Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 41

Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 41
þessa borg var svo lánsöm að þekkj a ekki þessa verkhræðslu. Hún lifði í þeirri heilbrigðu fullvissu að það gerist ekkert nema maður geri það sjálfur og skildi að lífsgleðin er einmitt fólgin í því að skapa og að leggja alúð við sitt verk. Jafnvel þeir, sem ýtt höfðu samkeppni um Ráðhús Reykjavíkur úr vör með ákvörðun borgarstjórnar, runnu af hólmi þegar veruleikinn birtist og snérust öndverðir gegn byggingu hússins. Það er ekki öllum gefið að axla þá ábyrgð, sem slíkum ákvörð- unum fylgir. Eg ætla ekki að orðlengja um það, sem á eftir fylgdi, það mun verða þjóðarsálfræðingum ærið heimild- arefni í framtíðinni. Það var þó sérstakt í allri þeirri umræðu að fyrst þegarmarkmiðið varaðvanda til verka í byggingariðnaðinum á Islandi brugðust ólíklegustu menn öndverðir við, en létu sér um leið standa á sama um það grófgerða umhverfi, sem risið hefur hér í borginni undanfarna áratugi’ sem afleiðing skammsýnnar peninga- hyggju. Umræðan snerist reyndar aldrei um byggingarlist. Það var einnig athyglisvert að hæstu raddirnar gegn ráðhúsinu hljóm- uðu oft frá þeim hluta okkar þjóðfélags, sem maður skyldi ætla að hefði minnsta fordóma. Máh flutningurinn byggðist furðu lítið á staðreyndum og rökum, en einkenndist af tilfinningahita og æsingi. Sumir virtust eiga þá ósk heitasta að byggingarlistin tæki stefnuna rakleitt aftur til fortíðar. Þetta er algengt fyrirbæri og e.t.v. afleiðing þess að menn átta sig ekki á því að ástæða þess að margar af eldri byggingum okkar eru svo fallegar er einmitt sú að þá vönduðu menn sig sem best þeir gátu. Nú leyfir peningavélin ekki að menn geri sitt besta. Þetta hefur leitt af sér hræðslu gagnvart öllu því, sem nýtt er. Halldór Laxness kallaði þetta „að skreyta sig með nátthúfum lángafanna” og taldi það vitna um hnignun þjóðernis, þegar menn leituðu einkenna sinna mörg hundruð ár aftur í tímann. Það er jafnhættulegt að gerast þræll for- tíðarinnar og að glata virðingu sinni og þekkingu á því sem á undan er gengið. Ég tel mig geta fullyrt fyrir hönd allra sem nálægt byggingu Ráðhúss Reykjavíkur hafa komið að þeir eru þakklátir fyrir að hafa fengið e.t.v. í eina skiptið á ævinni, að sýna fagmennsku í allri sinni fegurð. Vera kann að okkur Islend- ingum takist einhvern tíma að ræða fagurfræði og byggingarlist á upp- lýstan hátt og fordómalaust, en ef það er einhver huggun þá erum við ekki eina þj óðin, sem á í erfiðleikum á því sviði. Þessi forleikur var e.t.v. orsök þess hve þéttur sá kjarni varð, sem að byggingu Ráðhússins stóð. Þar var hver hlekkur jafnmikilvægur. Markús Orn Antonsson tók við stöðu borgarstjóra af Davíð Odds- syni síðasta sumar og fékk Ráð- húsið í sína umsjá. Hann hefur fylgt verkinu ötullega eftir á leiðarenda. Verkefnisstjórnin hlaut erfitt hlutskipti. Þar mættust fulltrúar bjartsýni, varkárni, stjórnkænsku og einstakrar starfsgleði. Þeir þurftu oft á ofurmannlegu jafnaðargeði að halda til að mæta því, sem á dundi. AðalverktakiRáðhússins, Istak, var e.t.v. stærsta lóðið á vogarskálar Ráðhússins. Þeir sýndu frá upphafi í hverju samfélagi má finna hóp manna, sem alltaf eru að bíða eftir einhverju, sem enginn veit hvað er. Menn kjósa að láta sig dreyma um hlutina og rabba fram og aftur um það sem gæti gerst, eins og Steinn / Steinarr orðaði það: „Eg elskaþað, sem aldrei verður til”. víðsýni og hæfni í samstarfi og heyktust ekki á að leysa skrítnustu viðfangsefni. Viðkvæðið var yfir- leitt „Það er allt hægt”. Með ístaki hefur starfað fjöldi undirverktaka, sumir hverjir sannkallaðir lista- menn. Fyrirhöndhönnuða, ráðgjafa og eftirlits þakka ég þessum mönn- um einstakt samstarf. Það er erfitt að geta þeirra einstaklinga, sem mestan veg og vanda hafa haft af byggingunni. Ég treysti því og vona að þeir viti það best sj álfir og veit að þeir eru ekki þær manngerðir, sem kæra sig um lof eða hól. Við arki- tektarnir eigum okkur uppáhalds- menn úr þessum hópi og verðum ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þeim, verkum þeirra og framkvæmdagleði. Oft hefur reynt á þolrifin í þessum hópi og undir slíku álagi reynir fyrst á, hvern mann hver og einn hefur að geyma. Sumir bognuðu og sáu allt svart, en aðrir sigldu í gegn af fádæmaöryggiogmanndómi. E.t.v. hugsuðu þeir eins og Steinn Steinarr þegar hann orti: „Víst er þetta löng og erfið leið /og lífið stutt og margt sem út af ber./En tigið gegnum tál og hvers kyns neyð /skín takmarkið og bíður eftir þér.“ Ekki má heldur gleyma þeim, sem þurft hafa að þola þær áhyggjur, sem menn hafa ekki mátt sýna í vinnunni, og það eru nánustu að- standendur. Þeir hafa allir verið í hlutastarfi við Ráðhús Reykja- víkur, sem þeim er hér sérstaklega þakkað. Þeir sem valist hafa í þann hóp, sem skapaði og reisti ráðhúsið, eru fæstir þeirra gerðar að gagnrýna og vanda um fyrir öðrum. Flestir ástunda fyrst og fremst vönduð vinnubrögð og sýna í verki það sem þeir trúa á. Þeirra trú og þeirra mannkostir eru svo sannarlega ofnir í þetta mann- virki. Sumir þeirra eru hér um bil orðnir hluti af húsinu. Ef sá starfs- andi, sem ríkt hefur við byggingu Ráðhússins, ræður áfram ríkjum við st j órn þessarar borgar á hún sér fagra framtíðarsýn. ■ 39

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.