Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
FRÉTTASKÝRING
The Nordic Genetic Resource Center:
Mikilvægi erfðaauðlinda
NordGen er norræn stofnun
um varðveislu og nýtingu jurta,
dýra og skóglendis og varðveislu
nytjaplantna fyrir landbúnað.
Stofnunin er fjármögnuð af
Norrænu ráðherranefndinni.
Auk rannsókna og kynbóta sér
NordGen um rekstur Alþjóðlegu
fræhvelfingarinnar á Svalbarða.
Nordic Genetic Resource
Center, NordGen, eða Norræna
erfðaauðlinda miðstöðin var
stofnuð 1. janúar 2008 til að
taka yfir og sameina starfsemi
Norræna genabankans, Norræna
húsdýragenabankans og Fræ- og
plönturáðs norrænnar skógræktar.
Aðalskrifstofa NordGen er í
Alnarp í Svíþjóð en stofnunin er
einnig með skrifstofu í Ási í Noregi.
Hvað eru erfðaauðlindir?
Erfðaauðlindir eru skilgreindar
sem lífverur sem bera fjölbreytta
eiginleika í genum sínum og hafa
fætt okkur og klætt, veitt okkur
skjól, orku, byggingarefni og yndi,
auk þess að vera hluti af sögu og
menningararfleifð okkar. NordGen
ber ábyrgð á erfðaauðlindum sem
eru mikilvægar fyrir matvæli og í
landbúnaði. Nýting erfðaauðlinda
getur skipt sköpum þegar kemur að
því að uppfylla grunnþarfir okkar
fyrir næringu, vernd og eldsneyti.
Erfðafjölbreytileiki er forsenda
náttúruvals, aðlögunar, þróunar
og kynbóta en loftslagsbreytingar
í dag gerast hraðar en náttúran
getur aðlagast þeim. Hlutverk
NordGen er að vinna að
varðveislu erfðafjölbreytileika
og nýta hann til að auka sjálfbæra
matvælaframleiðslu og til að ná
fram nokkrum af alþjóðlegum
sjálfbærnimarkmiðum.
Gildi erfðaauðlinda
Á heimasíðu Norrænu ráðherra-
nefndarinnar segir að erfðaauðlindir
plantna séu ein dýrmætasta eign
samfélaga mannkynsins. „Plöntur
sem við notum í dag eru ræktuð
afbrigði, afrakstur árþúsunda
ræktunar, og sniðin að smekk okkar,
þörfum og framleiðsluaðferðum. Í
aldanna rás hafa ótal yrki verið
kynbætt með tilliti til mismunandi
skilyrða til vaxtar; veðurfars,
jarðvegs, dagalengdar, sjúkdóma
eða farsótta og þarfa samfélagsins.
En vegna þess að hagkerfi
heimsins eru samofin og einsleit
og stýring framleiðsluumhverfisins
hefur aukist hættir okkur til að
reiða okkur á æ færri afbrigði af
fjölbreytileikanum. Allt að 75%
erfðafjölbreytni plantna hafa tapast
frá því á tíunda áratug síðustu aldar
vegna þess að bændur um allan
heim hafa hætt ræktun á fjölmörgum
staðbundnum landsstofnum og tekið
upp í staðinn einsleitari tegundir
sem gefa mikið af sér. Einsleitni
erfðavísa er áhættusöm, hnattrænt
og staðbundið. Um 75% matvæla
í heiminum í dag eru framleidd
úr eingöngu tólf plöntutegundum
og fimm dýrategundum.
Loftslagsbreytingar, nýir sjúkdómar
eða aðrar umhverfisbreytingar geta
því haft víðtækar afleiðingar fyrir
fæðuöryggið.“
Ísland fullgildur aðili
Í Landsáætlun erfðanefndar
landbúnaðarins um verndun
erfðaauðlinda í íslenskri náttúru
og landbúnaði 2019 til 2023
segir: „Ísland er fullgildur aðili að
NordGen, sem rekinn er á ábyrgð
Norrænu ráðherranefndarinnar
og tilnefnir atvinnuvega- og
nýsköpunarráðherra einn fulltrúa
í stjórn stofnunarinnar og annan
til vara. Starfsemi NordGen er á
þremur sviðum, þ.e. erfðaauðlindir
nytjaplantna, búfjár og skógar.
