Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Síða 24

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Síða 24
V A K A 2. árg. . Júlí-sept. 1939 þjóðhagslegu sjónarmiði er sjálf- sögð og eðlileg. Það er flutningur beggja menntaskólanna út í sveit. * Bæði hér og á Akureyri eru byggingar menntaskólanna svo gamlar og hrörlegar, að hús- rúm þeirra fullnægir alls ekki þeim kröfum, sem gerðar eru. Þær munu því á næstu árum verða reistar að nýju. í því sambandi ætti að stofna til happdrættis eins og fyrir háskólabygginguna. Aðsókn að þeim er nú svo mikil, að margir verða frá að hverfa. Er illt til þess að vita, því að æskilegt er að þeir fái að læra, sem hafa löngun og getu til. Veigalítil rök mæla með því, að endurbyggja skólana í bæjunum. Þeir eru ekki ætlaðir þessum tveim bæjum fremur en öðrum hlutum landsins og íbúar þeirra eiga ekki kröfurétt á hendur þjóð- félaginu um að sjá þeim fyrir góðum menntaskilyrðum fyrir börn sín á kostnað annarra borg- ara. Skólarnir í bæjunum eru ó- eðlilega kostnaðarsamir. Með því að hafa þá þar, eru aðrir borg- arar skattlagðir til þess að halda uppi þessari sérréttindaaðstöðu tveggja bæja. Skólana á auðvitað að starfrækja þar, sem það er heppilegast með tilliti til lands- manna í heild, en það er ein- mitt við góð skilyrði í sveit. Skóla- vistin yrði a. m. k. helmingi ó- dýrari á þann hátt. Skólarnir yrðu samskólar með heimavistum með líku sniði og Laugarvatns- skóli er nú. Húsnæði yrði ókeypis. 182 Dvalarkostnaður nemenda ætti ekki að þurfa að veröa hærri en 50 krónur á mánuði, að óbreyttu verðlagi. í Reykjavík er ekki hægt að komast af með minna en 100 krónur á mánuði fyrir fæði, hús- næði og þjónustu, og algengt er, að meiru sé eytt. Sést bezt á því munurinn. — Ef til vill gæti dval- arkostnaður á hinum nýju skól- um orðið enn minni, ef þeir rækju bú og framleiddu sjálfir kjöt, mjólk og allt grænmeti til neyzlu í skólunum. í þessum skólum yrði ólíkt betri aðstaða til náms og nemendurnir yrðu þar fyrir hollari uppeldis- áhrifum en í kaupstöðunum. Þar yrði hægra að útiloka vín og tóbaksnotkun úr skólalífinu. Heimavistirnar, sem minn ágæti skólameistari á Akureyri, Sigurð- ur Guðmundsson, taldi hverjum skóla nauðsynlegar,gefa skólanum tækifæri til gleggra eftirlits með nemendum en nú er hægt að koma við. Þær tryggja það, að nemendurnir séu algerlega undir handleiðslu kennaranna meðan á náminu stendur og forða ómótuð- um unglingum frá óteljandi freistingum bæjarlífsins. Þær skapa og tækifæri til kynningar og félagslífs meðal nemendanna innbyrðis, sem þeir hafa hverf- andi lítið af að segja í bæjarskól- unum. Skólarnir þurfa að standa á fallegum stöðum og frjósömum, svo langt frá bæjunum, að glaum- ur þeirra og glys nái ekki til að trufla hugi nemandanna við nám-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.