Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Blaðsíða 79

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Blaðsíða 79
77 lengra dró ofan eptir fljótinu. En rétt sem þau voru farin að hafa sem mest yndi af fegurð náttúrunnar, þá fór Kaldbrynnir aptur að gera vart við sig. Reyndar var það ekki nema smáglettni, því Úndína tautaði opt hljóðlega niðrí öldugánginn með þykkju svip og gerðist þá allt kyrrt, en það var ekki nema stundarfriður, því ólætin byrjuðu undireins aptur á nýjan leik og spillti það allri skemmtun þeirra. Urðu ferjumennirnir hræddir og stúngu saman nefjum; var ekki trútt um að þeim stæði beigur af ferðafólki því, er þeir höfðu innanborðs. Hugsaði Huldubrandur þá opt með sjálf- um sér: „Það er því að kenna, að ekki sækjast saman líkir“, og er ekki von á góðu, þegar mennskur maður gengur að eiga hafmey“. Úndína sá útúr honum óánægjuna og fékk það henni mikillar sorg- ar, gerðist hún svo mædd og þreytt af áhyggjum sínum og hinu sífellda stríði, er hún átti í við Kaldbrynni, að þúngur svefnhöfgi rann á augu hennar um kvöldið. En rétt sem hún var sofnuð, sýndist öllum á skipinu, hvert sem litið var, einsog afskræmislegt mannshöfuð gægðist upp úr öld- unum, ekki einsog þegar maður syndir, heldur vissi andlitið upp, líkt og það stæði fast á staur í vatninu, en rak þó með straumnum jafnótt og skipinu skilaði áleiðis. Benti hver öðrum á þann haus- inn, er hann sá, og sáu þeir þá allt í einu öll skrímslin og urðu dauð- hræddir. Gerðist óp mikið svo að Úndína vaknaði, en þá samstundis hvarf allt saman. Huldubrandur var uppvægur af heipt og var að honum komið að rjúka upp með fáryrðum, en Úndína hvíslaði í eyra honum og mælti: „Fyrir guðs sakir, talaðu ekki til mín í reiði, því hér erum við úti á vatninu“. Hann þagði og sat þúngt hugsandi. „Ætli það væri ekki bezt, elsku vinur!“ sagði Úndína eptir langa þögn, „að við slepptum þessari óláns ferð og snerum heim aptur til Hríngsaða?" „Á eg þá“, sagði Huldubrandur önuglega, „að lifa einsog band- íngi í borg minni og ekki mega um frjálst höfuð strjúka nema með- an brunnurinn er byrgður? Þá vildi eg að bannsett frændfólkið". — Meira sagði hann ekki í það skipti, því Úndína tók hendi sinni fyrir munn honum, hann þagnaði og leit út í hött með ólundar svip. Bertalda gat nú margs til í huga sínum um þetta. Hún vissi nokkur deili á ætterni Úndínu, en Kaldbrynni þekkti hún ekki og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.