Norræni genbankinn fyrir plöntur
er umfangsmesti hluti starfseminnar.
Á vegum NordGen starfa fagráð og
sérfræðingahópar sem fjalla um
erfðaauðlindir innan tegundahópa.
Genbankanum er falið að varðveita
fræ af íslenskum nytjaplöntum og
halda utan um upplýsingar vegna
varðveislu á klónasöfnum eftir því
sem þörf er talin á hverju sinni.“
Norræn og alþjóðleg verkefni
Verkefni NordGen fela meðal
annars í sér að meðhöndla fræbanka
með mismunandi fræsýnum sem
stöðugt þarf að greina, prófa, fjölga
og dreifa til vísindamanna og
plönturæktenda. NordGen sér um
að gera verndaráætlanir fyrir norræn
húsdýrakyn í útrýmingarhættu og
rannsóknir í skógrækt.
NordGen vinnur einnig að
verndun villtra ættingja nytjaplantna,
in situ. Ólíkt nytjaplöntunum lifa
þessar tegundir í náttúrunni án
aðkomu og viðhalds mannanna
og geta innihaldið eiginleika sem
geta komið sér vel við kynbætur í
framtíðinni.
Auk þess að starfa innan
Norðurlandanna tekur NordGen þátt í
fjölmörgum verkefnum sem tengjast
erfðaauðlindum á evrópskum og
alþjóðlegum vettvangi.
Norræni genabankinn
á Svalbarða
Á heimasíðu NordGen segir að
markmið sameiginlegs genabanka
Norðurlandanna sé að varðveita
fræ í langtímageymslu til
matvælaframleiðslu og tryggja
fæðuframboð í framtíðinni.
Alþjóðlega fræhvelfingin á
Svalbarða er stærsta frægeymsla
í heimi og í umsjón NordGen. Í
hvelfingunni er að finna yfir milljón
fræsýni af rúmlega fimm þúsund
mismunandi plöntutegundum víðs
vegar að úr heiminum. Þar af eru
um 33 þúsund fræ af 536 ólíkum
plöntutegundum upprunnum á
Norðurlöndunum.
Þjónusta fræhvelfingarinnar er
endurgjaldslaus og tekur hún við
fræjum til geymslu frá alþjóðlegum
og svæðisbundnum fræsöfnum. Fræ
sem lögð eru inn í fræbankann eru
eign þeirra sem leggja þau inn og er
þeim einum heimilt að taka þau út.
Líkt og gefur að skilja geymir
fræhvelfingin ekki eintök af
plöntuyrkjum sem fjölgað er með
græðlingum, ágræðslu eða skiptingu
eins og ávaxtatré, ber, ýmsar fjölærar
plöntur og kryddjurtir. Undantekning
á þessu er að NordGen varðveitir
kartöfluyrki in vitro, eða sem lifandi
plöntur í tilraunaglösum.
Landgræðslustjóri fyrrverandi
forstjóri NordGen
Árni Bragason, núverandi
landgræðslustjóri, var forstjóri
NordGen á árunum 2010-2016.
Staða NordGen hafði verið veik í
nokkurn tíma, forstjóranum hafði
verið sagt upp í lok árs 2010 og
óeining var um fjármögnun starfsins.
Samstaða náðist 2011 um að
byggja upp og styrkja starfsemina.
Skipti þar miklu dyggur
stuðningur Halldórs Ásgrímssonar,
framkvæmdastjóra Norrænu
ráðherranefndarinnar, og öflugs
formanns stjórnar NordGen, dr.
Áslaugar Helgadóttur.
