Fréttablaðið - 02.12.2022, Side 64
Borgar- og bæjarfulltrúar
hafa nóg að gera nú fyrir
jólin. Fulltrúar okkar eru
þó jólabörn eins og flestir
Íslendingar og hlakka
til aðventunnar. Borgir
og bæir eru að taka á sig
fallegan jólasvip um allt
land.
Síðustu jólin í gamla húsinu
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
borgarfulltrúi Viðreisnar
Þórdís Lóa segir
afar mikilvægt
að skreyta mið-
borgina fyrir jólin.
„Reykjavíkurborg
hefur staðið sig
vel að mínu mati
undanfarin ár í
jólaskreytingum og
langar mig þá sérstaklega
að draga fram tilkomu jóla-
kattarins á Lækjartorgi sem er
frábær viðbót og fallegar jóla-
skreytingar í úthverfum eins og
í Breiðholti og í Elliðaárdalnum.
Svo finnst mér frábært hversu
rekstraraðilar hafa tekið vel við
sér og setja þannig mikinn svip
á jólastemninguna. Reykjavík er
svo falleg og hlý yfir jólin, sem
ég tími alls ekki að missa af.“
Ertu dugleg að skreyta heima?
„Jólaskreytingar mínar
tengjast alfarið aðstæðum
hverju sinni. Þegar börnin okkar
voru lítil varð heimilið hálfgert
jólaland. Svo var tímabil þar
sem ég var mikið á flakki á milli
landa og þá breyttust jóla-
skreytingar og urðu alþjóðlegri.
Nú er ég á þeim stað, þar sem
við erum að flytja af heimili
okkar til rúmlega 20 ára, að jólin
verða sennilega extra hlýleg og
heimilisleg með smá söknuði
og trega.“
Ertu jólabarn?
„Já, heldur betur enda fædd
í desember. Jól og afmæli hafa
alltaf runnið saman í eina hátíð
hjá mér. Síðan er ég veiðikona
og elda mikið villibráð sem
er stór partur af jólahátíðinni
okkar. Alls kyns gúm-
melaði er búið til
sem ég borða bara
í aðventunni eins
og hreindýra- og
gæsapaté, en strax
eftir áramót lít ég
ekki við þessu og
langar bara strax í
þorramat.“
Hver er eftirminni-
legasta jólagjöfin?
„Jólagjafir til mín hafa oft
blandast saman við afmælis-
gjafir og sú eftirminnilegasta
er sannarlega þegar eigin-
maðurinn kom mér á óvart og
gaf mér sánatunnu í afmælis-
og jólagjöf. Þegar ég kom heim
á afmælisdaginn minn þá var
hann búinn að koma sánatunnu
fyrir í garðinum. Ég var dregin
út í garð þar sem sánan var
sjóðandi heit og fullt af góðum
vinkonum sem biðu spenntar
eftir að fá að koma mér á
óvart.“
Hefur þú gaman af því að fá
bók í jólagjöf og er einhver sér-
stök á óskalistanum?
„Ég er mikill lestrarhestur,
það er afbragðs hvíld frá
pólitíkinni að lesa góða glæpa-
sögu. Ég hef mjög gaman af því
að fá góða bók í jólagjöf, en svo
finnst mér erfitt að hemja mig
og kaupi mikið af jólabókum
sjálf. Ég les alltaf Yrsu, Lilju,
Ragnar og núna undanfarið
Ármann Jakobsson. En í ár ætla
ég örugglega að lesa bókina
Reykjavík glæpasaga eftir
Ragnar og Katrínu forsætisráð-
herra og hlakka mikið til.“
Hafnarfjörður er jólabærinn
Valdimar Víðisson
bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins í
Hafnarfirði
Valdimar Víðisson er
bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins í
Hafnarfirði og skóla-
stjóri í Öldutúnsskóla.
Valdimar verður
bæjarstjóri Hafnarfjarðar frá 1. janúar 2025 í
stað Rósu Guðbjartsdóttur.
Finnst þér mikilvægt að skreyta bæinn mikið
fyrir jólin?
