Rökkur - 01.08.1930, Blaðsíða 5
ROKKUR
51
aðinum í Bretlandi, sem eins
og kunnugt er, á mjög erfitt
uppdráttar. Blaðakongurinn
Viscount Bothermere skrifar
um flokk þennan í Daily Mail,
og telur, að með flokksmynd-
un þessari sé verið að taka
stórt skref í áttina til endur-
reisnar breskum iðnaðargrein-
um; ef áformið hepnist, megi
svo að orði komast, að hér sé
um hervæðingu að ræða til þess
að berjast gegn því, að bresk-
ar iðnaðargreinar leggist i
auðn. Bendir hann á, að út-
flutningarnir fari sífelt mink-
andi; þannig hafi í janúar 1930
verið flutt út fyrir níu miljónir
sterlingspunda minna en í jan-
úar í fyrra, en innflutningar
erlends varnings aukist um
miljón sterlingspunda í janúar,
miðað við sama mánuð í fyrra.
—- Leiðtogar flokksins segja, að
flokkurinn sé stofnaður til f jár-
hagslegrar viðreisnar og í hann
séu menn og konur af öllum
floklcum velkomnir og hyggja,
að innan skamms verði flokk-
ur þessi öflugasti flokkurinn í
öllu Bretaveldi.
Leiðtogar gömlu flokkanna
láta sér auðvitað fátt um finn-
ast þessa flokksmyndun og
treysta því, að „flokksbönd"
sín haldi. Má vera, að draum-
ar Beaverbrooks og Rother-
mferes rætist ekki. Hinsvegar er
blaðavald þessara manna svo
mikið, en undir hlöðunum eiga
stjórnmálamennirnir hvað
mest gengi sitt nú á dögum,
að ekki mun of djúpt tekið í
árinni, þó spáð sé, að af stofn-
un flokks þessa kunni að leiða
víðtæk straumhvörf í bresku
stjórnmálalífi og atvinnulífi.
Stanley Baldwin
Og
„United Empire Party“.
Stanley Baldwin, fyrverandi
forsætisráðherra Bretlands, leið-
togi breska íhaldsflokksins, hélt
ræðu 3. mars, á fundi lands-
sambands brésku íhaldsfélag-
anna, og gerði m. a. að umtals-
efni stefnuskrá hins nýja breska
flokks, „United Empire Party“,
sem getið er liér að framan.
Nú var það kunnugt áður
en Mr. Baldwin hélt ræðu sína,
að „United Empire Party“ ráð-
gerði að bjóða fram menn til
þings í næstu kosningum Bret-
lands í sem flestum kjördæm-
um. „United Empire Party“ er
nánast íhaldsflokkur, þótt
margt skilji á milli nýja og
gamla flokksins, enda var ekki
farið dult með það, að nýi