Fréttablaðið - 02.12.2022, Side 68
Þetta eru ekki
aðstæður sem
fólkið valdi sér sjálft.
Allir vilja gleðja börnin
sín og mér finnst gaman
að geta hjálpað.
Hafrún Ósk Hafsteinsdóttir
er önnur stjórnenda hópsins
Jólakraftaverk. Tilgangur
hópsins er að aðstoða fólk
með minna á milli hand-
anna að kaupa jólagjafir,
skógjafir eða dagatöl fyrir
börnin.
sandragudrun@frettabladid.is
Hópurinn var stofnaður árið 2014
og hefur starfað óslitið síðan. Haf-
rún Ósk er 36 ára einstæð móðir
í Seljahverfi. Hún komst í kynni
við hópinn þegar hún þurfti sjálf
á aðstoð að halda eitt árið. Þegar
hún var seinna í aðstöðu til að
hjálpa öðrum bauð hún sig fram og
hefur verið í stjórn hópsins síðan.
„Ég fékk það mikla og góða
aðstoð frá þessum hóp, svo að næst
þegar ég gat sjálf gefið mínu barni
jólagjöf þá fann ég hvað mig lang-
aði mikið til að hjálpa til,“ útskýrir
Hafrún Ósk.
Jólaaðstoð Jólakraftaverks
virkar þannig að fólk sendir stjórn-
endum hópsins skilaboð og óskar
eftir hjálp. Hópurinn aðstoðar
með jólagjafir fyrir börn frá 0-18
ára og einnig með skógjafir og jóla-
dagatöl.
„Við erum tveir stjórnendur í
hópnum, ég og Hólmfríður Lára
Ég get ekki hugsað mér að börn fái ekki jólagjöf
Hafrún þekkir það af eigin reynslu hvernig það er að þurfa aðstoð við að kaupa jólagjafir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þórhallsdóttir. Við aðstoðum alla
sem þurfa á aðstoð að halda. Ekki
bara einstæðar mæður eða feður
heldur líka ömmur og afa og alla
forsjáraðila barna. Gift fólk hefur
líka haft samband við okkur,“
útskýrir Hafrún Ósk.
Velja gjafir út frá áhugamáli
„Stundum er þetta fólk sem lendir
allt í einu í því að eiga ekki fyrir
öllum nauðsynjum. Það veit ekki
hvernig það á að leita sér aðstoðar
og kemur þá oft til okkar. Þegar
fólk sendir okkur skilaboð biðjum
við um upplýsingar um aldur og
kyn ef fólk vill segja okkur það
og áhugamál barnanna. Ég spyr
um áhugamál svo krakkarnir fái
gjafir sem þau hafa áhuga á,“ segir
Hafrún Ósk
Hún bætir við að oft sé það
þannig hjá hjálparsamtökum að
fólk þarf að velja úr hrúgu af dóti
í von um að finna eitthvað sem
börnin þeirra hafa áhuga á. Þær
hjá Jólakraftaverki vilja tryggja að
börnin fái eitthvað sem þau langar
í, þess vegna eru gjafirnar sérstak-
lega keyptar fyrir hvert barn.
„Ég set kannski inn á hópinn að
óskað hafi verið eftir hjálp fyrir
átta ára dreng sem hefur mikinn
áhuga á Lego og Minecraft. Þá
býðst einhver til að fara og kaupa
Minecraft Lego fyrir hann, eða
leggja pening inn á okkur svo
við getum og keypt það,“
segir Hafrún.
„Stundum vill eldra
fólk hjálpa til sem
treystir sér ekki til að
fara sjálft í búðir. Þá
leggur það inn á
okkur og við förum
í búð og verslum
það sem þarf. Við
tökum svo mynd
af gjöfinni og
kvittuninni til að
sýna að peningarnir
fara ekki til okkar. Þeir fara allir í
gjafir, dagatöl eða skógjafir.“
Enginn þarf að skammast sín
Mjög margt fólk sem hefur sam-
band skammast sín fyrir að biðja
um aðstoð en Hafrún segir að
enginn eigi að skammast sín fyrir
að þurfa hjálp.
„Þetta eru ekki aðstæður sem
fólkið valdi sér sjálft. Allir vilja
gleðja börnin sín og mér finnst
gaman að geta hjálpað. Ég veit sjálf
hvernig það er að vera í þeirri stöðu
að þurfa aðstoð,“ segir hún.
Aðspurð að því hvort þær aðstoði
marga á hverju ári segist Hafrún
halda að þegar mest var hafi það
verið yfir 200 börn.
„Í fyrra voru þau rúmlega 130,
ég man ekki alveg nákvæma tölu.
En þetta voru samt ekki 130 fjöl-
skyldur, stundum voru þetta 5 eða
6 manna fjölskyldur og nokkur
börn í hverri þeirra,“ segir hún.
„Við höfum náð að redda gjöfum
í flestum tilfellum. En það hefur
komið fyrir að við náum því ekki.
Þá hef ég stundum farið út sjálf
og fundið eitthvað og nota bara
minn eigin pening í það. Ég get ekki
hugsað mér að eitthvað barn fái
ekki jólagjöf svo ég finn bara út úr
þessu.“
Beina matarbeiðnum annað
Hafrún tekur fram að þær taki
einungis við beiðnum um aðstoð
við gjafakaup, en bendi fólki á
aðrar hjálparstofnanir ef það þarf
á mataraðstoð að halda.
„Ég bendi þá á Mæðrastyrks-
nefnd, Fjölskylduhjálp, Hjálpar-
starf kirkjunnar og Hjálpræðis-
herinn. En ef fólk vill gefa mat, eins
og kannski hamborgarhrygg eða
gjafabréf í Krónuna eða eitthvað
slíkt, þá tökum við á móti því.
Við erum alltaf með fólk sem þarf
á mataraðstoð að halda svo við
getum komið matnum áfram. En
við tökum ekki við beiðnum um
það,“ segir hún.
„Við höfum líka verið í góðu
samstarfi við Jólasveinahjálpar-
kokka, en Pepp Ísland er með þann
hóp. Þau senda gjafir út á land svo
þegar við fáum beiðnir um það
þá bendum við á Hildi sem er for-
maður þeirra samtaka. Hún sér við
að taka við þeim beiðnum og
senda út á land.“ nDIDDÚ
OG DRENGIRNIR
Í VÍDALÍNSKIRKJU
16. DESEMBER 2022 KL. 19:30
Aðventutónleikar í boði þýska sendiráðsins.
Fram koma Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú,
ásamt orgelleikaranum Jóhanni Baldvinssyni og blásarasextett.
Tónleikarnir eru haldnir í 8. sinn í því skyni
að styðja við mikilvægt starf Landsbjargar
en tekið er á móti frjálsum framlögum.
Aðgangur ókeypis.
Þýska sendiráðið kynnir
https://www.facebook.com/DeutscheBotschaftReykjavik
46 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022