Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Blaðsíða 48
IV VI
áfæribandi. Mikiðhefurveriðrætt
um stærð og staðsetningu ráðhússins
og væri það að bera í bakkafullan
lækinn að bæta þar við, en vera má
að nokkurrar pólitískrar einsýni hafi
gætt þar sem oftar í skipulagi
Reykjavíkurborgar. Þessi umræða
hefur oftar en ekki verið neikvæð
og skyggt á og e.t.v. hindrað
nauðsynlega umræðu um aðra hluti
sem nú eru í uppbyggingu
eða fyrirhugaðir og sem
eru hreint ekkert einka-
mál stjórnmálamanna
heldur almennings alls.
Þar má nefna t.a.m. bíla-
stæðahúsið gegnt Þjóð-
leikhúsinu, framtíð
Aðalstrætis og torfbæj ar-
túristasafnsins, skipulag
Austurvallar, staðsetn-
ingu Tónlistarhúss, há-
hýsi á grænum svæðum í
smáíbúðahverfum, bygg-
ingarnar utan í Oskju-
hlíð, hafnartengsl og
framtíð Hótel Borgar og
Alþingis, útþenslu borg-
arinnar um allar sveitir
og síðast en ekki síst
flutning Reykjavíkur-
flugvallar.
Eins og ráðhúsið verður
fyrir áhrifum frá umhverfi
sínu verður að gera ráð fyrir að
ráðhúsið hafi áhrif á umhverfi sitt í
framtíðinni. Bersýnilegt er að
bygging af þessari stærðargráðu
hlýtur að hafa einhver keðju-
verkandi áhrif. Það er því ráð að
hugleiða hvort ekki beri að huga að
hugsanlegum byggingum í nánd
ráðhússins t.d. beggja vegna Vonar-
strætis, við Suðurgötu og Lækjar-
götu og á Alþingislóðinni, því víst
er aðþaðmyndiauðveldaráðhúsinu
að öðlast aukið jafnvægi í slitróttu
umhverfi sínu. Slíkuppbyggingværi
sjálfsagt mjög í anda hins bjartsýna
Júrgens Habermas og hins „ólokna
verkefnis“ hans og Reykjavík til
sóma ef vel tækist til. ■
Arkitektar: Stúdíó Granda
Burðarþol og lagnir: Almenna verk-
fræðistofan
Raflagnir: Rafhönnun
Forhönnun lagna og gæðaeftirlit:
J. RogerPreston & Partners
Sérstakir ráðgjafar: Línuhönnun,
verkfræðistofan Önn, Dr. Tim Smith,
Booth Muirie
Byggingarstjórn og hönnunarumsjón:
MAT
Aðalverktaki: Istak.
46