Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Blaðsíða 79
Frankfurt. Ný hús í miðborginni rétt við Ráðhústorgið byggð í anda eldra umhverfis, án þess að um eftiröpun sé að ræða.
matarleytið. Nokkrir úr hópnum
fóru niður í miðbæinn og snæddu
þar kvöldverð og skoðuðu sig um.
Farið var með neðanjarðarlest og
tók ferðin örskamman tíma.
Brautarstöðvar og vagnar voru til
fyrirmyndar, bæði öll útfærsla og
umgengni. Prag á langa og merka
sögu sem höfuðborg verslunar, lista
og vísinda í Mið-Evrópu. Hún
stendur við Moldá sem er þverá
Elbu og var á miðöldum höfuðborg
hins mikla konungsríkis í Bæheimi.
A fimmtándu öld var Prag miðstöð
„hússittanna” sem voru fylgismenn
Jóhanns Húss og kenninga hans.
Herjað var á borgina í þrjátíu ára
stríðinu og borgin lá síðan mjög
undir áhrifum Habsborgara sem
reyndu að kaþólska íbúana og
þröngva upp á þá þýskri menningu
og tungu. Á nítjándu öld reis upp
sterk tékknesk þjóðerniskennd og
núverandi Tékkóslóvakía varð
sjálfstætt ríki 1918 með Prag sem
höfuðborg.
Prag er forkunnarfögur borg með
urmul af fögrum byggingum frá
öllum tímum. Að ganga „konung-
legu míluna” frá gömlu markaðs-
torgunum um þröngar steinlagðar
götur girtar fagurskreyttum húsum
um Karlsbrú yfir Moldá, upp í
„kastalann” og um götur og torg
innan kastalaveggjanna er ólýsan-
legt ævintýr og ógleymanlegt. Ekki
einungis eru veggir borgarinnar, þ.e.
hús og hallir, samfellt listaverk
heldur er einnig gólfið, þ.e. götur,
gangstéttir og torg, fögur listasmíð.
SUNNUDAGUR
29. SEPTEMBER PRAG
Þennan morgun var ákveðið að
hópurinn skyldi skoða elsta hluta
þessarar miklu heimsborgar eða
kastala Pragborgar. Þessi kastali er í
raun stjórnaraðsetur innan borgar-
múra í þorpsmynd. Hann á upphaf
sitt að rekja til tíundu aldar en
hefur tekið sífelldum breytingum
allt fram á þessa öld. Innan virkis-
veggjanna er að finna byggingar frá
hinum ýmsu tímabilum sögunnar,
hverja annarri fegurri. I dag hefur
forseti landsins aðsetur sitt þar og
menning og listir blómstra þar bæði
innan dyra sem utan.
Nú lá leið eftir Karlsbrú sem er
ævintýralegt listaverk. Markaðs-
stemmning ríkti hvarvetna og
listamenn léku listirsínar. Varsíðan
haldið inn í gamla borgarhlutann
handan árinnar og sem leið lá inn á
markaðstorgið.
Athyglisvert var hve hreinlegt var
á götum úti, og átti það við hvert
sem farið var um Pragborg.
Kl. 18.30 var svo haldinn fundur
þátttakenda í salarkynnum hótels-
ins, þar sem rædd voru áhrif þau
sem við í hópnum höfðum orðið
fyrir og hvernig mætti heimfæra
þau á skipulagReykjavíkur. Fundar-
gerð var rituð.
77