„Já, það finnst mér. Öll þessi fallegu jólaljós
og skemmtilegu skreytingar setja fallegan og
notalegan blæ á bæinn okkar. Hafnarfjörður er
svo sannarlega jólabærinn.“
Ertu duglegur að skreyta heima?
„Ég var það ekki en er orðinn það núna.“
Ertu jólabarn?
„Já, ég er það. Alltaf að verða meira og meira
jólabarn með hverju árinu. Við setjum upp mikið
af jólaseríum og kerfum og svo er ég orðinn svo
ansi flinkur í því að setja upp alla jólaóróana í
réttri röð, elsti fyrst og nýjasti síðastur. Skiptir
öllu máli að hafa í réttri röð, eiginkonan búin að
kenna mér það.“
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin?
„Þær eru svo margar. En líklega var eftir-
minnilegasta gjöfin þegar ég var átta ára heima
í Bolungarvík og fékk mitt fyrsta armbandsúr
frá ömmu og afa. Silfurlitað, alvöru úr. Var fyrst
hundóánægður því pakkinn var svo lítill en
afskaplega ánægður þegar ég sá innihald hans.
Var nýbyrjaður að læra á klukku og
þessi gjöf aðstoðaði mig við að
verða fullnuma á klukkuna.“
Hefur þú gaman að því
að fá bók í jólagjöf og er
einhver sérstök á óskalist-
anum?
„Ég hef mjög gaman af
því að fá bók í jólagjöf. Gef
mér samt allt of lítinn tíma til
að lesa. Hef mest gaman af krimmum eins og
eftir Ragnar, Yrsu og Arnald. Fátt er betra á að-
fangadagskvöld en að hafa það huggulegt með
konfekt, jólaöl og góðan krimma.“
Gjöf frá jólaafa minnisstæð
Jana Salóme Ingibjargar
Jósepsdóttir
bæjarfulltrúi Vinstri
grænna á Akureyri
Jana Salóme segir að
það lyfti andanum
í svartasta skamm-
deginu að sjá falleg
jólaljós í bænum. „Sér-
staklega er gaman að sjá
skreytingar sem hafa verið
uppi í mörg ár eins og Amaro-stjörnuna sem
vekur upp góðar minningar og tengir kynslóðir,“
segir hún.
Ertu dugleg að skreyta heima?
„Ég er alltaf mjög dugleg að skreyta með
skrauti sem hefur fylgt mér frá því að ég var lítil.
Ég skreyti alltaf á fyrsta í aðventu, en jólatréð er
aldrei skreytt fyrr en á Þorláksmessu.“
Ertu jólabarn?
„Ég er mikið jólabarn. Samverustundir með
fjölskyldu eru mér mikilvægar og þær eru aldrei
fleiri en yfir jólahátíðina. Svo koma gamlir vinir
oft heim um jólin sem gerir allt enn skemmti-
legra.“
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin?
„Afi minn lést í lok nóvember 2008 og
jólin það árið ákvað mamma að við systkinin
fengjum öll gjöf frá jólaafa. Þá fékk ég bók, en
gjöfin var ekki aðalþátturinn, heldur sú fallega
hugsun mömmu að gefa okkur gjöf frá jólaafa,
það vakti upp fallegar minningar um yndislega
manneskju.“
Hefur þú gaman að því að fá bók í jólagjöf og er
einhver sérstök á óskalistanum?
„Ég hef mjög gaman af því að fá bækur í jóla-
gjöf. Síðustu ár hef ég alltaf
fengið bók eftir Yrsu sem er
stór partur af minni jóla-
hefð. Það hefur ekki klikkað
hingað til, en ef það gerist
þá verð ég líklegast ekkert
kampakát. Annars er bókin
Reykjavík eftir Katrínu Jakobs-
dóttur og Ragnar Jónasson á
óskalistanum.“
Ljósadýrð
loftin gyllir
Alltaf sönglandi jólalög
Sverrir Bergmann,
bæjarfulltrúi Samfylk-
ingarinnar í Reykja-
nesbæ og söngvari
Sverri finnst mikil-
vægt að skreyta bæ-
inn fyrir jólin. „Bæði
hvað varðar stemn-
ingu og ekki síður til að
lýsa upp skammdegið.“
Ertu duglegur að skreyta
heima?
