Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Síða 28

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Síða 28
26 Málsvörn Jörgens var enginn gaumur gefinn; blóðdroparnir tveir á skyrtu hans báru órækara vitni gegn honum en svo; hann vissi með sjálfum sér, að hann var saklaus, og úr því hér væri engin leið til að hreinsa sig af sök, þá væri ekki annað fyrir en að una við ólán sitt. Þeir stigu á land á garðbrotunum, þar sem herragarður Búgges hafði staðið til forna; það var á þeim slóðum, sem Jörgen hafði farið með fósturforeldrum sínum í erfisveisluna, þar sem hann lifði sæludagana fjóra, sælustu daga barnæsku sinnar. Nú var hann aftur fluttur sömu leiðina yfir engið til Norður-Vorborgar, og enn var yllitréð í blóma og ilminn lagði af linditrjánum háu; honum fanst hann hafa verið þar í gær. 1 vestari álmu herragarðsbyggingarinnar eru undir tröppunum há göng, sem liggja niður í hvelfdan kjallara langt niðri, og hafði þaðan verið farið með Löngu-Möngu til aftökustaðarins. Hún hafði etið fimm barnahjörtu og hafði þá trú, að hefði hún fengið tvö í viðbót, þá mundi hún hafa getað flogið og falið sig manna sjónum. Loftsmuga lítil var á múrveggnum rúðulaus. Ekki fengu ilmríku linditrén úti fyrir sent þangað nokkurn hressandi blæ, alt var hrá- slagalegt og muggukent þar inni. Ekki var nema harður trébekkur til að hvílast á, en góð samviska er góður svæfill, og því gat farið vel um Jörgen. Fyrir fangelsinu voru ramgjörfar dyr og var þeim harðlæst og hleypt fyrir járnslám, en mara hjátrúarinnar þarf ekki nema skrá- argat til að skríða inn um, hvort sem það er á herragarði eða í fiskimannskofa og síst þurfti hún meira á þessum stað, þar sem Jörgen sat núna í varðhaldinu og var að hugsa um hana Löngu- Möngu og ódáðaverk hennar. Það vakti fyrir honum, að síðustu hugsanir hennar nóttina fyrir aftökuna höfðu fylt þennan klefa. Hann mintist alls þess trölldóms, sem hér hafði verið framinn í fyrri daga, þegar Svanwedel herramaður hafði hér aðsetur og svo lika þess, sem alkunnugt var, að hlekkjahundur sá, sem á brúnni stæði, fyndist á hverjum morgni hengdur á handriðinu. Alt þetta fylti huga Jörgens heljar hrolli, það var aðeins einn sólargeisli frá þessum stað, sem birtu bar í hugskot hans, og það var endur- minningin um fegurðarblóma yllisins og linditrjánna. Hann sat ekki lengi í þessu fangelsi, það var farið með hann til Hringkaup-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.