Fréttablaðið - 02.12.2022, Side 52
Ég á tólf
pör af
jólasokk-
um núna
svo ég á
ekki alveg
eitt par
fyrir hvern
dag.
Leikskólakennarinn Elín
Guðrún Ingvarsdóttir mætir
alltaf í vinnuna í jólasokkum
vikurnar fyrir jól til að
lífga upp á daginn og gleðja
börnin. Hún á þegar þetta
er skrifað tólf pör af jóla-
sokkum en stefnir að því að
bæta í safnið.
sandragudrun@frettabladid.is
Það var fyrir jólin 2020 sem Elín
Guðrún ákvað að lífga aðeins upp á
tilveruna, enda mikið um lokanir á
þeim og allt í svolítið í volli, eins og
hún kemst að orði.
„Ég rak augun í jólasokka
og keypti þá og mætti í þeim í
vinnuna. Það var mjög gott þegar
börnin voru að koma svolítið stúrin
í leikskólann að benda þeim á
sokkana. Það gladdi þau,“ segir Elín
Guðrún.
Hún fór alltaf að mæta í jóla-
sokkum í vinnuna fram að jólum
og ákvað að halda því áfram árið
eftir.
„Núna er þetta bara orðin föst
hefð. Ég byrja að grafa sokkana upp
svona um miðjan nóvember. Ég á
tólf pör af jólasokkum núna svo ég
á ekki alveg eitt par fyrir hvern dag.
Ég vona nú samt að það bætist eitt-
hvað í safnið, mig vantar bara eitt
par upp á að ná jólasveinunum,“
segir hún hlæjandi.
Velur líflega sokka
Elín Guðrún gengur yfirleitt í frekar
dökkum fötum svo hún hefur reynt
að hafa sokkana líflega til að vega
upp á móti fötunum.
„Ég hef keypt þá flest alla í Bónus
en ég hef líka keypt sokka í Húsa-
smiðjunni. Ég man ekki hvort ég
hafi keypt þá einhvern tímann
í Hagkaup,
þeir eru voða
Litríkir jólasokkar
gleðja börnin
Elín Guðrún
gleður börnin
á leikskólanum
með því að
mæta í líflegum
jólasokkum
í vinnuna
vikurnar fram að
jólum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Elín á orðið 12 pör af sokkum og ætlar að bæta við fleirum, enda vantar bara eitt par til að ná jólasveinunum.
svipaðir alls staðar. En 90% af
mínum jólasokkum eru örugglega
úr Bónus.“
Krökkunum á leikskólanum
finnst alltaf jafn skemmtilegt þegar
hún kemur í jólasokkum í vinnuna.
„Þau er náttúrlega oft sjálf í jóla-
sokkum og þá bendi ég á að við
séum eins. Það finnst þeim gaman.
Ég er að vinna með yngstu börnin
svo þetta gleður.“
Aðspurð að því hvort einhver af
vinnufélögunum hafi smitast af
áhuganum á jólasokkum og farið
að mæta í jólasokkum á leikskól-
ann fyrir jólin, hlær Elín Guðrún og
segir að það hafi ekki enn gerst.
„En það kemur kannski ein-
hvern tímann seinna,“ bætir hún
við.
Engin jól án Grýlukaffis
Elín Guðrún segist ekki vera með
margar aðrar hefðir fyrir jólin en
hún kemst alltaf snemma í jóla-
skap.
„Ég segi að jólin byrji þegar Ikea
byrjar að koma með jólavörurnar.
Það er upphafið. Ég hlusta líka á
jólalögin alveg hægri, vinstri frá
því það er byrjað að spila þau í
útvarpinu. Ég horfi líka á jóla-
myndir og byrja alltaf snemma á
þeim. Það er hefð hjá mér að horfa
annað hvort á allar Harry Potter
myndirnar eða Lord of the Rings
myndirnar fyrir jólin. En stundum
tek ég aðrar á páskunum og hinar
um jólin. Núna er ég búin að horfa
á Lord of the Rings myndirnar. En
ég er ekki byrjuð að skreyta, ég
geri það aðeins seinna,“ segir hún
þegar ég spjalla við hana seinni
partinn í nóvember.
„Mér finnst líka gaman að fara
í búðir fyrir jólin ,ekki endilega
til að versla heldur bara kíkja á
hvað er boði. Ég fer alltaf og fæ mér
Grýlukaffi Smáralindinni. Það eru
aldrei jól án þess að fá sér Grýlu-
kaffi á Te og kaffi.“ n
30 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022