Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Side 33

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Side 33
2. árg. . Júlí-sept. 1939 V A K A miðað við það að treysta foringj- ann í sessi, gera hann sterkan, svo hann haldi velli gegn inn- lendum og erlendum andstæðing- um. Eitt aðfinnsluorð hefir fallið, og menn eru sóttir inn á heimil- in, hrifsaðir úr faðmi konu og barna, lokaðir inni í gaddavírs- fangelsum — þar til kannske eftir nokkrar vikur að nokkrir járn- gráir, þungstígir hermenn koma aftur á heimilið með líkkistu á milli sín og skýra frá því, að heimilisfaðirinn hafi framið sjálfsmorð. Síðan er haldinn vörður um líkkistuna, sem ekki má opna, þar til jarðarförin hefir farið fram. — Þetta er sönn saga, þó ótrúleg sé. Eitt aðfinnsluorð, sem njósnarar snapa upp — og heimilisfaðirinn er horfinn úr tölu hinna lifenda. Það er á þessum bakgrunni, sem við þurfum að líta á okkar eigið stjórnskipulag, svo það skiljist, hvað við höfum á unnið og hvað við höfum að vernda. Þegar svona fregnir berast frá löndum, sem við áður töldum menningarlönd, þá skilst oss að málfrelsi, félagsfrelsi og kosning- arréttur er enginn hégómi eða orðagjálfur, heldur öryggi vort og traust, sjálft andrúmsloft þess skipulags, sem við búum við. Við höfum mikla arfleifð að vernda, umburðarlyndi í umgengni, hóf í hegningum, íhlutun allra um stjórn og örlög lands og þjóðar. Við höfum engan páfa, sem tali með guðs rödd, — og svo hafi hinn syndugi lýður ekkert að gera ann- að en hlýða í auðmýkt og hugsun- arleysi. Nei, erlent einræði, hvort sem það er rautt, brúnt eða svart, er af austrænum uppruna, eins og öll grimmd og harðstjórn, en íslenzk þróun í skipulags- og þjóð- félagsmálum, er spunnin af há- norrænum toga. Heiðskír hugsun heiðninnar hefir hér á Norðurl. runnið saman við miskunn kristn- innar og myndað þau þjóðfélög, sem nú gnæfa hæst og eru til fyrirmyndar. Við höfum ekkert að læra af þeim, sem nú hafa stillt almanakinu aftur á miðaldir. Of- stækið er einnar ættar, hvort sem það birtist í trúmálum eða stjórn- málum og ofbeldið kúgar — en kemur engum til neins þroska. Það er ekki vandi að velja. Ann- arsvegar heróp og ofstæki, en hinsvegar er treyst á umræður, vit og þekking. Það er eins og að eiga að velja á mili berserks og spekings, milli Gríms ægis og Úlf- ljóts, sem setti hin fyrstu lög hér á landi. í einræðislöndunum er berserksgangur á stjórnmála- mönnum; njósnarar skjótast í jörð niður, koma upp í opna skjöldu og spúa eitri. En i lýð- ræðisríkjum á viðureignin að vera svipuð því, sem er í íslenzkri glímu. Það verður hvergi hjá við- ureign komizt milli ólíkra sjónar- miða, hagsmuna og geðsmuna — en viðureignin á að lúta réttum leikreglum, vera lipur og snörp, án þess að bolast, og hver glíma að enda með handtaki. Hin íslenzka glíma er vissulega ímynd hins fagra leiks. Frh. á bls. 233. 191

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.