Rökkur - 01.08.1930, Síða 58

Rökkur - 01.08.1930, Síða 58
104 RÖKKUR eru ef til vill á hrakningi í skip- inu, og i bókasafninu eru þeir til óþæginda, þegar margir þeirra eru inni, og þegar skip fær nýjan og góðan skáp, þarf það að fá að njóta lians. Nýju skáparnir eru með járnhespum til að skrúfa þá fasta uppi á klefaþili í skipinu, og er þá ilt að þurfa að losa þá í hvert sinn. Verður þvi sú aðferð upp tek- in, jafnóðum og nýju skáparnir koma, að hafa þá kyrra í skip- unum, en flytja bækurnar á milli í pökkum, enda er það léttara og þægilegra fyrir skip- verja. Starfsfólkið í Alþýðubóka- safninu hefir haft margskonar fyrirhöfn og ómök vegna skipa- bókasafnanna. Fyrst við að út- vega skápana. Hefir það ekki altaf gengið stríðlaust, eins og atvinnumálum er háttað hér. Þá er að tína saman bækur í skápana og tvírita skrá yfir þær í hverjum skáp. Þá er að kenna bókavörðunum aðferð við út- lán, og halda skýrslu yfir skápa- lánin. Svo, þegar bókasöfnin koma úr láni, þarf að bera þau saman við skrá, taka það frá, sem talið er alveg ónýtt, og setja annað skárra í staðinn, og breyta skránum samkvæmt því, eða skrifa nýjar. Meðan hægt er að sinna þessu, er það ekki talið eftir, þvi að öllum, sem við það fást, er það áhugamál, að tilraunin hepnist sem best, en örðugt er, vegna annara anna, að kynnastbókavörðunumnægi- lega, og hafa þá samvinnu við þá, sem æskilegt væri. Eftir því, sem bókasafnið og notkun þess vex, vex einnig annríkið, og ef skipa-bókasöfn- in eiga þá framtíð, sem líkur benda til, rekur að því, fyr eða síðar, að auka verður lið í bóka- safninu vegna þeirra. Alþýðubókasafn Reykjavíkur hefir altaf selt lánsskírteini á 25 aura bvert og „dráttareyrir“ fyrir að halda bókum lengi, er 5 aurar á dag, sem fram yfir er 10 daga. Formaður bóka- safnstjórnarinnar, próf. Páll E. Ólason, hefir ráðið því, að hvor- um tveggja aurunum hefir verið safnað í sjóð. Þesi aurasjóður er nú orðinn um 10 þúsund krónur. Árið 1933 eða 34 vercí- ur hann orðinn 20 þús. krónur, eins og sá sjóður var, sem Al- þýðubókasafn Reykjavíkur var stofnað fyrir. Þá ætti að stofna sérstaka deild í safninu fyrir skipa-bókasöfnin. Fyrir aura- sjóðinn getur sú deild orðið al- veg eins myndarleg eins og Al- þýðubókasafnið sjálft var fyrstu árin, enda veitir ekkert af því. Skipin, sem þarf að sinna, geta orðið yfir 50, og skipverjar, sem bækurnar nota, geta orðið á

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.