Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Síða 53
Ragný Þóra Guðjohnsen og Telma Tórshamar
53 ..
Nokkrir viðmælenda ræddu drauminn um að verða hluti af lífi barnanna sinna. Helgi sagðist vilja
verða „edrú ... í góðri vinnu ... með umgengni við strákinn minn“ og Sara átti vonina um að „vera
með strákinn [s]inn og ... eðlilegt húsnæði, ekki þurfa að vera á götunni“.
Fram kom að baráttunni við edrúmennsku fylgdi „vinna í andlegu hliðinni“ og það væri erfitt
verkefni. Þá kæmi löngunin í flóttann. Siggi lýsti hversu mikilvægt það væri fyrir hann að forðast að
horfast í augu við vanlíðanina, halda sér gangandi svo það gerist ekki:
Ef ég fæ mér einhver örvandi efni þá er ég með ... fullt af plönum og plottum í
gangi ... eins og ég sé ‘kallinn’ ... síðan á endanum þá líður mér bara illa og næ
ekki að halda mér gangandi ... ég er svo búinn á því í líkamanum.
Æskan
Viðmælendur lýstu erfiðum uppvaxtarárum og sögðu vanlíðan, geðraskanir og áföll hafa háð þeim.
Erfið tímabil heima. Aðstæður viðmælenda í æsku voru mismunandi en sameiginlegur þráður
var að hafa glímt við erfið tímabil og aðstæður heima. Margir ólust upp með öðru foreldri en stund-
um var stjúpforeldri inni í myndinni. Erfiðleika mátti oftast rekja til vanrækslu uppeldisaðila og
algengt var að einhver á heimilinu glímdi við vímuefnavanda eða geðrænan vanda sem hafði áhrif
á samskipti innan heimilisins. Þá höfðu viðmælendur upplifað áföll, meðal annars tengd ofbeldi.
Jón segist ekki hafa upplifað öryggi í æsku, „ekki neins staðar“. Hann hafi upplifað óþægilega
tilfinningu inni í sjálfum sér og ótta gagnvart lífinu.
Tanja ólst mest upp hjá móður sinni og stjúpföður og segir uppeldið hafa verið „raskað ... og rosa-
lega strangt”. Stjúpfaðirinn „samþykkti mig aldrei ... æskan mín er mótuð út frá því“. Hann hafi beitt
hana miklu andlegu ofbeldi og náð að sannfæra móðir hennar sem var ótrúlega blind á hann, um að
„ég væri bara geðveik”. Á endanum flutti hún til ömmu sinnar 11 ára. Út á við hafi heimilislífið litið
út sem „fyrirmyndarheimili ... við vorum bara að þykjast vera ... ótrúlega flott fjölskylda“.
Arna bjó einnig hjá móður og stjúpföður sem barn. Hún segir uppeldið hafa verið „alkóhólískt“.
Á hverju kvöldi hafi verið mikið fyllerí og hún hafi „lært að vera hlýðin af því annars varð bara allt
brjálað”. Þessar aðstæður hafi mótað líf hennar og hún væri sannfærð um að líf hennar hefði þróast
á annan veg ef uppeldisaðstæður hefðu verið aðrar.
Margrét sagði að á yngri árum hafi hún átt „fullkomna foreldra, flott heimili, þú veist aldrei
þurft að lifa við neitt óvenjulegt“. Síðan hafi orðið viðsnúningur á heimilinu við 10 ára aldurinn
þegar eldri bróðir hennar fór í fíkniefnaneyslu og var með mikla tölvufíkn. Hann glímdi við „reiði-
vandamál“ og lét það bitna á henni þannig að hún var „stressuð að koma heim úr skólanum“. For-
eldrar hennar hafi hins vegar ekki vitað af neyslu bróðurins. Hún sagði að þrátt fyrir ákveðna reglu
á heimilinu, hafi vantað mörk eða samstöðu foreldranna um þau.
Skúli ólst upp hjá einstæðri móður og var faðirinn aldrei til staðar. Á tímabili bjó kærasti móður
með þeim en hann var veikur á geði, móðir hans í námi og „mjög bissí“. Bróðir hans var jafnframt
mjög veikur og heimilislífið einkenndist af rifrildum. Að auki var „svolítið krefjandi að vita að við
ættum aldrei bót fyrir boruna á okkur”.
Lára ólst upp hjá báðum foreldrum fram að 6 ára aldri. Ástandið á heimilinu var ekki eins og best
var á kosið vegna alkóhólisma föður hennar og foreldrar hennar skildu vegna þessa. Eftir skilnaðinn
hafi mamma hennar „byrjað að djamma mikið“ og drykkjan farið „út í öfgar ... hún vann alla virka
daga en drakk föstudag til sunnudags“. Þetta hafi þýtt að hún var ekki heima heilu sólarhringana.
Gísli sagði aðstæður á heimili sínu hafa verið erfiðar. Faðir hans og bróðir hafi glímt við geðræna
erfiðleika sem hafi haft áhrif á æskuna:
Pabbi er rosalega þunglyndur og tekur ... það svolítið út á okkur á heimilinu ...
og bróðir minn var ... mjög veikur á geði og hann er eldri en ég og ég fékk svona
ekki þá athygli sem ég þurfti sem barn ... og maður var alltaf tiplandi á tánum í
kringum hann [og] í kringum pabba líka.