Fréttablaðið - 02.12.2022, Side 78

Fréttablaðið - 02.12.2022, Side 78
mætti byrja mun fyrr að spila jóla- lögin. „Það má byrja að hausti fyrir mér. Jólin líða allt of hratt og því ekki að njóta jólatónanna lengur? Það er ógrynni til af jólatónlist. Mörg jólalög tengjast minningum mínum og hef ég alveg skellt jóla- lagi á fóninn þó það sé sumar. Ég byrja annars að hlusta smá á jóla- lögin í september og október, fyrir alvöru í nóvember og svo af fullri alvöru í desember.“ Sólveig hefur samið eitt jólalag sem hún sendi í Jólalagakeppni Rásar 2 og komst það í tíu laga úrslit á sínum tíma. „Lagið heitir Ljósin fela myrkrið og er angur- vært lag með dassi af trega. Text- inn vísar í jákvæð áhrif ljósanna í skammdeginu, birtuna innra með okkur á þessum tíma og von um birtu.“ Hlýtt í hjartanu „Ég skreyti ekkert brjálæðislega fyrir hátíðirnar en legg frekar áherslu á jólaljósin inni og úti. Þó legg ég mikinn metnað í að skreyta jólatréð. Uppáhaldsjóla- skrautið myndi ég segja að væri jólasveinninn sem sambýlismaður minn gaf mér um daginn. Hann er klæddur í feld sem er svipaður og kápan mín. Uppáhaldsjólaljósið er svo snjókarl sem bróðir minn gaf mér fyrir mörgum árum. Hann lýsir endalaust og mér verður alltaf hlýtt í hjartanu þegar hann er upp- lýstur.“ n Sólveig Þórðardóttir hefur verið jólabarn alveg frá því að hún man eftir sér. „Já, ég held mér sé óhætt að full- yrða það. Einu sinni jóla- barn, ávallt jólabarn. Barns- lega tilhlökkunin er enn til staðar,“ segir hún. jme@frettabladid.is „Það besta við jólin eru tónlistin, ljósin, jólakvikmyndir, maturinn og jólaundirbúningur með öllu tilheyrandi á aðventunni. Jóla- ljósarölt og bíltúrar eru líka í uppáhaldi og samvera með fjöl- skyldunni, spil, kalkúnn og jólaöl. Að skreyta piparkökur og krukkur með „litlu“ frænkum mínum. Það er bara eitthvað alveg sérstakt við jólin; þakklæti, friður og kósíheit við kertaljós koma upp í hugann,“ segir Sólveig. „Mér finnst líka ein- staklega gaman að gleðja mína nánustu með gjöfum. Því sælla er að gefa en þiggja. Ég missti mig oft í jólagjöfum hér áður fyrr, sérstak- lega fyrir litlu börnin í fjölskyld- unni. Það er svo gaman að kaupa barnaföt. Maður þarf ekki að máta sjálfur og getur fríkað út sem stílisti. Núna er ég ekki jafn brjáluð í jólagjöfunum, þó ég gleymi mér stundum. Það er bara svo gaman að vera í hlutverki sveinka.“ Sólveig er litrík manneskja, skapandi og tónelsk með fjölbreytt áhugamál og öflugt ímyndunarafl. Hún er áhugaljósmyndari og finnst gaman að skrifa. Hún er grunn- skólakennari og kennir íslensku sem annað mál. „Til þess nota ég fjölbreyttar kennsluaðferðir, meðal annars með tónlist, leiklist, skap- andi skrifum og samræðum. Ég er með stórt hjarta og sterka réttlætis- kennd og þoli ekki þegar aðrir eru órétti beittir. Mannréttindi eru mér því hjartfólgin og frelsið til að fá að vera maður sjálfur.“ Sólveig er einnig söngkona. „Ég er að sjálfsögðu byrjuð að huga að jólalögum til að syngja á Tik Tok en þar set ég reglulega inn söngmynd- bönd. Endilega fylgið mér þar: @ sollasoulful.