Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Síða 93
Hermína, Rúnar, Jórunn, Birna María og Sigríður Margrét
93 ..
áhersla lögð á sértækan og reglulegan stuðning við börn utan skólans í framhaldi af greiningu. Ein-
ungis 28% svarendahópsins í heild sögðu þessa áherslu mikla en tæp 53% sögðu hana vera fremur
litla eða mjög litla. Nær fimmtungur svarenda taldi sig ekki vita þetta. Eins og víða annars staðar er
marktækur munur eftir starfsvettvangi svarenda milli þeirra sem töldu áhersluna mikla og þeirra sem
töldu hana litla. Hæst var hlutfallið meðal forsvarsaðila skólaþjónustu, eða 53%, en langlægst meðal
skólastjóra grunnskóla eða 10% (tafla 5).
Tafla 5. Hversu mikla eða litla áherslu leggur skólaþjónustan á að veita nemendum sér-
tækan og reglulegan stuðning utan skólans í framhaldi af greiningu?
Svör – allir þátttakendur Fjöldi Hlutfall % 95% öryggisbil
Mjög mikla 9 4,3 2,2–7,8
Frekar mikla 49 23,7 18,3–29,8
Fremur litla 73 35,3 29,0–41,9
Mjög litla/enga 36 17,4 12,7–23,0
Veit ekki 40 19,3 14,4–25,1
Alls svör 207 100
Svöruðu ekki 61
Þátttakendur alls 268
Svör eftir starfsvettvangi
(p < .001)
Fjöldi
svara
Mjög
mikla
Fremur
mikla
Fremur
litla
Mjög litla/
enga
Veit
ekki
Grunnskólastjórar 74 0,0% 9,5% 48,6% 29,7% 12,2%
Leikskólastjórar 101 6,9% 26,7% 28,7% 8,9% 28,7%
Í forsvari fyrir skólaþj. 32 6,3% 46,9% 25,0% 15,6% 6,3%
Færri úr svarendahópnum í heild töldu að skólaþjónustan leggi mikla áherslu á stuðning við heimili
í framhaldi af greiningu (16%) og á skipulagða fræðslufundi fyrir foreldra í framhaldi af greiningum
(23%). Í báðum spurningum var hlutfall þeirra sem sögðu áherslu á þennan stuðning mikinn lang-
lægst meðal grunnskólastjóra (4% og 13%) en svör leikskólastjóra og forsvarmanna skólaþjónustu
við báðum spurningunum voru á svipuðu róli; á bilinu 25–30% þeirra sögðu mikla áherslu á þetta
tvennt (tafla 6a og tafla 6b í viðauka).
Tafla 6a. Hversu mikla eða litla áherslu leggur skólaþjónustan á að veita stuðning við
heimili nemenda í framhaldi af greiningu?
Svör – allir þátttakendur Fjöldi Hlutfall % 95% öryggisbil
Mjög mikla 7 3,3 1,5–6,5
Frekar mikla 26 12,4 8,5–17,4
Fremur litla 75 35,9 29,6–42,5
Mjög litla/enga 47 22,5 17,2–28,5
Veit ekki 54 25,8 20,3–32,1
Alls svör 209 100
Svöruðu ekki 59
Þátttakendur alls 268
Svör eftir starfsvettvangi
(p < .001)
Fjöldi
svara
Mjög
mikla
Fremur
mikla
Fremur
litla
Mjög litla/
enga
Veit
ekki
Grunnskólastjórar 74 0,0% 4,1% 45,9% 32,4% 17,6%
Leikskólastjórar 102 2,9% 19,6% 23,5% 15,7% 38,2%
Í forsvari fyrir skólaþj. 33 12,1% 9,1% 51,5% 21,2% 6,1%