Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Blaðsíða 32
Gömul gáta hljóðar
svo; Hvaðerþaðsem
allir vilja verða, en
enginn vera? Svarið
er: Gamall. Trúlegamyndimargur
vilja geta sagt: Þessi gamla gáta
heyrir fortíðinni til, nú á tímum er
gaman að vera gamall. Vonandi er
það svo, en það fer eftir þeim
aðbúnaði, sem hver og einn býr við
í ellinni.
Mikið er rætt og ritað um vistrými
fyrir aldraða, og í þessari stuttu grein
ætla ég að gera þeim svolítil skil.
Vistrými fyrir aldraða, hjúkrunar-
rými og þj ónusturými voru um 3.23 5
hér á landi hinn 1. janúar 1991.
Þau skiptust þannig, að hjúkrunar-
rými voru 1.948 og þjónusturými
1.287.Þessi rými voru í dvalar-
heimilum, elliheimilum, hjúkr-
unarheimilum, öldrunarstofnunum
og öldrunar- og langlegudeildum
sjúkrahúsa.
Oldrunarlækningadeildir, sem eru
sérhæfðar meðferðardeildir, eru í
Borgarspítalanum og Landspítala-
num og eru taldar hafa um 144 rúm
til afnota. Reyndin hefur þó ekki
orðið sú, þessi rúm hafa ekki öll
verið tekin í notkun og meiri hluti
þeirra notaður sem hjúkrunarrými
til lengri dvalar vegna skorts á lang-
VISTRYMI
FYRIR
ALDRAÐA
INGIBJÖRG R. MAGNÚSDÓTTIR
skrifstofustjóri
legurými fyrir aldraða. Rúm á
þessum deildum eru því talin með
hér í þessari grein, en bent á, að þar
þyrfti að vera meira um skamm-
tímavistun aldraðra.
Ef gerður er samanburður á fjölda
vistrýma 1. janúar 1981 og 1. janúar
1991, kemur í ljós, að á þeim áratug
hefur rúmum fjölgað um 1.253, þar
af hjúkrunarrýmum um 956 og
þjónusturýmum um 297.
1. janúar 1981 var heildarfjöldi
rúma 1.982: Hjúkrunarrými 992 og
þjónusturými 990. 1 .janúar 1991
var heildarfjöldi rúma 3.235:
Hjúkrunarrými 1948 og þjónustu-
rými 1287.
Fjölgun á hjúkrunarrými umfram
þjónusturými er ekki eingöngu
vegna tilkomu nýrra hjúkrunar-
heimila. Þar er ekki síður um að
ræða tilflutning á þjónusturými yfir
í hjúkrunarrými.
A undanförnum árum hafa stjórn-
endur dvalarheimila aldraðra sótt
mjög fast að fá þjónusturýmum
breytt í hjúkrunarrými. Fyrir því
eruýmsarástæður. Þóvegurþyngst,
h vað öldruðum sj úkum hefur fj ölgað
mikið. Meðalaldurvistmannahefur
víða hækkað um 5 til 7 ár, og í
mörgum dvalarheimilanna er
meðalaldur vistmanna frá 81 ári
TAFLA 1
Hérað 70 ára og eldri Heild.fjöld vistrýma Fjöldi hj.rýma Hjúkrr. á 100 íbúa Fjöldi þj. rýma Þjón.r. á 100 íbúa Samt. rými á 100 íbúa
Reykjavíkurhérað 8.797 1.122 712 8,1 410 4,7 12,7
V esturlandshérað 1.024 249 106 10,3 143 14,0 24,3
Vestfjarðahérað 642 115 95 14,8 20 3,1 17,9
Norðurlandsh.vestra 904 199 152 16,8 47 5,2 22,0
Norðurlandsh.eystra 2.056 433 204 10,0 229 11,0 21,1
Austurlandshérað 931 171 109 11,7 62 6,7 18,4
Suðurlandshérað 1.483 482 206 13,9 276 18,6 32,5
Reykjaneshérað 2.898 464 364 12,6 100 3,4 16,0
Allt landið 18.735 3.235 1.948 10,4 1.287 6,9 17,3