Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Síða 9

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Síða 9
7 „En mér nægir nú þessi heimur“, sagði maðurinn og faðmaði að sér hina yndislegu og elskulegu konu sína, þar sem hann sat úti á opnum gluggasvölunum og reykti sér vindil í aftansvalanum, sem þrunginn var af angan gullaldina og nellikublóma; sönglist og smellir af handskellum heyrðust neðan frá strætinu; hið efra blikuðu stjörnurnar og tvö ástrík augu — augu konunnar hans hvíldu á honum og horfðu á hann með hinu eilífa lífi kærleikans. „Fyrir slíka mínútu sem þessa“, sagði hann, „er vel til vinnandi að fæðast, finna til og — hverfa“. Hann brosti við, konan lyfti upp hendinni, eins og hóglega ásak- andi — og skýið var aftur liðið hjá; þau voru svo sæl, að við sjálft lá, að það væri um of. Og það var eins og alt ætti að snúast þeim til vaxandi upphefðar, gleði og velgengni; og nú bar breytingu að höndum, en hún var aðeins á verustaðnum, en ekki að því er snerti lífsnautnina og ánægjuna. Ungi maðurinn fékk skipun um það frá konungi sínum, að fara sem sendiboði til keisarahirðarinnar í Rússlandi, og var það vegsauki, sem hann var vel að kominn fyrir sakir ættgöfgi sinnar og kunnáttu. Hann átti miklar eignir og ekki var það minna, sem hann átti með konunni, því faðir hennar var með ríkustu kaupmönnum á Spáni og hefðarmaður í sinni stétt. Hittist svo á, að eitt af stærstu og bestu skipum hans átti einmitt á þessu ári að fara til Stokkhólms og var nú afráðið, að það skyldi flytja dóttur- ina og tengdasoninn til Pétursborgar; var fyrirbúnaður allur á skipinu með konunglegri viðhöfn, mjúkar ábreiður undir fótum, silkitjöld og ljómandi prýði hvert sem litið var augum. Það er til gamalt miðaldakvæði, sem allir Danir munu kannast við. Það heitir: „Konungssonurinn frá Englandi". Hann siglir líka á dýrðlegu skipi, akkerið er gullsmelt og silkiþráður snúinn í reið- ann; það skip gat manni dottið í hug, þegar maður sá þetta skip 'eggja út frá Spáni, sama var viðhöfnin, sama hugsunin við skiln- aðinn: Guð láti oss öll í gleði hittast aftur!“ Hraðbyri blés af Spánarströnd og var ekki lengi verið að kveðj- ast. Þótti svo sem ekki mundi þurfa nema fáar vikur til þess að komast þangað, sem ferðinni var heitið, en er góðan kipp var kom-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.