„Já, ég er nokkuð duglegur og verð betri með
hverju árinu. Núna þegar maður er kominn með
tvær litlar stelpur er það enn meiri stemning og
enn meira gaman.“
Ertu jólabarn?
„Algerlega. Ég er sönglandi jólalög nánast allt
árið og uppáhaldsmaturinn minn er rjúpan sem
ég fæ bara á jólum svo þetta er ein af mínum
eftirlætisstundum ár hvert.“
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin?
„Uppáhaldsjólagjöfin mín er enn fjarstýrður
beltabíll sem ég fékk þegar ég var í kringum tíu
ára aldurinn. Ég gjörsamlega fríkaði út þegar ég
opnaði pakkann því ég var búinn að sætta mig
við að ég myndi líklega aldrei eignast svona
flottan fjarstýrðan bíl. Ég fékk hann frá mömmu
og pabba og hann nýttist einkar vel
við að keyra upp lappirnar á ömmu
og afa.“
Hefur þú gaman af því að fá
bók í jólagjöf og er einhver sér-
stök á óskalistanum?
„Get ekki sagt það. Ég er lítill
bókakall. Það væri þá ekki nema
það væri einhver skemmtileg bók
sem ég gæti lesið fyrir dætur mínar.“
Jólatréð sótt í sveitina
Hjördís Ýr Johnson,
bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í
Kópavogi
Hjördís segir að
mikið sé lagt upp úr
því að skreyta bæinn
fyrir jólin og sér finnist
það mjög mikilvægt.
„Jólaljósin og skreyting-
arnar lífga upp á þessum dimmasta tíma ársins,“
segir hún.
Ertu dugleg að skreyta heima?
„Ég myndi segja það, maðurinn minn sér um
húsið að utan og ég skreyti að innan. Svo er það
hefð hjá okkur hjónum að fara á hverju ári austur
í bústað að sækja jólatréð okkar. Við erum því
alltaf með nýfellda furu með tilheyrandi ilmi.
Stærðin á trénu hefur verið mismunandi milli
ára en sennilega náðum við að toppa okkur
síðustu jól þegar við rétt náðum með herkjum
að koma því inn um útidyrnar. Ég er sannfærð
um að það hafi stækkað á leiðinni heim, það leit
að minnsta kosti út fyrir að vera miklu minna í
skóginum.“
Ertu jólabarn?
„Já, aðventan hefur alveg sérstakan blæ í
mínum huga og þá eru kertaljós og kósíheit
ómissandi og það er ekki verra ef það snjóar
líka hressilega. Að fara á jólatónleika, eiga góðar
stundir með vinum og fjölskyldu og baka eina
til tvær sortir af smákökum er allt hluti af jóla-
stemningunni. Ég reyni alltaf að minnka við mig
vinnu á þessum tíma og leyfi mér að njóta.“
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin?
„Fyrir allmörgum árum ákvað ég að gera
virkilega vel við sjálfa mig og keypti einn af
fyrstu snjallsímunum sem voru þá að koma á
markaðinn. Ég fékk þá skyndihugdettu að pakka
símanum inn og smella honum undir jólatréð
með miða sem á stóð til Hjördísar frá aðdáanda.
Þegar kortið var lesið á aðfangadagskvöldinu og
ég opnaði pakkann voru viðbrögðin óborganleg
– allir voru gapandi yfir þessum meinta aðdá-
anda en sennilega var eiginmaðurinn manna
fegnastur þegar sannleikurinn kom í ljós.“
Hefur þú gaman af því að fá bók í jólagjöf og er
einhver sérstök á óskalistanum?
„Já, ég hef mjög gaman af því að lesa og finnst
æðislegt að kúra undir
teppi með nýja bók.
Spennubækur eru
yfirleitt efstar á
lista hjá mér og þar
klikka Yrsa, Ragnar og
Arnaldur aldrei.“
elin@frettabladid.is
Við fengum fimm borgar- og
bæjarfulltrúa til að svara nokkrum
jólaspurningum. Allir viðurkenna
að desember sé skemmtilegur
árstími þegar jólaljósin lýsa upp
svartasta skammdegið og mann-
lífið blómstrar. n
42 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022