Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 123
7. desember
miðvikudagur
n Hildigunnur Einarsdóttir
syngur inn jólin kl. 12.15
Salur tónlistarskóla Garða-
bæjar
Tónleikarnir verða nokkurs konar
hádegisandakt svo eins víst er að
gestir muni svífa út. Meðleikari
er Guðrún Dalía Salomónsdóttir
og aðgangur er ókeypis.
n Dónajól með Bergmáli
kl. 20.00
Gaukurinn
Dömurnar sem skipa hljóm-
sveitina Bergmál stíga á svið og
gera það sem þeim einum er
lagið og heilla áhorfendur með
unaðslegum söng, fáránlegri
fyndni og fallegri tónlist.
n ADHD tónleikar 20.30
Húrra
Hljómsveitin er nýkomin heim
úr Evróputúr.
n Jól og næs kl. 20.30
Salurinn, Kópavogi
Jónas Sig, Ragga Gísla, Hildur
Vala, Jón Ólafs og Ingibjörg
Turchi skemmta áhorfendum
með uppáhaldsjólalögunum og
lögum úr eigin smiðju. Tónleikar
miðvikudag, fimmtudag og
föstudag.
8. desember
fimmtudagur
n Dragróbatík með Enter Sere-
nity kl. 19.45
Kramhúsið
Ástralska sirkusdragdrottningin
Enter Serenity kennir drag-
sirkustíma. Unglingatími verður
á laugardag.
n Jólin á Uppi
Hvar
DJ Karitas úr Reykjavíkurdætrum
spilar frá 20.00 og Grand Marnier
kokteilaseðillinn í boði þar sem
allir kokteilar eru á 1.500 kr.
n Mæðraveldið & DJ Kocoon
kl. 20.00
Lemmy
Tónleikar
sem eru
frábært
mótvægi
klassískra
jólatónleika.
Aðgangur er
ókeypis.
Hvað er um að vera í næstu viku?
SælkerinnBergþór Pálsson er
löngu byrjaður að baka fyrir
jólin og rifjar hér upp góð ráð
fyrir jólabaksturinn.
n Notið smjör við herbergishita.
Ef það kemur beint úr ísskáp
er best að skera það í bita og
geyma á diski meðan önnur
innihaldsefni eru tekin til.
n Notið egg við herbergishita.
Ef þau koma beint úr ísskáp
má setja þau í skál með vel
volgu vatni úr krananum í 10-15
mínútur.
n Þeytið smjör og sykur vel, „ljóst
og létt“ þýðir ekki skemur en 10
mínútur.
n Þeytið egg og sykur hægt (eða
rauður eða hvítur, til dæmis
í eggjahvítutoppa), lengi vel
framan af. Það liggur ekkert á að
setja á mesta hraða. Þetta er til
að sykurinn bráðni.
n Gætið þess að hveitið sé rétt
mælt í bolla. Fyllið bollann með
skeið og leyfið hveitinu að vera
létt. Ef við troðum bollanum
ofan í hveitipokann og ýtum
jafnvel á eftir, verður hveitið of
mikið. Samt er ágætt að hafa
mikið hveiti í piparkökuhús,
enda eru þau sjaldnast borðuð.
n Kælið deigið í ísskáp a.m.k. í
4 klukkustundir, en gjarnan í
tvo sólarhringa. Smjörbragðið
kemur þannig betur fram. Á jóla-
föstu getur verið ágætt að eiga
deig í plastfilmu (í lengjum, það
verður hart og svolítið dónalegt
útlits, en hentugt til að skera
niður) og baka á hverjum degi
splunkunýjar smákökur. Smá-
kökur eru bestar nýjar. Þetta
á auðvitað ekki við um eggja-
hvítukökur, sem eru bakaðar
strax.
n Chili-leyniráðið. Súkkulaði og
chili fara einstaklega vel saman í
kökum. Örlítið chili galdrar fram
enn meira sælubragð.
n Gott er að setja salt í deigið
ef um sætar kökur er að ræða.
Þannig verður bragðið meira.
n Súkkulaði er missætt. Best er
að nota dökkt alvöru súkku-
laði (65-75%). Mjólkursúkkulaði
er sætara, ef það er notað er
óhætt að draga úr sykrinum.
n Bökunarofninn þarf að hafa
náð því hitastigi sem gefið er
upp áður en það sem á að baka
er sett inn í hann. Ofnar eru
misjafnir og því getur
verið erfitt að gefa upp
nákvæman tíma á
bakstrinum. Tíminn
sem er gefinn upp
er oftast til við-
miðunar, ekki er
óalgengt að það
muni nokkrum
mínútum til
eða frá.
n Hafið hitann ekki of háan,
einkum á þykkari kökum.
„Betra er að baka lengur við lægri
hita en brenna“, er splunkunýr
málsháttur í íslenskri tungu, sem
hrökk út úr svekktum gaur á Lind-
argötu. Gott er að prófa að baka
eina köku fyrst áður en heil plata
er eyðilögð. Lítið einnig í ofninn
tveimur til þremur mínútum áður
en sagt er í uppskriftinni. Oft eru
smákökur fullkomnar þótt þær
virðist varla bakaðar að ofan, en
ef þær eru bakaðar í 1-2 mínútur
í viðbót, brenna þær að neðan.
Athugið að ofnar eru ótrúlega
misjafnir og yfirleitt
lítið að marka
uppskriftir fyrir
þinn ofn.
Svo er bara
að spila ljúfa
tónlist, setja á sig
svuntuna og byrja
baksturinn með
bros á vör. n
Bökunarráð Bergþórs
Late Night Fiesta Eldhúsið okkar er opið til
miðnættis föstudaga og laugardaga
treslocos.is
n Skrítin staðreynd vikunnar
Blóði drifnir jólastafir
Hinir fallegu piparmintu-
stafir sem margir skreyta
jólapakkana með eða
hengja á tréð voru fyrst
búnir til í Þýskalandi.
Lagið á þeim er J – fyrir
Jesús, og rauði liturinn
táknar blóð hans. Jóló.
ALLT kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 2. desember 2022