Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 68

Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 68
eða árs, hvar og hvers vegna? Hvernig skal staðsetja byggð með tilliti til athafna einstaklingsins annars vegar og virkni samfélags- heildarinnarhins vegar, s.s. við vegi, veitur eða iðnað? Hvaða kröfur er réttmætt að setja um sólarljós og skjól á svölum eða í húsagörðum, á leikvöllum eða útivistarsvæðum? I hvaða hlutum íbúðar dvelur fólk lengst og hvernig skal herbergjum raðað með tilliti til sólar, vindáttar eða útsýnis á viðkomandi stað? Manngert landslag eða umhverfi skal vera í samræmi við náttúruöflin á hverjum stað. Jafnframt var bent á áhrif veðurs á mismunandi byggingarefni, liti og lögun bygg- inga. Þegar gerð er veðurfarsúttekt vegna fyrirhugaðrar skipulagningar byggðar er unnið með 10 ára meðaltöl veðurupplýsinga, aukþess sem staðbundið veðurfar (t.d. vindstrengirogsnjóalög) er athugað sérstaklega. HELSTU ÁHRIFAÞÆTTIR VEÐURS Hnattstaða svæðis, fjarlægð þess frá sjó og hæð yfir sjávarmáli auk tegundar landslags ræður mestu um ríkjandi veðurfar. Sólarlj ós hafur mikil áhrif á vellíðan mannsins og val hans á dvalarstað, t.d. íbúðarhúsnæði eða leiksvæði. Sænskar kannanir gera ráð fyrir því að maðurinn þurfi 5 klst. sólan ljós á jafndægrum til að halda geðheilsu sinni. Þess vegna ber að forðast að reisa íbúðarhverfi í hlíð- um er halla mót norðri eða á svæð- um sem eru í stöðugum skugga. Hnattstaðan hefur áhrif á lengd skugga, sem svo er breytileg eftir árstíðum. A sumrin er sólargangur t.d. lengri á 70°n.br en á 60° en sólarhæðin er hins vegar lægri. Taka verður tillit til lágrar sólar- hæðar vor og haust þannig að byggingar varpi sem minnstum skugga á nágrannalóðir eða mannvirki. Miklu skiptir einnig hvort saman fer sólarátt og vindátt. Þegar nýtt land er tekið til skipu- lagningar erum við ekki aðeins að breyta ásýnd yfirborðsins heldur einnig að varpa skugga á nærliggj- andi svæði! Speglun í vatni utanhúss getur myndað ljós og hita innanhúss eins og t.d. í Ráðhúsi Reykjavíkur. Vindar eru flokkaðir í háloftavinda sem berast yfir mjög stór landsvæði og staðbundna vinda. Vindátt og vindstyrkur eru mjög breytileg eftir stöðum auk þess sem sumir vindar bera með sér úrkomu en aðrirekki. V indarnir eru ýmist heitir eða kaldir ogríkja lengi t.d. monsúnvindar, eða breytast eftir dagstímum t.d. haf- oglandgola. Víðaermikillog tiltölulega sterkur vindur sem veldur miklum slitskaða á byggingum auk þess sem vindur í íbúðarhverfi dregur úr möguleikum og/eða löngun fólks til útiveru. Á stöku stað er vindur ásamt snjó til vandræða þ.e. þegar vegir teppast eða hús lokast vegna snjóalaga og skiptir þá miklu máli hvaða vindátt veldur skafrenningi. Forðast ber að reisa íbúðarhverfi á svæðum þar semkaltogkyrrstætt loftliggur t.d. á mýrum eða í köldum dalbotnum. Mikill hitamunur getur verið á litlu svæði (allt að 15°C) vegna þess að kalt loft rennur eins og vatn niður dali og safnast fyrir þar sem landslagið, þéttur gróður eða byggingar hindra gegnumstreymi og mynda þar kuldapolla. Urkoma og tegundir hennar, tíð- leiki og magn eru einnig mjög breytileg. Orkomuáttir geta bæði verið heitar eða kaldar og úrkoman því ýmist fallið sem regn, snjór eða slydda. Orkomuárstíðir eru líka brey tilegar frá einum stað til annars og getur það t.d. haft áhrif á vaxtar- hraða plantna. Skýjahula er mjög breytileg eftir stöðum en mikið skýjafar getur dregið úr möguleikum fólks t il að færa sér í ny t það sólarlj ós sem annars væri í boði. Mikið magn regns eða snjóa getur líka valdið verulegum slitskaða á byggingum og öðrum mannvirkjum. Mikill kostnaður getur oft verið fólginn í snjóruðningi.Þess vegna skal forðast að staðsetja íbúðarhverfi þar sem vindálag er mikið. Ef nauðsynlegt er að byggja á slíkum stað er hægt að draga úr vindáhrifunum með gróðri, skjólgörðumeða byggingum. I skipulagi þarf að gera ráð fyrir svæðum fyrir snjóruðning og mögulegum frárennslisleiðum fyrir leysingavatn á vorin. ÁHRIF ÞÉTTBÝLIS Á VEÐURFAR Helstu mælanleg áhrif þéttbýlis eru: a) Hækkun hitastigs í neðstu loftlögunum um allt að 10° C. 66

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.