Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Page 75

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Page 75
73 og því síður konu sína“. „Hvað gat þá komið þér til þessa undarlega uppátækis?“ spurði riddarinn með þjósti. „Eg vildi helzt segja þér það einslega", ansaði hún. Hún var svo blíð og elskuleg, að geisli hinnar fyrri ástar skein í hjarta honum; hann tók hana við hönd sér og leiddi hana inn í herbergi sitt. Þá tók Úndína þannig til orða: „Þú þekkir hann Kaldbrynni, föðurbróðir minn, og hefir hann optsinnis hrætt ykkur Bertöldu hér í höllinni. Til þess er sú orsök, að hann er sálarlaus einsog höfuðskepnan, sem hann er getinn af, hann speglar hið ytra, en hið innra getur hann ekki látið endur- skína. Hann sér að þér þykir stundum við mig og að eg er svo barnaleg að gráta af því; kann þá svo að bera undir, að Bertalda hlæi um leið og sé kát. Af þessu ærist hann og slæst óboðinn i fylgd með okkur. Hvað stoðar það að eg atyrði hann eða vísi hon- um burt í reiði? hann trúir mér ekki. — Æfi hans er hin tómleg- asta og hann hefir ekkert hugboð um það, að sorgir og unaðsemdir elskunnar eru svo nátengdar, að enginn fær þær sundur skilið, — því grátendur hlæja og hlæjendur gráta“. Hún leit nú til riddarans og hló með tárin í augunum, en hann fann þá á sér að hinar fornu ástir endurlifnuðu í hjarta hans. Ún- dína sá það á svip hans, vafði sig fastara að honum og sagði við hann með gleðitárum: „Þegar eg gat ekki vísað friðarspillinum burt með orðum ein- um, þá varð eg að loka leið fyrir honum, en brunnurinn er sá eini vegur, sem honum er fær til okkar. Þessvegna lét eg velta stein- inum fyrir brunninn og ritaði á hann stafi, sem hnekkja öllum rnætti hans, svo að hann getur hvorki grandað okkur né Bertöldu. En allt fyrir það geta menn velt steininum og viljir þú láta að orðum Bertöldu, þá gerðu það. En hún veit ekki hvers hún biður, því á hana hefir Kaldbrynnir einkum lagt hatur sitt, og ef nokkuð rættist af því, er hann hefir spáð mér, sem vel mætti henda, þó þér ekki gengi neitt illt til, — þá mundi þér líka vera hætta búin, elsku vinur!“ Huldubrandur viknaði af göfuglyndi konu sinnar, vafði hana í faðm sér og mælti: „Steinninn skal vera kyrr og allir skulu lúta þínum vilja, elsku barn!“ En hún varð sárfegin blíðmælum hans, er hún svo lengi hafði farið á mis við, og sagði við hann með ljúf- ustu ástar atlotum: „Kærasti, bezti vinur! nú bið eg þig einnar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.