Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Side 27
2. árg. . Júlí-sept. 1939 V A K A
J. B. 8. Haldane:
, oXndanna
. ^
,V
l»að, §em ég* veltl
£ fyrir mér
cc w
Eftirfarandi ritgerð var skráð á skjal, sem
lagt var í hornsteininn að byggingu enska
stórblaðsins „Daily Express".
Eg er maður ham- s
ingjusamur. Flestir \
meðbræðra minna gegna <
störfum sínum fremur
til þess að vinna sér l.
brauð, heldur en vegna
starfsins sjálfs. Ég er líffræð-
ingur og þykir starf mitt svo
skemmtilegt, að ég get ekki
haft hugann við annað, stundinni
lengur. í dag hefi ég t. d. verið að
velta fyrir mér þremur viðfangs-
efnum. Ég hefi verið að hugsa um,
hvernig gerjun verkar, um erfða-
lögmál hjá „dahlíum"*) og um
hinar kynlegu breytingar,er verða
á taugakerfi mínu, þegar ég fell
í svefn, og helzt mætti líkja við
gangskiptingu í bifreið. Þessi við-
fangsefni hafa öll hagnýta þýð-
ingu: hið fyrsta og síðasta fyrir
læknisfræði og efnagerð, hið
annað fyrir aldinrækt, vegna þess
að svipuð lögmál virðast gilda
um dahlíur og eplatré.
En ef svo færi að fornfræðingar
komandi tíma skyldu rekast á
þetta skjal, þá myndu þeim ekki
þykja þessar spurningar merki-
legri heldur en flestum lesendum
*) Skrautjurtir af körfublómaættinni.
„Daily Express“ þykir þær nú á
dögum, því að eitt af tvennu mun
þá að líkindum verða fram kom-
ið. Ég vona að menning og vís-
indi hafi tekið framförum. Og þá
verða þeir, sem grafa upp, að
líkindum borgarar í Alríki þessa
heims og svörin við spurningum
mínum verða eins alþekkt og
hreyfingar plánetanna og starf-
semi hjartans eru nú á dögum.
En svo gæti líka farið, að við
hefðum hrapað niður í villi-
mennsku, og að þeir, sem þá búa
á rústum Lundúnaborgar, norðan
Tempsár, etji fjandskap við þá,
sem ráða löndum sunnan árinnar.
Ef svo væri komið, myndi þeim
heldur ekki þykja merkilegar
spurningar mínar. Þeir græfu þá
eftir fjársjóðum en hirtu ekki um
þessi blöð.
Þessi möguleiki er eitt af því,
sem ég er oft að velta fyrir mér,
því að það er mjög sennilegt, að
örlög menningar okkar verði ráðin
185