefni, er ein hugulsamasta jólagjöf sem ég get hugsað mér,“ segir Björn að lokum. n Rúmföt.is verslun er staðsett að Nýbýlavegi 28. Búðin er opin milli 12-17.30 virka daga og 11-15 laugardaga. Sími: 565-1025. Vef- verslunin rumfot.is er opin allan sólarhringinn. 2 kynningarblað A L LT 2. desember 2022 FÖSTUDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.