Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Page 43

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Page 43
41 bauð honum ekki að setjast í stólinn. Beiddi fiskimaður þá riddar- ann að taka ekki illa upp þessa ókurteisi konu sinnar, en hún hló við og mælti: „Hvað á þetta að þýða, blessunin mín! Gesturinn er þó víst kristinn og veit að únga fólkið á ekki að reka það gamla úr sæti. Þarna er lítill stóll og laglegur, setjist þér á hann, en var- lega samt, því einn fóturinn er bilaður“. Nú tóku þau þrjú tal saman og sagði riddarinn þeim, að hann ætti borg eina við uppsprettu Dónár og héti Huldubrandur frá Hringstöðum. Meðan þau sátu á tali, hafði riddarinn öðru hverju heyrt skvamp nokkurt á neðstu gluggarúðunum, eins og einhver skvetti á þær vatni og var ekki trútt um, að nokkuð gusaðist inn um gluggann, því hann var gisinn og fornfálegur. Fiskimaður ygldi sig í hvert skipti, en loksins hljóp hann út að glugganum og kallaði með þjósti: „Úndína! ætlarðu þá aldrei að hætta þessu barnæði? E*að er líka heldri maður hjá okkur í kofanum“. Varð þá kyrrt úti, nema dálítill hlátur heyrðist. „Það er hún Úndína fósturdóttir okkar“, mælti fiskimaður, „hún getur ekki vanið af sér bernsku órana, þó hún sé komin á átjánda árið; en hún er samt góð í sér, stelpan". ,,Þú mátt snöggt um tala“, sagði kona hans, „þú hefur haft gam- an af ólátunum í henni, þegar þú kemur heim af sjónum, en það er annað að eiga hana á hálsi allan daginn, — það reynir á þolin- mæðina“. „Það er nú svo“, ansaði fiskimaðurinn, „þér fer líkt við Úndínu °g mér við sjóinn, hann rífur opt sundur fyrir mér netin, en mér er samt vel til hans, og eins þykir mér vænt um hana, blessað barnið, þó hún sé stundum nokkuð óstýrilát. Er ekki svo?“ „Satt er það“, ansaði konan, „ómögulegt er að ala nokkra reiði til hennar“. I sama bili hrukku dyrnar upp og hoppaði inn gullfalleg stúlka hlæjandi; hún hafði glóbjart hár og blá augu. „Þú hefir narrað mig, íaðir minn!“ sagði hún, „hvar er nú gesturinn þinn?“ En í sömu andrá kom hún auga á riddarann og staðnæmdist frá sér numin trammi fyrir svo fríðum yngismanni. Riddaranum varð að sínu leyti eins starsýnt á fegurð hennar og leitaðist hann við að festa hina elskulegu ásjónu í huga sér, því hann hélt að það væri aðeins kynlegleik, að hún gaf honum kost á því, og mundi hún fljótt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.