Rökkur - 01.08.1930, Blaðsíða 14
60
ROKKUR
Indlandi stjórnarfarslega skift í
breska Indland (2.843.000 fer-
km. og 244 milj. íbúa) og ind-
versku ríkin (1.749.000 ferkm.
og 71 milj. íbúa). Stærri fylkin
hafa sín eigin þing (frá árinu
1920). Fylkjunum er aftur skift
í héruð og héruöunum í sýslur.
Allir breskir þegnar hafa jafn-
an aðgang að embættum, nema
æðstu embættunum, og eru
flestir embættismenn í landinu
Indverjar. Æðstu embættin
skipa innfæddir Bretar. Ind-
versku ríkin eru alls 700 og flest
lítil. Stjórnarfarslegt frjálsræði
í þessum ríkjum er takmarkað
á ýmsan hátt. Indlandsstjórn
hefir eftirlit með hermálum,
samgöngum og fjármálum.
IX.
Það þótti miklum tíðindum
sæta, að sjálfstjórnarmenn með
Gandlii í broddi fylkingar, hófu
„stríð“ á hendur breskum yfir-
völdum í Indlandi, til þess að
vinna að sjálfstæði Indlands.
Gandhi hefir alla tíð lagt ríkt á
það við fylgjendur sína, að beita
ekki valdi og vopnum í þessari
baráttu. Fyrir honum hefir það
sjálfsagt vakað, að sameina
Indverja um sjálfstæðiskröf-
urnar með því að taka þessa
stefnu, að hlýða ekki boðum og
banni breskra embættismanna
og brjóta lögin. Sjálfstjórnar-
menn eru tiltölulega fáir í Ind-
landi. Hefði Gandlii tekist að
vekja samúð allrar þjóðarinnar
og áhuga, hefði kannske farið á
annan hátt. Þá hefði breska
ljónið farið sér hægt, þvi jafn-
vel það vogar sér ekki að öskra
framan í heila, samhuga þjóð.
Bresk yfirvöld ákváðu að láta
Gandhi fara sínu fram, nema til
alvarlegra óeirða kæmi. Bretar
eru öllum hnútum kunnugir í
Indlandi og munu ekki hafa
óttast, að hugsjónamaðurinn
myndi áorka miklu í þessa átt.
Hinsvegar óttuðust þeir, að
hann myndi sjálfur ekki fá
neitt við ráðið fylgjendur sína
— og gáfu honum því nánar
gætur. Þeir handtóku þó ýmsa
fylgjendur hans og á meðal
þeirra son hans. Margir
fylgjendur Gandhi sitja nú í
fangelsi fyrir brot á saltlögun-
um. Og loks kom röðin að hon-
um. Hann situr nú í Yeroda-
fangelsi, við sæmilegan aðbún-
að, en mál hans er ekki tekið
fyrir. Vafalaust verður hann
hafður í haldi, uns kyrð er kom-
in á í landinu.Út um allan heim
höfðu menn búist við stórtíð-
indum, ef Gandhi væri hand-
tekinn. Það varð ekki. Óeirða-
samt hefir verið víða, en til
verulegra átaka hefir ekki kom-
ið. Deilan fer þó bersýnilega
harðnandi. Gandhi sjálfummun