Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Blaðsíða 44
ósnertanlega eiginleika vatnsins og
tengsl þess við mannsvitundina,
léttleika, hreyfingu. ljósbrot og
gagnsæi sem undirölduna í hug-
myndafræði hússins. Suðurhlið
ráðhússins rís upp úr vatninu og
endurspeglast þar við kyrrlát
skilyrði. Við aðrar aðstæður endur-
kastar vatnsborðið gáróttum öldu-
hringjum á yfirborð hússins líkt og
flöktandi eldur. Þetta ásamt skugga-
myndinni frá gegnsæju þakvirkinu
gerir húsið síbrey tilegt og gæðir súlur
þess, veggi, burðarvirkiogþak kvik-
andi lífi. Alvar Aalto sagði að ljós
fyrir safnbyggingu væri sem hljóm'
burður fyrir tónleikahús og lagði sig
fram við að fínstilla byggingar sínar
eins og um Stradivarius eða Stein-
way hljóðfæri væri að ræða til að
hrífandi ljósið nyti sín sem best og
á sem margvíslegastan máta. Segja
má að ljósið í ráðhúsinu leiki á
svipuðum nótum jafnt úti sem inni
en fjölmörg loftljós yfir göngugötu
skapa sérstaka hrynjandi og þakljós
gefa ýtsýn til himins.
Líkt og ljósið og vatnið hverfast
saman í gegnsæi má segja að stað-
bundnar og altækar hugmyndir, og
vitund skarist saman í torræðum
margbreytileika svo og tilvísanir úr
sögu byggingarlistarinnar.
Súlunar fimmtán er halda uppi þak-
brúninni leysa upp framhlið hússins
og minna okkur óbeint á borgar-
fulltrúana fimmtán sem eiga að
halda uppi velferð okkar.
Bandaríski arkitektinn og kennar-
inn Louis Kahn, sem nú er látinn,
minntist eitt sinn á að þegar súlan
skildi sig frá veggnum í örófi tímans
hafi verið um að ræða nokkurs konar
frumspekilegt upphaf vestræns
arkitektúrs og endurspeglast þessi
hugmynd hvað fullkomnast í
Akropolis grískrar menningar sem
varð veigamikil táknmynd fyrir
sjálfstæði einstaklingsins og við-
skilnað mannsins frá náttúrunni í
borgríkinu. Súlurnar er skilja sig frá
norðurveggnum og súlnaröðin að
framan minna okkur e.t.v. enn í
dag á upphaf lýðræðislegra stj órnar-
hátta en undir heldur flóknari
formerkjum vegna óvenjulegrar
linsulögunar, en form þeirra gengur
eins og rauður þráður gegnum
ráðhúsið. Og líkt og erfðavísandi
litningakeðja Ijáþær mikilsverðum
innanstokksmunum, handriðum og
öðrum smáatriðum lögun sína og er
þessi djúpstæða og stærðarlausa
hugsun og mögnun snertL og tengi-
punkta mjög í anda hins látna
ítalska arkitekts Carlo Scarpa.
Óvenjuleg tenging súlnanna við
þakbitana hefur í sér kómíska
tilvitnun í byggingarlist aldamóta-
arkitektsins Violet Le Duc sem var
einn upphafsmanna nútímatækni
í notkun járns og stáls. Bogadregið
42