Rökkur - 01.08.1930, Page 48

Rökkur - 01.08.1930, Page 48
94 ROKKUfí v Biskuplnn af Canterhury og kynferSismálin. Það vakti eigi all-litla eftir- tekt, er erkibiskupinn af Canter- bury, Dr. Lang, gerði kynferðis- málin að umtalsefni í ræðu, er bann hélt í vor. Enska klerka- og biskupastéttin befir ekki til þessa haft það orð á sér, að vera víðsýn um slík mál, en svo er að sjá, sem þar sé breyting á að verða, þar sem svo merkur kirkj uböfðingi og erkibiskupinn mælir á þessa leið: „Eg hefi veitt því eftirtekt, að í stað þess að menn áður forð- uðust að ræða um kynferðismál- in, ræða menn nú um þessi mál ítarlega og frjálslega. Eg get ekki betur séð en að þetta sé framför, því að eg held að það liafi haft ill áhrif á ungu kyn- stóðina áður fyrr, að ekkert var um þessi mál rætt: að enga holla fræðslu var um þau að fá. Unga kynslóðin gerði sér því oft ó- heppilegar og spillandi liug- myndir um þessi mál — eða fékk „fræðslu“ um þau í vond- um félagsskap. Nú á dögum við- urkenna menn hina miklu þýð- ingu þessara mála og allir hugs- andi kristnir borgarar telja sér skylt, að hugsa alvarlega um alí það, sem þessi mál álirærir, því að þau snerta svo mjög velferð manna. Eg kýs heldur allar þær hættur, sem frjálsum umræðum um þessi mál kunna að vera samfara, heldur en þær hættur, sem þögninni eru samfara. Eg gleðst yfir því, að margar gaml- ar venjur og óeðlileg bönd eru rofin, svo að unga fólkið, pilt- ar og stúlkur, getur verið sam- an sem hreinskilnir félagar og jafningjar. Yér viljum ekki nú á tímum byggja trúarlíf vort á orðunum: „Þú skalt ekki —“. Hinsvegar verður að benda á það í þessu sambandi þegar rætt er um hið nýja frelsi, sem ríkir í samverunni milli ungra manna og kvenna að um miklar hættur er að ræða. Mönnum virðist nú létt að leita nautna, án þess að eiga á hættu margar alvarlegar afleið- ingar, sem fyrr á tímum liéldu í menn, en þegar út á nautna- sligu er komið, er hið holla, frjálsa samlíf æskulýðsins eitr- að. Það er öllum vitanlegt, að nú á tímum, einkanlega í stór- borgunum og í nánd við þær, er margt ungt fólk af háðum kynj- um, sem að því er virðist lifir á þann hátt, að í engu skerðist virðing þeirra, en í raun og veru oft og tíðum — og stundum stöðuglega — leyfir sér það, sem ungt fólk fyrr á dögum fyrir- varð sig fyrir og hafði oft liinar

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.