Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Page 4

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Page 4
V A K A 2. árg. . Júlí-sept. 1939 Þrennt liggur til grundvallar. að liggur aðallega þrennt til grundvallar fyrir henni (þ. e. till. til þingsályktunar um þegn- skylduvinnu). í fyrsta lagi það, að kenna öllum landsmönnum þýðing- armikla vinnu; í öðru lagi miðar hún að því að venja þá við reglu- bundna stjórn, og í þriðja lagi er tilgangurinn með henni að rækta landið og bæta. Hér er um gagn- legan, verklegan skóla að ræða fyrir þíóðina, skóla, sem oss vantar til- finnanlega, skóla, sem allir karlar á landinu undantekningarlaust eiga að læra í mjög þarflega landvinnu, skóla, er styrki og æfi taugar og vöðva þeirra manna, er eigi hafa vanizt líkamlegri vinnu, skóla, er veiti sjómanninum þekkingu á að rækta jarðarblett kringum húsið sitt, og glæði áhuga hans á að gera það. Hermann Jónasson á Alþingi 1903. rétt handtök, góða ástundun og hæfilegan röskleika. Til líkamsæfinga gangi 2 klst. Áherzla lögð á sund, sem allir læri. Pyrsta starfið við hverja aðalvinnu- stöð sé að útbúa gott sundstæði. Má eigi dvelja til lengdar nema þar, sem það er framkvæmanlegt. Vinna sú, er gengur til að koma upp góð- um sundstæðum, er mikilsvirði fyrir þau héruð, sem geta notið þeirra... Til hreinlætis og þjónustubragða ganei 1 klst. undir nánu eftirliti og tilsögn kennara. Til fyrirlestra og umræðu um það, sem kennt er, gangi 1 klst. Áherzla einkum lögð á aflfræði, útskýring á verkfærum, jarðrækt, þrifnað og aðra háttsemi. Til borðhalds og frjálsra afnota gangi 4 klst. Svefn 4 klst. Hermann Jónasson. (Andvari 1908.) „Demokratisk“ þýffing. ö érsiaklega vil ég leggja áherzlu ^ á þá miklu demokratisku þýð- ingu, sem slík þegnskylda hefði í för með sér; þetta, að ráðherrason- urinn verður að liggja við hliðina á kotungssyninum í tjaldi uppi á heiðum og starfa að líkamlegri vinnu í landsþarfir, það álít ég vera sérstaklega affarasælt. Ég vil ekki draga úr því með því að leyfa mönnum að kaupa sig lausa undan þegnskylduvinnunni, eins og til- lagan fer fram á; það eitt, ef ein- hver er óverkfær aumingi getur undanþegið. Þórhallur Bjarnajson á Alþingi 1903. Þegnskyldan í framkvæmd. Tjl yrirkomulaginu má haga marg- víslega, og er bezt að reynslan skeri úr því, hvað hentast er. Ég vil þó benda á það, sem einkum hefir vakað fyrir mér. Tíminn skiptist í 3x8 klukkustundir í sól- arhring, er notist þannig: Til vinnu gangi 8 klst. Áherzla einkum lögð á reglubundna stjóm og lipra tilsögn, hagkvæm verkfæri, Þýffingarmikiff spor í þjóffaruppeldinu. 'C'g hefi getið þess, að fyrir mér væri þegnskylduvinnan þýðing- armikið spor í sjálfu þjóðaruppeld- inu. Hún á að fylla upp í eyðu bók- skólanna okkar. Kenna ungu fólki aö vinna undir heilbrigðum aga og tengja hugi æskumannanna við hið starfandi líf þjóðfélagsins... Gull skapgerðarinnar verður að minnstu leyti unnið úr bókum og lexíum. Það verður að vinnast úr hinu harða grjóti reynslunnar sjálfrar og stælist við eld og ís þess lífs, sem ekki er eintómt meðlæti, ekki eintóm réttindi en engar, eða fáar skyldur... Þegnskylduvinnan á ekki að vera nein bráðabirgðar atvinnuleysis- og kreppuráðstöfun. Hún á að vera djarflegt menningar- spor stigið fyrir ókomna tímann, fyrir ókomnar aldir, og vissulega væri það gleðilegt tímanna tákn, ef æskan sjálf ætti nú höfuð frum- kvæðið að því, að þetta spor yrði nú stigið. Hannes J. Magnússon. (Tíminn 1939.) 162

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.