Rökkur - 01.08.1930, Page 63

Rökkur - 01.08.1930, Page 63
R O K K U R 109 það hinn frægi stjórnmálamaSur, Sir Joseph Chamberlain (1836— 1914), sem mestu réði um stefnu stjórnarinnar, og varö það stjórn- inni aö falli. Eftir ósigurinn 1905 hafði Balfour sig minna í frammi en áður, og alt til þess tíma, er heimsstyrjöldin hófst. Hans gætti þó ávalt mjög í bresku stjórn- málalífi og alt fram á síðustu ár. Hann, átti á sínum tima mikinn þátt í því, að Bretar og Japanar gerðu meö sér bandalag og eins stuSlaði hann aS því, aS Bretar og Frakkar treystu vináttuböndin (entente cordiale). Þegar heims- styrjöldin skall á, var leitaS til þessa gamla og reynda stjórnmála- manns og tók hann að sér flota- málaráðherraembættiS í sam- steypustjórn Asquiths 1905. En 1916—1919 var hann utanríkiq- málaráSherra í ráSuneyti David Lloyd George o g var fulltrúi Bretlands viS gerS friSarsamning- anna í Versölum. Var hann því einn þeirra, sem skrifuSu undir friSarsamningana. Ýmsum trúnaS- arstörfum gegndi Balfour á síSari árum. Hann var t. d. fulltrúi Bretlands á flotamálafundinum í Washington, og var þaS hvaS mest Balfour aS þakka, aS árang- ur af þeirri ráSstefnu varS þó nokkur. Balfour var mjög fróSur um heimspeki og margar greinir bók- mentanna og skrifaSi ritgerSir og bækur um slík efni. Hann var hygginn og samviskusamur stjórn- málamaSur, „a gentleman" af gamla skólanum, svo höfS sé eftir orS eins breska blaSsins um hann látinn. Af bókum hans má nefna: „A Defence of Philosophic Doubt“, „Essays and Addresses“ og „Foundations of Belief“. Flotamálasamningnr. Eins og kunnugt er, var haldin flotamálaráSstefna í Lundúnum, sem hófst snemma á árinu, og lauk undir vor, meS þeim árangri, aS um allverulegar takmarkanir á smíSi stærstu herskipanna var aS ræSa. En þaS gekk erfiSlega aS ná sam- komulagi. Um tíma leit út fyrir, aS deilurnar milli ítala og Frakka myndi verSa þess valdandi, aS þeir skrifuSu ekki undir samninginn. En samkomulag náSist þó milli fimmveldanna um þaS er lauk. En samningurinn gengur ekki í gildi fyrr en þing allra fimmveldanna hafa samþykt hann (ratification). SamningsgerSin er af mörgum tal- in skref i friSaráttina og ýmsir mætir menn stórþjóSanna vinna aS því, aS samningurinn nái sarn- þykt þinganna, svo sem Ramsay McDonald í Bretlandi, Hoover

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.