Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Side 94

Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Side 94
Skólaþjónusta sveitarfélaga við nemendur og foreldra: Stefna, skipulag og inntak 94 .. Áskoranir við að mæta kröfum um menntun fyrir alla Í svörum við opinni spurningu í spurningakönnuninni kom fram að öllum svarendahópunum var ofarlega í huga glíman við að koma til móts við námslega stöðu nemenda og margir leikskólastjórar og forsvarsaðilar skólaskrifstofa tiltóku sérstaklega kennslu barna með annað móðurmál en íslensku. Grunnskólastjórum var tíðrætt um áskoranir tengdar líðan og hegðun nemenda, bæði andlega og fé- lagslega, og börnum með fjöl þættan vanda. Í svörunum við spurningakönnuninni má greina nokkra þversögn milli glímunnar við að koma til móts við námslega stöðu nemenda og viðbragðanna við þeirri áskorun. Í viðtölum voru viðmæl- endur yfirleitt sammála um að almenn kennsluráðgjöf og stuðningur við kennara um að taka upp breytta starfshætti þyrfti að aukast og þá ekki síst í tengslum við hugmyndafræðina um menntun fyrir alla. Aftur á móti töldu sumir fræðslustjóranna að skólastjórnendur og kennarar væru ekki nægilega virkir í að óska eftir almennri kennslufræðilegri ráðgjöf eða stuðningi við skólaþróun og breytta kennsluhætti. Ætla mætti að við henni væri brugðist með áherslu á almenna fræðslu og kennslufræðilega ráðgjöf til starfsfólks skóla, ekki síst kennara. Í spurningakönnuninni kom hins vegar í ljós að 44% svarendahópsins í heild töldu að skólaþjón- ustan legði mikla áherslu á kennslufræðilega ráðgjöf við kennara í daglegu starfi en 54% töldu þessa áherslu litla eða enga. Afgerandi munur var milli svarendahópa eftir starfsvettvangi: Rétt innan við 30% grunnskólastjóra töldu þessa áherslu mikla en 68% töldu hana litla eða enga. Í hópi forsvar- manna skólaþjónustu töldu 59% áhersluna mikla en 40% töldu hana litla eða enga. Eins og víða annars staðar lágu svör leikskólastjóra þarna á milli (tafla 7). Tafla 7. Hversu mikla eða litla áherslu leggur skólaþjónustan á kennslufræðilega ráðgjöf við kennara í daglegu starfi? Svör – allir þátttakendur Fjöldi Hlutfall % 95% öryggisbil Mjög mikla 20 9,7 6,2–14,3 Frekar mikla 69 33,5 27,3–40,1 Fremur litla 86 41,7 35,2–48,6 Mjög litla/enga 24 11,7 7,8–16,6 Veit ekki 7 3,4 1,5–6,6 Alls svör 206 100 Svöruðu ekki 62 Þátttakendur alls 268 Svör eftir starfsvettvangi (p < .001) Fjöldi svara Mjög mikla Fremur mikla Fremur litla Mjög litla/ enga Veit ekki Grunnskólastjórar 72 2,8% 26,4% 48,6% 19,4% 2,8% Leikskólastjórar 102 7,8% 40,2% 39,2% 7,8% 4,9% Í forsvari fyrir skólaþj. 32 31,3% 28,1% 34,4% 6,3% 0,0% Þegar spurt var um áherslu skólaþjónustunnar á almenna ráðgjafar- eða fræðslufundi fyrir kennara taldi rúmlega helmingur svarendahópsins í heild slíka áherslu mikla en 46% töldu hana litla eða enga. Hér leiddi nánari greining einnig í ljós marktækan mun eftir starfsvettvangi: Einn af hverjum þremur í hópi grunnskólastjóra taldi slíka áherslu mikla en 82% þeirra sem eru í forsvari fyrir skóla- þjónustu. Svör leikskólastjóra lágu þarna á milli en þó nær svörum þeirra sem eru í forsvari fyrir skólaskrifstofur en kollega þeirra í grunnskólum (tafla 8). Stöðu sinnar vegna eru bæði skólastjórar og forsvarsaðilar skólaþjónustunnar í lykilstöðu til að bregðast við umræddri áskorun með fræðslu og stuðningi við kennara og starfsfólk.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.