Að sögn Árna var frægeymslan á
Svalbarða kostuð af norska ríkinu og
er daglegur rekstur hennar greiddur
af því og Global Crop Diversity
Trust, sem er sjóður undir stjórn FAO,
Matvæla- og landbúnaðarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna, en markmið
sjóðsins er að safna peningum til að
varðveita erfðaefni. Jafnframt því
sem sjóðurinn sér um fjármögnun
rannsóknamiðstöðva víða um heim
sem stunda kynbætur.
„Þeir sem velja fræ til að senda
til varðveislu á Svalbarða velja
yfirleitt bestu fræin og fræ sem koma
framtíðinni til góða. Fræjunum er
pakkað í sérstaka poka úr plasti og áli
og voru þróaðir sem geymslupokar
vegna geimferða. Mest af loftinu
er pressað úr pokunum en þeir eru
ekki lofttæmdir að fullu og síðan eru
þeir einangraðir. Þetta er gert til að
koma í veg fyrir að rakastig fræjanna
hækki því ef það gerist eykst virkni
fræjanna og þau geta skemmst.
Besta leiðin til að geyma fræ
til lengri tíma er því að þurrka það
hægt og niður í um það bil 5% raka
þannig að lífvirkni þess verður lítil
og efnaskipti mjög hæg og fræið
nánast komið í dvala og því hægt
að frysta það.
Á Svalbarða er fræið geymt við
mínus 18° á Celsíus sem var kuldastig
sem var valið af alþjóðasamfélaginu
vegna þess að þar er það hitastig sem
er í heimilisfrystikistum og um 0°
á Farenheit. Slíkt frost og lágur
loftraki gerir það að verkum að fræið
á að geta geymst í áratugi.“
Erfðaauðlindir búfjár
Dæmi um erfðafjölbreytileika búfjár
er að á Norðurlöndunum finnast
um 140 mismunandi búfjárkyn,
svokölluð landkyn.
Þessi kyn hafa í gegnum aldirnar
aðlagast umhverfisaðstæðum á
hverju svæði og eru mikilvægur
hluti af menningarsögu þjóða
og líffræðilegri fjölbreytni.
Erfðabreytileikar sem þessir eru
ómetanlegir þar sem búféð hefur
þróað með sér eiginleika sem gerir
það aðlagað þeim aðstæðum sem
það hefur þróast við. Auk þess sem
landkyn hafa meiri erfðabreytileika
en ræktunarkyn.
Hlutverk NordGen er að
vernda þessi búfjárkyn með því
að efla erfðafræðileg, efnahagsleg,
menningarleg, söguleg og félagsleg
gildi sem fylgja margs konar
mismunandi dýrum í norrænum
landbúnaði.
Sum þessara landkynja eru
í útrýmingarhættu og eitt af
verkefnum NordGen er að snúa
þeirri þróun við með því að varðveita
erfðafræðilegan breytileika í lifandi
stofnum og með frystingu erfðaefnis.
Íslensk búfjárrækt býr við þá
sérstöðu að búfé hefur búið hér
við einangrun frá landnámi og
byggir því að mestu á séríslenskum
erfðaauðlindum. Eitt helsta einkenni
íslenskrar búfjárræktar er að ekki
er hægt að tala um mismunandi
búfjárkyn í sama skilningi og
í nágrannalöndunum og telst
íslenska búféð í meginatriðum
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Inngangurinn að alþjóðlegu fræhvelfingunni á Svalbarða sem er í umsjón NordGen. Mynd / NordGen.
Árni Bragason, landgræðslustjóri og fyrrverandi forstjóri NordGen.
Mynd / Einkasafn
Aðalsteinn Sigurgeirsson, fagmála-
stjóri Skógræktarinnar.
Mynd / Einkasafn
NordGen varðveitir kartöfluyrki in vitro, eða sem lifandi plöntur í
tilraunaglösum. Í glösunum eru Bláar íslenskar og Gullauga. Mynd / NordGen