Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Blaðsíða 56
0 0
HÆGINDASTOLL
LE CORBUSIER
klassik fyrir þá makráðu
Umsjón:
JÓHANNA HARÐARDÓTTIR
„Chaise-Longue” stóllinn tekur ekki meira pláss
en venjulegur hægindastóll, en samt er hann
nægilega stór til að hinn stærsti og þreknasti
karlmaður geti látið fara vel um sig í honum og
jafnvel sofið þar. Hægindastóll Le Corbusiers
var hannaður árið 1928 og hefur haldið
vinsældum sínum í rúma sex áratugi. Notagildi
hans er ótvírætt mikið og útlitið klassískt.
Ef ég yrði einhvern tíma
flutt nauðungarflutn'
ingum og mætti aðeins
taka með mér einn hlut
myndi ég taka hægindastólinn,”
sagði einn hamingjusamur eigandi
„Chaise-Longue”. „Hann getur
komið í stað rúmsins míns og allra
stólanna sem ég á, auk þess er hægt
að nota hann fyrir borðstofuborð og
stól ef mikið liggur við. Þetta
húsgagn er uppáhaldið mitt og ég er
bókstaflega alltaf í stólnum nema
þegar eru gestir, þá þreyta þeir
kapphlaup í hann!”
Höfundur stólsins sem farið er svo
háfleygum orðum um er hönnuð-
urinn og arkitektinn Le Corbusier
sem hét réttu nafni Charles-
Edouard Jeanneret. Le Corbusier
var fæddur í Sviss og á árunum
1907-1910 ferðaðist hann um
Evrópu til að kynna sér arkitektúr.
54
Hann heimsótti flesta mestu
snillinga þess tíma meðal þeirra sem
hann kynnti sér best voru August
Perret sem er talinn upphafsmaður
styrktra steinsteypuhúsa og auk þess
vann hann nokkra mánuði á stofu
Josefs Hoffmans. Le Corbusier
teiknaði bæði hús og húsbúnað og
mörg verka hans hafa orðið
stefnumarkandi fyrir framtíðina,
enda virtist hann vera langt á undan
sinni samtíð. Meðal hans frægustu
verka eru Unité d’Habitation í
Marseille, kirkjan í Ronchamp og
margir stólar sem hafa orðið
klassískir.
KÚREKI MEÐ PÍPU- ÍMYND HINNAR
ALGJÖRU HVÍLDAR
Le Corbusier vakti fljótt athygli
fyrir byltingakenndar hugmyndir
sínar og lífsskoðanir. Hann átti sitt
eigið slagorð sem hann hélt til
dauðadags en það var þetta: „ Hús
er tæki til að búa í.”
Oll hans verk voru hönnuð til að
vera verkfæri í höndum mannsins
svo hann gæti látið fara vel um sig,
og sennilega hefur honum aldrei
tekist eins vel til með áhugamál sitt
og þegar hann hannaði Chaise-
Longue.
Le Corbusier hafði alltaf fyrirmyndir
þegar hann hannaði húsgögn og
þegar hann hannaði stólinn hafði
hann í huga tæki til að öðlast í hina
fullkomnu hvíld.
Le Corbusier sá fyrir sér kúreka
reykjandi pípu sína einhvers staðar
í villta vestrinu, höfuð hans hvílir
fram á bringuna, hann lygnir aftur
augunum og hefur sett fæturna upp.
Þetta var í augum Le Corbusiers hin
fullkomna hvíldarstelling og margir
fleiri hafa komist að sömu
niðurstöðu. Stóllinn var hannaður
J