Bændablaðið - 17.11.2022, Qupperneq 20

Bændablaðið - 17.11.2022, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022 FRÉTTASKÝRING The Nordic Genetic Resource Center: Mikilvægi erfðaauðlinda NordGen er norræn stofnun um varðveislu og nýtingu jurta, dýra og skóglendis og varðveislu nytjaplantna fyrir landbúnað. Stofnunin er fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni. Auk rannsókna og kynbóta sér NordGen um rekstur Alþjóðlegu fræhvelfingarinnar á Svalbarða. Nordic Genetic Resource Center, NordGen, eða Norræna erfðaauðlinda miðstöðin var stofnuð 1. janúar 2008 til að taka yfir og sameina starfsemi Norræna genabankans, Norræna húsdýragenabankans og Fræ- og plönturáðs norrænnar skógræktar. Aðalskrifstofa NordGen er í Alnarp í Svíþjóð en stofnunin er einnig með skrifstofu í Ási í Noregi. Hvað eru erfðaauðlindir? Erfðaauðlindir eru skilgreindar sem lífverur sem bera fjölbreytta eiginleika í genum sínum og hafa fætt okkur og klætt, veitt okkur skjól, orku, byggingarefni og yndi, auk þess að vera hluti af sögu og menningararfleifð okkar. NordGen ber ábyrgð á erfðaauðlindum sem eru mikilvægar fyrir matvæli og í landbúnaði. Nýting erfðaauðlinda getur skipt sköpum þegar kemur að því að uppfylla grunnþarfir okkar fyrir næringu, vernd og eldsneyti. Erfðafjölbreytileiki er forsenda náttúruvals, aðlögunar, þróunar og kynbóta en loftslagsbreytingar í dag gerast hraðar en náttúran getur aðlagast þeim. Hlutverk NordGen er að vinna að varðveislu erfðafjölbreytileika og nýta hann til að auka sjálfbæra matvælaframleiðslu og til að ná fram nokkrum af alþjóðlegum sjálfbærnimarkmiðum. Gildi erfðaauðlinda Á heimasíðu Norrænu ráðherra- nefndarinnar segir að erfðaauðlindir plantna séu ein dýrmætasta eign samfélaga mannkynsins. „Plöntur sem við notum í dag eru ræktuð afbrigði, afrakstur árþúsunda ræktunar, og sniðin að smekk okkar, þörfum og framleiðsluaðferðum. Í aldanna rás hafa ótal yrki verið kynbætt með tilliti til mismunandi skilyrða til vaxtar; veðurfars, jarðvegs, dagalengdar, sjúkdóma eða farsótta og þarfa samfélagsins. En vegna þess að hagkerfi heimsins eru samofin og einsleit og stýring framleiðsluumhverfisins hefur aukist hættir okkur til að reiða okkur á æ færri afbrigði af fjölbreytileikanum. Allt að 75% erfðafjölbreytni plantna hafa tapast frá því á tíunda áratug síðustu aldar vegna þess að bændur um allan heim hafa hætt ræktun á fjölmörgum staðbundnum landsstofnum og tekið upp í staðinn einsleitari tegundir sem gefa mikið af sér. Einsleitni erfðavísa er áhættusöm, hnattrænt og staðbundið. Um 75% matvæla í heiminum í dag eru framleidd úr eingöngu tólf plöntutegundum og fimm dýrategundum. Loftslagsbreytingar, nýir sjúkdómar eða aðrar umhverfisbreytingar geta því haft víðtækar afleiðingar fyrir fæðuöryggið.“ Ísland fullgildur aðili Í Landsáætlun erfðanefndar landbúnaðarins um verndun erfðaauðlinda í íslenskri náttúru og landbúnaði 2019 til 2023 segir: „Ísland er fullgildur aðili að NordGen, sem rekinn er á ábyrgð Norrænu ráðherranefndarinnar og tilnefnir atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra einn fulltrúa í stjórn stofnunarinnar og annan til vara. Starfsemi NordGen er á þremur sviðum, þ.e. erfðaauðlindir nytjaplantna, búfjár og skógar. Norræni genbankinn fyrir plöntur er umfangsmesti hluti starfseminnar. Á vegum NordGen starfa fagráð og sérfræðingahópar sem fjalla um erfðaauðlindir innan tegundahópa. Genbankanum er falið að varðveita fræ af íslenskum nytjaplöntum og halda utan um upplýsingar vegna varðveislu á klónasöfnum eftir því sem þörf er talin á hverju sinni.“ Norræn og alþjóðleg verkefni Verkefni NordGen fela meðal annars í sér að meðhöndla fræbanka með mismunandi fræsýnum sem stöðugt þarf að greina, prófa, fjölga og dreifa til vísindamanna og plönturæktenda. NordGen sér um að gera verndaráætlanir fyrir norræn húsdýrakyn í útrýmingarhættu og rannsóknir í skógrækt. NordGen vinnur einnig að verndun villtra ættingja nytjaplantna, in situ. Ólíkt nytjaplöntunum lifa þessar tegundir í náttúrunni án aðkomu og viðhalds mannanna og geta innihaldið eiginleika sem geta komið sér vel við kynbætur í framtíðinni. Auk þess að starfa innan Norðurlandanna tekur NordGen þátt í fjölmörgum verkefnum sem tengjast erfðaauðlindum á evrópskum og alþjóðlegum vettvangi. Norræni genabankinn á Svalbarða Á heimasíðu NordGen segir að markmið sameiginlegs genabanka Norðurlandanna sé að varðveita fræ í langtímageymslu til matvælaframleiðslu og tryggja fæðuframboð