Rökkur - 01.08.1930, Blaðsíða 8
54
ROKKUR
nema kannske um það bil og
menn eru að stíga upp í flug-
vél í fyrsta skifti. Og „Imperial
Airways“ á ekki lítinn þátt í því,
hve almenningsálitið hefir
breyst í þessu efni. Félagið er
samsteypa margra félaga, eins
og vikið var að hér að framan,
með höfuðstól, er nemur fimm
miljónum dollara. Sumir for-
stjóranna eru skipaðir af stjórn-
inni i Bretlandi, sem hefir íhlut-
unarrétt um starfsemina. Sir
Eric Geddes var kosinn forseti
félagsstjórnarinnar og það er
ekki minst honum að þakka,
hve starfræksla félagsins hefir
tekist giftusamlega.
Intlland.
i.
Austur í Indlandi eru að ger-
ast þau tíðindi, sem kunna að
verða fyrirboðar meiri og mark-
verðari tíðinda. Tiltölulega fá-
mennur flokkur manna í land-
inu, sem hefir sjálfstjórn Ind-
lands efst á dagskrá, hefir sagt
Bretaveldi „stríð“ á hendur. —
Foringi — eða réttara sagt aðal-
leiðtógi sjálfstjórnarmanna —
er ritliöfundurinn og stjórn-
málamaðurinn Gandhi. Hann
hefir sagt fyrir um, hvernig
heyja skuli stríð þetta, nefnil.
að engum venjulegum striðs-
vopnum verði beitt. Gandhi
treystir á önnur vopn og hættu-
legri. Hann treystir á mátt sam-
takanna. Og í hverju eru þá
samtökin fólgin? I stuttu máli
í þvi, að viðurkenna ekki stjóm
Breta í Indlandi og sýna bresk-
um yfirvöldum þar í landi ó-
hlýðni og óvirðihgu á ýmsan
hátt, að brjóta lög í mótmæla-
skyni, svo sem Bombay saltlög-
in, sem fyrirbjóða framleiðslu
og sölu einstaklinga á salti, og
með því að kaupa ekki og selja
erlendar vefnaðarvörur, sem
fluttar hafa verið til Indlands,
aðallega breskar. Að svo stöddu
verður engu um það spáð, hverj-
ar afleiðingarnar verða af bar-
áttu sjálfstjórnarsinna í ná-
inni framtið, en líkurnar eru
alls ekki miklar fyrir þvi, að
sjálfstjórnarsinnum verði mikið
ágengt fyrst um sinn, nema að
fylgi þeirra vaxi að miklum
mun, en vel má vera, að svo
fari. Hinsvegar eru þes^ir menn,
eins og á var bent, tiltölulega
fámennir enn sem komið er. Og
Bretar líta svo á, að ef Indland
fengi sjálfstjórn, væri framtíð
þess mikil hætta búin. Þar
myndi alt komast í bál og
brand. Og þeir benda til þess,
hvernig ástandið var í landinu,
er þeir fóru að „ráða þar og re-