Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Page 52

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Page 52
V A K A 2. árg. . Júlí-sept. 1939 uavio Jónsson: Kvæði þetta orti Dav- íð Jónsson á Kroppi í Eyjafirði 26. febrúar Til æskmmai* s.l. og flutti sama dag í afmælisfagnaði U. M. F. Framtíðin að Hrafnagili. JEska, ég hylli þig á þessum degi, þig, sem vilt ganga frjáls á manndómsvegi, örugg og sterk á hœli hopar eigi, hér þó við marga tálman stríða megi. Saga vors lands er stórra sigra saga, sársauka blandin þó um marga daga. Þolgœði, drenglund, ást til heimahaga, hugrekki í þrautum létti margan baga. Bjartsýna œska, meira Ijós um landið lœtur þú skina, treystir félagsbandið. Sveinar og meyjar, þér, sem verkin vandið, vökumenn þjóðar, hrœðizt ekki grandið. Réttláta œska, virð þú lög í landi, lýðfrélsis gœttu, þó að kaldan andi, hvarvetna bíður vegur þinn og vandi, verkefnin sýnast nœstum ótœmandi. Stórhuga œska, brjót þú byggðarfjötra, brenndu í eldi þínum vora tötra, hér má ei neinn í hcegðum sinum lötra, háðungarbikar ekki lengur sötra. Þjóðnytjastörf í kveifarskap ei kafni, konungleg hugsjón vakni mörg og dafni, framtiðin bendir, bjart er fyrir stafni. Baráttumerkið: fram í Drottins nafni. 210

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.