Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Page 102

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Page 102
100 vakna, en þegar mók seig á hana aftur dreymdi hana ógurlega drauma. Fyrst dreymdi hana, að faðir hennar kæmi, þegar hún var nýsest í sleðann, drægi hana á brott og kastaði henni fram af hyldýpis barmi. Þar næst dreymdi hana, að Wladimir lægi blóð- ugur á snævi þaktri jörðunni. Hann var að dauða kominn og sár- bændi hana að giftast sér áður en allt væri um seinan. Aðrar draumsýnir, sumar hinar ógurlegustu, komu hver á fætur annari. Og loks reis hún á fætur fyrr en vanalega og hafði mikinn höfuð- verk. Nú þurfti hún ekki að gera sér upp höfuðverk. Foreldrar hennar tóku eftir, að hún var ekki eins og hún átti að sér og spurðu hlýlega og af viðkvæmni: „Hvað gengur að þér, Masha? Ertu lasin, Masha?“ Þessar spum- ingar bökuðu henni sársauka. Hún reyndi að láta sem ekkert væri og vera kát og glöð, en tókst það ekki. Og loks var dagur að kveldi kominn. Tilhugsunin um, að þetta væri seinasti dagurinn í heimaranni, lagðist þungt á hana. Hún var föl sem nár. Og í hátíðlegri þögn kvaddi hún allt, sem henni var kært. Alla, sem í kringum hana voru, allt, sem í kringum hana var. Kvöldverður var á borð borinn. Hún hafði ákafan hjartslátt. Titrandi röddu sagði hún, að hún hefði ekki neina matarlyst. Svo bauð hún foreldrum sínum góða nótt. Þau kysstu hana og óskuðu henni allrar blessunar eins og þeirra var vandi og henni veittist erfitt að verjast gráti. Þegar hún var komin inn í herbergi sitt varpaði hún sér í hæg- indastól og grét beisklega. Þerna hennar bað hana vera rólega og hvatti hana til að vera hugrakka. Allt var tilbúið. — Innan hálfrar stundar legði hún af stað, til þess að fara frá foreldrum sínum að fullu og öllu. Hið áhyggjulausa ungmeyjarlíf var þá að baki. ... Hún leit út um gluggann, út í húsagarðinn. Það kyngdi niður snjónum og við og við hvein vindurinn og hristi gluggahlerana. Henni fannst allt boða, að illa færi. Brátt var orðið dauðahljótt í húsinu. Allir voru í fasta svefni. Masha tók sjal og vafði um herðar sér, fór í hlýja kápu, tók kistil- inn með dóti sínu í aðra hönd sér, og fór niður bakstigann. Þeman kom á eftir henni með tvo pinkla. Þær lögðu leið sína út í garðinn. Það var sama hríðarveðrið og snjórinn þyrlaðist í andlit þeirra,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.