Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Qupperneq 19

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Qupperneq 19
2. árg. . Júlí-sept. 1939 V A K A brautum, rafstöðvum og sporvögnum, hefir verið hörð. Hafði hann þá hug- mynd að koma upp ýmsum slíkum fyr- irtækjum, er væru eign hins opinbera til þess að sýna hve mikill sá eiginlegi framleiðslu- og reksturskostnaður væri. Hundi það þá verða erfitt fyrir félög þau, er rækju samskonar fyrirtæki að forsvara of háa taxta með því að hylja gróðann með alls konar brögðum. En vegna ýmiskonar mótspyrnu hafa fram- kvæmdirnar dregizt. Eins og áður er getið um, lét Roose- velt hefja' atvinnubótavinnu strax þeg- ar hann kom til valda, og var sérstök yfirstjórn sett á laggirnar til að annast um framkvæmdirnar og fjárframlögin til þeirra voru yfir 3 miljarða dollara. En þrátt fyrir það, þótt tímarnir bötnuðu og nýtt líf kæmi í atvinnuvegina gengu þó alltaf miljónir manna atyinnulausir, og 1935 var aftur varið .£>, miljörðum dollara til atvinnubótavinnu. Það merkilegasta í löggjöf Roosevelts viðvíkjandi verkamönnum eru ákvæði, er veittu verkamannafélögunum full réttindi sem samningsaðila við vinnu- veitendur í launadeilum. í svo að segja öllum löndum Evrópu hafa þessi rétt- indi verkamannafélaganna verið viður- kennd fyrir löngu, en í Bandaríkjunum fyrst þegar áðurnefnd lög voru sett. Marka þau því tímamót í sögu verka- lýðshreyfingarinnar þar. Áður var meiri hlutinn af verkamönnum ófélagsbund- inn, en síðan hefir mikill fjöldi verka- manna streymt inn í félögin, og þó sér- staklega meðan á verkfallaöldunni stóð, á árunum 1933—34. Hin mikla verkfallsalda gerði það að verkum, að Roosevelt reyndi að koma á vinnudómi til að miðla málum, en um virkilega vinnulöggjöf var þó ekki að ræða, heldur einungis tilraunir, sem enn- þá eru á byrjunarstigi. Árið 1935 gerði Roosevelt tilraun til að koma á atvinnuleysis- og ellitrygging- um fyrir öll Bandaríkin (Social Security Act). En lög þessi eru ennþá mjög ófullkomin og erfitt að framkvæma þau, nema stjórnarskránni verði breytt. IV. Stjórnarskrá Bandaríkjanna er sam- in fyrir hér um bil 150 árum síðan, þeg- ar aðalatvinnuvegur þjóðarinnar var landbúnaður og hin ýmsu ríki höfðu lítil verzlunarsambönd sín á milli. Var því löggjafarvaldið í atvinnumálunum að hér um bil öllu leyti lagt undir þing hvers ríkis, en sambandsþingið og sam- bandsstjórnin hafði lítið að segja. Síð- an hefir stjórnarskránni ekki verið breytt neitt að ráði, enda þótt þjóð- félagsástandið sé nú orðið gjörólíkt því, sem það var þá. Hæstiréttur hefir vald til þess að dæma um það, hvort lög þau, sem sambandsþing ríkjanna setur, séu í samræmi við stjórnarskrána eða ekki, og ef einhver lög dæmast að stríða á móti henni, falla þau úr gildi. Er því afarmikið undir Hæstarétti komið, hvort hægt er að gera nokkrar verulegar laga- breytingar. Á síðustu 50 árum, eða síðan fór að verða þörf fyrir allsherjarlöggjöf um atvinnumál og þvíumlíkt, hafa allt- af annað slagið risið deilur um lög- gjafarvald sambandsþingsins. Deilurnar, er risu um löggjöf Roosevelts, the New Deal, eru því ekkert nýtt fyrirbæri í sögu Bandaríkjanna. Neyðarástandið í landinu olli því, að Roosevelt fékk óvenjulega mikil völd í hendur, er hann tók við stjórninni. Urðu margir andstæðingar hans skelkaðir við aðgerðir hans og skoðuðu þær sem til- raunir til þess að gerast einvaldur. Heimildir þær, er þingið gaf honum til að skipa ýmsum málum eins og honum sýndist, voru af mörgum taldar vera í andstöðu við anda stjórnskipulaganna. Hin mikla fjölgun embættismanna og annarra starfsmanna, er stóðu í þjón- ustu sambandsstjórnarinnar, var líka talin hættuleg, þar eð allur þessi fjöldi yrði verkfæri í höndum forsetans í bar- áttunni fyrir einræðinu. En þingið og stjórnin varði gerðir sínar á þeim grundvelli, að þær væru óhjákvæmilegar, til þess að ráða fram úr vandræðum og velferð almennings væri hæstu lög. En hæstiréttur var hér alls ekki samdóma Roosevelt og fylgis- 177
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.