Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Page 70

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Page 70
VAKA 2. árg. . Júlí-sept. 1939 finna sem þig, dóttir mín?“ Svo andvarpaði hann aftur og taætti við með biturri rödd: „En þú kannt hvorki að lesa né skrifa! Nú á tímum virðist nauðsynlegt að konur kunni að lesa og skrifa.“ Nú heyrðist hátt og gremju- legt óp utan úr garðinum, þar sem drengurinn var aö leika sér. Undir öllum venjulegum kring- umstæðum hefði móðir hans tafarlaust skundað út í garðinn. En að þessu sinni hreyfðist ekki svo mikið sem einn dráttur í andliti hennar. Hún virtist ekki heyra til hans. Nú tók gamla konan til máls. Hún bar ótt á og talaði hátt. „En hvað vakir eiginlega fyrir honum? Við hverju býst hann? Jú, auðvitað veit ég, hvað þetta þýðir. Hann hefir kynnzt ein- hverri, sem honum lízt betur á. Þetta hefst upp úr þessum sigl- ingum til annarra landa.“ Gamli maðurinn lyfti hendinni til þess að gefa henni til kynna, að hún skyldi þagna. „Þú skilur þetta ekki, þú móðir sonar míns. Ef málavextir væru þessir, þá hefi ég að minnsta kosti ekki séð þessa konu. Enda benti hann á leið til að leysa þetta vandamál. Hann sagði: „Látið konu mína ganga á skóla um þriggja ára skeið. í hafnar- bænum er skóli, með útlendri for- stöðukonu, sem ég þekki. Fyrir mín orð ætti konan mín að geta fengið skólavist þar, enda þótt hún sé mjög óvenjulegur nemandi. Þar mundi hún læra að 228 semja sig að háttum nútíma kvenna. Hún lærir ekki aðeins að lesa og skrifa, heldur einnig hvernig hún á að kenna börnum sínum það, sem nauðsyn ber til að þau nemi.“ Nú var gömlu konunni nóg boðið. Hún fór að hlægja. Hlát- urinn var óstyrkur, skjálfandi. Yfir andlit ungu konunnar breiddist daufur roði og augu hennar stóðu full af tárum. „Það er hverju orði sannara, ég veit ekkert,“ sagði hún auð- mjúk. „Yuan hefir rétt fyrir sér. Hvernig ætti ég að hæfa honum? Ég skal ganga í skóla, fyrst hann álítur það nauðsynlegt. En fyrst verð ég að viðra loðfeldina og búa allt undir komu vetrarins. Að því búnu skal ég fara.“ Svo bætti hún við, og röddin bar þess vitni, hve órótt henni var innan brjósts: „Já, ég skal fara, fyrst hann vill ófrávíkjanlega að ég sé eins og allar hinar!“ En hvernig getur móðir horfið til baka í rás tímans og orðið ung stúlka öðru sinni? Hún sleit sig frá grátandi börnunum og sá hlið skólabyggingarinnar lokast á hæla sér. Henni var vísað á eitt rúm af mörgum í stórum svefnsal og sæti við eitt af borð- unum í skólastofunni. En hvern- ig átti hún að gleyma því, hver hún var? Að vísu voru ýmsir vingjarnlegir við hana, jafnvel hinir kynlegu útlendingar, sem henni fundust fráhrindandi vegna þess, hve hörundslitur þeirra var framandi. En hún lét

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.