í framtíðinni. Alþjóðlega fræhvelfingin á Svalbarða er stærsta frægeymsla í heimi og í umsjón NordGen. Í hvelfingunni er að finna yfir milljón fræsýni af rúmlega fimm þúsund mismunandi plöntutegundum víðs vegar að úr heiminum. Þar af eru um 33 þúsund fræ af 536 ólíkum plöntutegundum upprunnum á Norðurlöndunum. Þjónusta fræhvelfingarinnar er endurgjaldslaus og tekur hún við fræjum til geymslu frá alþjóðlegum og svæðisbundnum fræsöfnum. Fræ sem lögð eru inn í fræbankann eru eign þeirra sem leggja þau inn og er þeim einum heimilt að taka þau út. Líkt og gefur að skilja geymir fræhvelfingin ekki eintök af plöntuyrkjum sem fjölgað er með græðlingum, ágræðslu eða skiptingu eins og ávaxtatré, ber, ýmsar fjölærar plöntur og kryddjurtir. Undantekning á þessu er að NordGen varðveitir kartöfluyrki in vitro, eða sem lifandi plöntur í tilraunaglösum. Landgræðslustjóri fyrrverandi forstjóri NordGen Árni Bragason, núverandi landgræðslustjóri, var forstjóri NordGen á árunum 2010-2016. Staða NordGen hafði verið veik í nokkurn tíma, forstjóranum hafði verið sagt upp í lok árs 2010 og óeining var um fjármögnun starfsins. Samstaða náðist 2011 um að byggja upp og styrkja starfsemina. Skipti þar miklu dyggur stuðningur Halldórs Ásgrímssonar, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar, og öflugs formanns stjórnar NordGen, dr. Áslaugar Helgadóttur. Að sögn Árna var frægeymslan á Svalbarða kostuð af norska ríkinu og er daglegur rekstur hennar greiddur af því og Global Crop Diversity Trust, sem er sjóður undir stjórn FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, en markmið sjóðsins er að safna peningum til að varðveita erfðaefni. Jafnframt því sem sjóðurinn sér um fjármögnun rannsóknamiðstöðva víða um heim sem stunda kynbætur. „Þeir sem velja fræ til að senda til varðveislu á Svalbarða velja yfirleitt bestu fræin og fræ sem koma framtíðinni til góða. Fræjunum er pakkað í sérstaka poka úr plasti og áli og voru þróaðir sem geymslupokar vegna geimferða. Mest af loftinu er pressað úr pokunum en þeir eru ekki lofttæmdir að fullu og síðan eru þeir einangraðir. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að rakastig fræjanna hækki því ef það gerist eykst virkni fræjanna og þau geta skemmst. Besta leiðin til að geyma fræ til lengri tíma er því að þurrka það hægt og niður í um það bil 5% raka þannig að lífvirkni þess verður lítil og efnaskipti mjög hæg og fræið nánast komið í dvala og því hægt að frysta það. Á Svalbarða er fræið geymt við mínus 18° á Celsíus sem var kuldastig sem var valið af alþjóðasamfélaginu vegna þess að þar er það hitastig sem er í heimilisfrystikistum og um 0° á Farenheit. Slíkt frost og lágur loftraki gerir það að verkum að fræið á að geta geymst í áratugi.“ Erfðaauðlindir búfjár Dæmi um erfðafjölbreytileika búfjár er að á Norðurlöndunum finnast um 140 mismunandi búfjárkyn, svokölluð landkyn. Þessi kyn hafa í gegnum aldirnar aðlagast umhverfisaðstæðum á hverju svæði og eru mikilvægur hluti af menningarsögu þjóða og líffræðilegri fjölbreytni. Erfðabreytileikar sem þessir eru ómetanlegir þar sem búféð hefur þróað með sér eiginleika sem gerir það aðlagað þeim aðstæðum sem það hefur þróast við. Auk þess sem landkyn hafa meiri erfðabreytileika en ræktunarkyn. Hlutverk NordGen er að vernda þessi búfjárkyn með því að efla erfðafræðileg, efnahagsleg, menningarleg, söguleg og félagsleg gildi sem fylgja margs konar mismunandi dýrum í norrænum landbúnaði. Sum þessara landkynja eru í útrýmingarhættu og eitt af verkefnum NordGen er að snúa þeirri þróun við með því að varðveita erfðafræðilegan breytileika í lifandi stofnum og með frystingu erfðaefnis. Íslensk búfjárrækt býr við þá sérstöðu að búfé hefur búið hér við einangrun frá landnámi og byggir því að mestu á séríslenskum erfðaauðlindum. Eitt helsta einkenni íslenskrar búfjárræktar er að ekki er hægt að tala um mismunandi búfjárkyn í sama skilningi og í nágrannalöndunum og telst íslenska búféð í meginatriðum Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Inngangurinn að alþjóðlegu fræhvelfingunni á Svalbarða sem er í umsjón NordGen. Mynd / NordGen. Árni Bragason, landgræðslustjóri og fyrrverandi forstjóri NordGen. Mynd / Einkasafn Aðalsteinn Sigurgeirsson, fagmála- stjóri Skógræktarinnar. Mynd / Einkasafn NordGen varðveitir kartöfluyrki in vitro, eða sem lifandi plöntur í tilraunaglösum. Í glösunum eru Bláar íslenskar og Gullauga. Mynd / NordGen
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.