“ Jolla-Solla langspenntust Sólveig byrjar að hlakka til jólanna undir lok sumars. „Þá kemur fyrsta tilhlökkunin, því þá fer að líða að hausti og loks jólum, í mínum huga, sem hraðspólar stundum áfram. Þegar -ber mánuðirnir líta dagsins ljós, sérstaklega þegar fer að dimma og kólna, þá sé ég fyrir mér fannhvíta jörð og ljósadýrð.“ Sólveig er ekki eina jólabarnið á heimilinu. „Á jólunum í Covid faraldrinum vorum við sambýlis- maðurinn minn ein heima. Hann gaf mér sjö gjafir en með hverri þeirra fylgdi kort með vísbendingu fyrir næstu gjöf og koll af kolli. Hann faldi gjafirnar úti um alla íbúð svo það fór talsverður tími í leitina og úr varð skemmtilegur vísbendingaleikur.“ Sólveig er þó langspenntust fyrir jólunum af vinum og fjöl- skyldu. „Flestir í fjölskyldunni eru slakari og byrja ekki að hlusta á jólalög fyrr en í desember. Það er líka allt í lagi, sko. Ég keypti mér nýverið jólasveinabolla til að hafa í vinnunni. Nokkrir fengu sjokk og háfleygar setningar eins og: „Ertu brjáluð, það er bara nóvem- ber“ voru látnar falla. Ég blæs á svona athugasemdir. Það er korter í desember! Ég þarf sko ekki á þess- ari neikvæðni að halda. Þegar ég finn einhverja Skröggsstemningu, bý ég bara til mína eigin jóla- búbblu. Ég fæ líka smá kikk út úr því að þjófstarta og er reglulega kölluð jolla-Solla af fjölskyldunni.“ Jólatónar í september Sólveig er á þeirri skoðun að það Hlýtt í hjartanu í desember Sólveig situr fyrir með uppáhaldsjólaskrautinu sínu. Fréttablaðið/anton brink Sólveig hefur elskað jólin allt frá barnæsku og finnur enn fyrir barns- legri gleði og eftirvæntingu þegar mánuðirnir sem enda á -ber líta dagsins ljós. Mynd/aðsend Uppáhaldsjólalög Sólveigar Last Christmas Wham All I want for Christmas is you Mariah Carey All Alone on Christmas Darlene Love Christmas vacation Mavis Staples Happy Xmas (War is over) John Lennon og Yoko Ono It´s the most wonderful time of the year Andy Williams Blue Christmas Elvis Presley Santa Claus is Back in Town Elvis Presley Gleðileg jól Hljómar Þú komst með jólin til mín Ruth Reginalds og Björgvin Halldórsson Make it to Christmas Alessia Cara A Legendary Christmas John Legend „... einstaklega áhugaverð og aðgengileg bók.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrum utanríkisráðherra Gefðu þekkingu í jólagjöf obs.is Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Jólakjólar Hér er uppskrift að hreindýri úr klósettrúllu. Efniviður í hreindýr: 1 klósettpappírsrúlla blýantur/penni skæri litir Byrjaðu á því að fletja kló- settrúlluna alveg út. Teiknaðu útlínur hreindýrsins á útflatta kló- settrúlluna. Best er að nota blýant svo hægt sé að stroka út útlínurnar eftir að búið er að klippa út eftir útlínunum. Athugaðu að flóknast er að klippa út hornin og eyrun svo það borgar sig að teikna þau upp nokkuð einföld. Beygðu rúlluna næst út í sporöskjulaga form þar til hreindýrið getur staðið á löppunum. Beygðu svo höfuðið út og hornin svo þau standi upp í loft. Ef hornin klippast óvart af er einfaldlega hægt að klippa út ný og líma þau á. n Hátíðleg klósettrúllu-hreindýr 56 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.