Fréttablaðið - 02.12.2022, Page 118
Jóladýrin
eru oft
tákn fyrir
leifar
heiðinna
jólasiða
sem hafa
tekið
stökk-
breyting-
um í tím-
ans rás.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur
@frettabladid.is
Jóladýr
og jólaódýr
Fréttablaðið/ getty
Rauðbrystingur
Rauðbrystingur er boð-
beri góðra kveðja um jólin
en þessi litríki smávinur
lífgar upp á veturinn,
einkum þegar hjarn hylur
jörð.
Hreindýr
Hreindýr eru svo jólaleg
að um allan heim tengir
fólk þau við jólahátíðina.
Þau hlutu þennan sess
þegar í ljós kom að þau
draga sleða jólasveinsins
Dýravinir hafa til mikils að hlakka
um jól því þá skríða úr híði sínu
dásamleg og einstök jóladýr.
Auðvitað geta öll dýr verið jóla-
dýr en sum eiga meira tilkall til
hátíðar ljóss og friðar en önnur.
Flest tengjast þessi dýr vetrinum
á norðurslóðum, snjó og kulda,
enda flest fylgifiskar einhverra
jólavætta.
Hér má auðvitað fyrst telja hinn eina sanna ramm
íslenska jólakött sem færir ekki gleði í hjörtun nema
síður sé. Þetta óbermi étur fátæk börn en er samt
svo heillandi og ógnandi í senn að hann á sér fastan
samastað í jólavitund Íslendinga.
Jólahafurinn á sér lengri sögu en IKEA, en hann er
talinn vera upprunninn í hugmyndinni um slátur
dýrið sem fórnað var í heiðnum sið til að tryggja að
sólin sneri aftur á vetrarsólstöðum. Einnig er hann
talinn vera skyldur höfrum Þórs þrumuguðs, Tann
grisni og Tanngnjóstri. Jólavera í hafurslíki gekk um
á aðfangadagskvöld í Svíþjóð á átjándu öld og stríddi
fólki og sníkti jólagóðgæti en seinna varð jólahafur
inn sá sem kom með jólagjafir til
góðra barna.
Hreindýr hafa verið tengd
ameríska jólasveininum alveg
síðan kvæðið ástsæla um Kvöldið
fyrir jól (Twas the night before
christmas) eftir Clement C. Moore
kom út árið 1823. Þar eru talin
upp átta hreindýr sem draga sleða
jólasveinsins þegar hann flýgur
frá Norðurpólnum og árið 1939
bætist Rúdolf með rauða trýnið
í hópinn, eftir ákveðnar þreng
ingar. Hreindýr þrífast best í köldu
loftslagi og því fer jólatengingin
þeim vel.
Rauðbrystingur er vinsælt
skraut á jólakortum og jólapappír
úr hinum enskumælandi heimi.
Þessi vinalegi smáfugl er oft á
vappi á túnum og í görðum yfir
vetrarmánuðina og skærrauð
bringan gefur lífinu lit í vetrar
grámanum. Rauðbrystingar birtust fyrst á jólakort
um um miðja nítjándu öld og hafa verið tengdir við
póstburðarmenn sem klæddust rauðum frökkum
og voru oft kallaðir rauðbrystingar af þeim sökum.
Á myndunum eru fuglarnir oft með lítil umslög eða
gjafapoka í goggi, sem ýtir enn undir jólatengslin. n
jólakötturinn
Þið kannist við
jólaköttinn,
sá köttur var
gríðarstór...
Jólageitin
Jólageitin á rætur
að rekja langt aftur
fyrir kristni og er
talin tákna fórnar-
dýr sem færð voru
gyðjunni til að
tryggja að vorið
kæmi á ný.
96 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022