Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Síða 36

Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Síða 36
á „besta aldri“ í huga. Allt of víða þurfa menn t.d. að ganga upp eða niður tröppur til þess að komast inn í íbúðir á jarðhæð, sem allt eins vel hefði verið hægt að hafa tröppu- lausar. Sama má segja um breiddir á hurðum, rými á baðherbergjum, og mörg fleiri atriði sem hefðu gert margar íbúðir mun auðveldari í notkun fyrir aldrað fólk og hreyfi- hamlað. Svipuðu máli gegnir með umhverfi utan dyra. Að vísu hefur þeim gatnamótum farið fj ölgandi, þar sem tekið hefur verið úr gangstéttarkanti til þess að auðvelda gangandi fólki að komast leiðar sinnar, en til þess að vel sé dugar ekki að láta hér við sitja. Við gerum kröfu um sérstök leiksvæði á lóðum húsa fyrir börn auk grenndarvalla og sparkvalla og annarra sérhæfðra svæða, en hvar er fullorðnu fólki og öldruðum ætlaður staður utan dyra í skipulaginu? Ekki geta allir verið í keppnisíþróttum, á skíðum eða í sundi og víða þurfa aldraðir að leggj a á sig langt ferðalag til þess að geta verið einir með sj álfum sér og náttúr- unni. Einhvern veginn virðast óbyggð svæði í þéttbýlinu víða hafa gleymst fyrir þennan aldurshóp. Þetta fólk getur ekki gengið fjörur, eða um Oskjuhlíð eða Heiðmörk nema að mjög takmörkuðu leyti. Ef vel á að vera þurfa útivistarsvæði fyrir aldraða að vera sérstaklega hönnuð, þannig að þetta fólk geti notað þessi svæði og notið þeirra allan ársins hring, hvernig sem viðrar. Svipuðu máli gegnir með þá þjónustu sem aldraðir þurfa og geta með góðu móti sótt og fært sér í nýt fram eftir öllum aldri ef ónauð- synlegum hindrunum er rutt úr vegi. Auðvitað eiga allir sem geta að sjá um sig sjálfir og vera sjálfstæðir sem allra lengst, og það geta þeir ef þeir sem hanna og móta umhverfi þeirra taka fullt tilllit til þessa fólks. Þótt án efa séu finnanlegar ástæður fyrir því hvernig umhverfi aldraðra og íbúðir eru í dag ættum við hins vegar nú að hafa svigrúm til þess að meta það sem gert hefur verið í þessum efnum á síðustu áratugum, með það fyrir augum að geta búið til umhverfi og byggingar sem fulh nægj a þörfum, óskum og löngunum þessa fólks. Allt of oft hefur byggingarkraninn og sjónarmið þeirra sem veita þjónustuna fengið að ráða ferðinni og gert fólki ókleift að halda fullri reisn fram eftir aldri. Aldraðir, sem farnir eru að finna fyrir því að viðkomandi íbúð er orðin þeim erfið eða hentar þeim ekki, eiga í grundvallaratriðum þriggja kosta völ. I fyrsta lagi er í mörgum tilvikum hægt að endur- skipuleggja viðkomandi íbúð þannig að hún henti þeim betur og gera hana þægilegri með aðstoð ýmiss konar hjálpartækja. I öðru lagi er hugsanlegt að byggja við íbúðina (t.d. garðskála eða aðra aðstöðu) og lagfæra útitröppur og garð og í þriðja lagi geta menn flutt í aðra íbúð eða umhverfi sem hentar þeimbetur. Áðurenmennþurfaað fara á hjúkrunarheimili koma allar þessar lausnir til álita, en algengt er að menn geri sér alls ekki grein fyrir því hvers þeir missa við að flytja úr grónu umhverfi, þar sem þeir hafa búið ílengiogþekkjavel, íframand- legt þjónustuhúsnæði þar sem þeir eiga ekki neinar „rætur“. Oft er með litlum tilkostnaði hægt að breyta íbúðum aldraðra þannig að þeir geti búið þar áfram um árabil, án þess að fara á stofnun, og lifað því lífi með fullri reisn sem hugur þeirra stendur til. AÐLÆRAAF ÖLDRUÐUM Málefni aldraðra eru ekkert einkamál þessa hóps eða þeirra heilbrigðisstétta sem falin er umönnun aldraðra í opinberu þjónustuhúsnæði. Flest okkar eiga það í vændum að verða öldruð og það skiptir okkur öll miklu hvernig við skipuleggjum okkur til þess að þessi hluti f ævi hvers manns geti orðið eins og best verður á kosið. Fullyrða má að einn mesti glæpur sem nú er ffaminn í íslensku þjóðfélagi sé að svipta ungt fólk reynslu, menningu og þekkingu aldraðra Islendinga, sem ýtt er burt úr þj óðfélaginu og einangrað á stofhunum, burt frá atvinnu-, félags- og skemmtanalífi, oft langt fyrir aldur fram. A miðjum aldri gefst þetta fólk oft upp fyrir ágangi reynslulausra unglinga sem aldir eru upp af öðrum unglingum á dagheimilum og í skólakerfinu og lætur sig hafa það að sitj a með hendur í skauti, oft svo ámm skiptir við fulla heilsu, og bíða endalokanna. Þetta fólk býr ennþá yfir hafsjó af lífsreynslu sem margt ungt fólk bráðvantar til þess að geta fótað sig í lífinu, hvort sem það gerir sér grein fyrir því eða ekki. Er ekki kominn tími til að reyna að finna þessum málum betri lausn og bjóða upp á fleiri kosti en nú þekkjast hér á landi? ■ 34
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.