Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Blaðsíða 80
Richard Meier í Frankfurt. Framandi?
MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER PRAG
Strax um morguninn áttum við fund
með hr. Ivan Plicka aðstoðar-
skipulagsstjóra Pragborgar, enhann
var að finna á skipulagsskrifstofu
borgarinnar sem staðsett var beint
fyrir framan aðalhlið kastalans.
Hann fræddi okkur um sögu
borgarinnar fram til okkar tíma, og
tjáði sig um þau vandamál sem
skipulagsyfirvöld áttu við að etja í
dag.
Enn kom í ljós að gamli borgar-
hlutinn er stórt framtíðarverkefni
skipulagsyfirvalda. Hann þarfnast
lagfæringar,viðhalds og endur-
skoðunar varðandi fjármögnun.
Neðanjarðarlestarkerfi hafði verið
byggt til að minnka almenna
bílaumferð og virðist til fyrirmyndar
hvernig staðið hefur verið að því.
A eftir var farið í göngutúr um
nánasta umhverfi skrifstofunnar þar
sem við fengum að líta endur-
byggingu gamalla húsa.
Því næst var ekið í úthverfin, undir
leiðsögn Plicka, og skoðuð bæði
jákvæð dæmi um lágreista byggð
ásamt miður góðum lausnum á
nýlegum íbúðablokkum í
þyrpingum sem gerðu ráð fyrir allt
að 100.000 íbúum í lítt vistlegu
umhverfi.
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER
KARLOVY VARY-NURNBERG
Að loknum morgunverði var lagt af
stað frá Prag og haldið til Karlovy
Vary (Karlsbad), heimsþekkts
heilsuræktarbæjar í Vestur Bæ-
heimi. Á brautarstöðinni tók leið-
sögumaður á móti hópnum. Hann
fræddi okkur um þessa 60.000
manna borg og sérkenni hennar
sem er aðallega aðstaða til heilsu-
bótar þar sem hveravatn staðarins
er notað til hins ýtrasta í böð og
heilsudrykki. Þarna streyma um 10
milljón manns á ári hverju til að
leita sér og sínum lækninga. Borgin
er hin fegursta, byggð í djúpum
fjalldal þar sem boðið er upp á
fjölbreytta aðstöðu til útivistar,
vetur sem sumar. Við getum mikið
lært af því hvernig menn hafa um
aldir nýtt sér jarðhitann í Karlsbad
til að laða að ferðamenn.
Síðdegis var síðan lagt af stað til
Nurnberg og komið þangað seint
um kvöld.
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER
NURNBERG-FRANKFURT
Kl. 9.00 um morguninn skoðuðum
við ásamt leiðsögumanni miðkjarna
borgarinnar. Athygli okkar beindist
enn á ný að sérstaklega vönduðum
frágangi yfirborðs gatna og fallegri
gatnahönnun. Skoðuð voru góð
dæmi um byggingu nýrra húsa i'nn
í rótgróið umhverfi og varðveislu
gamalla húsa.
Við aðalverslunargötuna fékk ein
af stóru þýsku verslunarkeðjunum,
Karstadt, að kaupa upp lóðir og
reisa nýtt stórmagasín með mjög
ströngum skilyrðum um að útlit og
frágangur féllu að eldri byggðinni.
Var fróðlegt að sjá hve vel hafði
tekist til. Utlit og uppbygging var
eins og sjálfstæð en sambyggð hús
en inni náðist nauðsynlegt sam-
hengi. 1 nágrenni mátti sjá aðra
stórverslun byggða á sjöunda ára-
tugnum, geysistóranklump, glugga-
78