Rökkur - 01.08.1930, Page 21

Rökkur - 01.08.1930, Page 21
67 ROKKUR Lahore og víðar, árásir á Ev- rópumenn voru tíðar og marg- ir þeirra voru myrtir. Hinir rót- tækari þingmenn Bretlands vildu slaka til, en ráðherra Ind- landsmála, Morley lávarður, var því mótfallinn að Indland fengi sitt eigið þing og heimastjóm, en hinsvegar var hann því hlynt- ur að valdsvið einstakra ríkja væri rýmkað. I desember 1908 bar hann fram lög um stjórn Indlands sem voru samþykt ár- ið eftir. Fengu Indverjar þá loks sæti í framkvæmdaráði vice- konungsins og fleiri kröfum þeirra varð framgengt, en það var þó langt í frá að þjóðernis- sinnar væri ánægðir, enda þótt litið væri á þetta sem skref í rétta átt. Þeir héldu því áfram baráttu sinni eftir sem áður. þóknast, án þess að mögla. Auk þess var lengi vel ekkert gert til að hjálpa þeim iðngreinUm, sem voru liklegar til þess að spilla fyrir sölu á breskum iðnaðar- vörum, t. d. baðmullarvörum og Englendingar, eins og raunar fleiri hvítar þjóðir, kunna lítt að dylja fyrirlitningu sína á hinum lituðu þjóðflokkum. En smám saman fjölgaði þeim, sem eigi vildu kúgast láta, þeim, sem vilja hefja Indland til vegs og virðingar, gera það að sjálf- stæðu riki eða ríkjasambandi, en eins og að framan hefir ver- ið bent á, hlýtur það að eiga langt í land. Þjóðernisbaráttan í Indlandi er ekki ný hreyfing. »,Indland fyrir Indverja“. Þessi einkunnarorð voru upp tekin þegar Swadeshi-baráttan hófst 1905, þá er Bengal hafði verið skift. Sjálfstjórnarhreyfingin hefir ekki hvað síst sótt þrótt til háskólanna og árlegar þjóðern- issinna samkomur hafa verið haldnar síðan árið 1885. Mark- mið þjóðemissinna er sjálf- stjórn (swaraj), að dregið verði úr útgjöldum til hersins og að iðnaður og verslun landsmanna fái fullnægjandi vernd. Árið 1907 voru miklar æsingar í Ind- landi og menn óttuðust alment Uppreist á borð við uppreistina 1857. Miklar óeirðir urðu í Calcutta, XII. í desember 1911 var George V. Bretakonungur krýndur Kaisar-i-Hind í Delili, sem þá var gerð að höfuðstað landsins í stað Calcutta. Bengal var nú aftur sameinað, en þá vakti það óánægju Múhammeðstrúar- manna. Á heimsstyrjaldarárun- um harðnaði enn barátta þjóð- ernissinna, einkanlega frá árinu 1916. Tilak og Gandhi börðust kröftuglega fyrir sjálfstjórnar- kröfunum og náðu meiri hluta á samkundu þjóðernissinna

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.