Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Blaðsíða 75
Vín. Nýlegt íbúðarhverfi.
höfuðborg austurísk'iingverska
keisaradæmisins frá 1804 sem er
aðalblómaskeið borgarinnar.
Eftir fyrri heimsstyrjöldina var
ríkinu skipt, Ungverjaland og
Tékkóslóvakía urðu sjálfstæð rtki
og Vínarborg missti mestallt
uppland sitt. Borgin fór illa í síðari
heimsstyrjöldinni, fyrst í loftárásum
bandamanna 1944 og svo við innrás
Rauða hersins 1945.
Endurreisn borgarinnar hefur tekist
mjög vel og eru mörg fín dæmi eins
og Stefánskirkjan sem er uppruna-
lega reist á árunum 1137-1454.
Kirkjan var gereyðilögð í seinni
heimsstyrjöldinni en síðan endur-
byggð. Ráðhúsið er mikil og falleg
nýgotnesk bygging, reist eftir
teikningu sem fékk fyrstu verðlaun
í arkitektasamkeppni um 1870.
Dómari í þeirri samkeppni var m.a.
danski arkitektinn Theophilus
Elansen sem teiknaði síðan bæði
Þinghúsið og Kauphöllina í Vín.
Skínandi dæmi eru einnig um nýjar
byggingar inni í gamla kjarnanum
og er stórt verslunarhús við
Stefánstorg teiknað af Hans Hollein
þekkt og umdeilt dæmi.
Það er áhugavert að skoða ýmis
smáatriði og skreytingar á bygg-
ingum um alla miðborgina. Handrið
og grindur úr steypujárni eins og
fínasta „fíligran”, glugga- og hurða-
umgjarðir, úrtök á hornum, skyggni
o.þ.h.
I Vín eru ótal minnismerki um
tónsnillingana miklu Beethoven,
Mozart, Haydn, Schubert, Liszt og
Straussana.
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER VÍN
Kl. 9.30 safnaðist hópurinn saman
í anddyri hótelsins. Þar var mættur
fulltrúi skiplagsyfirvalda borgar-
innar, Dipl.Ing. Löffler STBR, sem
átti eftir að leiða okkur og fræða um
borgina þennan dag. Fyrst var lagt
af stað fótgangandi um borgarhluta
sem verið er nánast að endurbyggja
og einnig ferðast með neðanjarðar-
lest borgarinnar, sem var í alla staði
til fyrirmyndar. Mikil áhersla er
greinilega lögð á að gera upp gamlar
byggingar allt frá 12. öld, sem oft og
tíðum er breytt í íbúðir til útleigu,
en 60-70% alls húsnæðis í borginni
er leiguhúsnæði.
Stjórnvöld borgarinnar eru vel
meðvituð um mengun, þá aðallega
af bílaumferð, og hafa komið fyrir
tölvustýrðum mengunarmælum
víðs vegar um borgina til að forða
því að fólk sæki á þau svæði sem
verst eru sett m.t.t. mengunar.
Hádegisverður var snæddur í boði
borgaryfirvalda í móttökusal í
kjallara Ráðhússins, sem var hinn
glæsilegasti. Borðhaldinu stýrði
borgarstjóri skipulags- og menn-
ingarmála dr. Hannes Svoboda, en
með honum voru skipulagsstjóri og
nánustu aðstoðarmenn. Rakin var
saga borgarinnar, ásamt því að
ástandið í dag var skýrt, með tilliti
til breyttra viðhorfa í stjórnmálum,
og hvaða vandamál það hefði í för
með sér fyrir borgaryfirvöld í Vín.
Skipst var á skoðunum og fyrir-
73