Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Blaðsíða 94
Skólaþjónusta sveitarfélaga við nemendur og foreldra: Stefna, skipulag og inntak
94 ..
Áskoranir við að mæta kröfum um menntun fyrir alla
Í svörum við opinni spurningu í spurningakönnuninni kom fram að öllum svarendahópunum var
ofarlega í huga glíman við að koma til móts við námslega stöðu nemenda og margir leikskólastjórar
og forsvarsaðilar skólaskrifstofa tiltóku sérstaklega kennslu barna með annað móðurmál en íslensku.
Grunnskólastjórum var tíðrætt um áskoranir tengdar líðan og hegðun nemenda, bæði andlega og fé-
lagslega, og börnum með fjöl þættan vanda.
Í svörunum við spurningakönnuninni má greina nokkra þversögn milli glímunnar við að koma
til móts við námslega stöðu nemenda og viðbragðanna við þeirri áskorun. Í viðtölum voru viðmæl-
endur yfirleitt sammála um að almenn kennsluráðgjöf og stuðningur við kennara um að taka upp
breytta starfshætti þyrfti að aukast og þá ekki síst í tengslum við hugmyndafræðina um menntun
fyrir alla. Aftur á móti töldu sumir fræðslustjóranna að skólastjórnendur og kennarar væru ekki
nægilega virkir í að óska eftir almennri kennslufræðilegri ráðgjöf eða stuðningi við skólaþróun og
breytta kennsluhætti. Ætla mætti að við henni væri brugðist með áherslu á almenna fræðslu og
kennslufræðilega ráðgjöf til starfsfólks skóla, ekki síst kennara.
Í spurningakönnuninni kom hins vegar í ljós að 44% svarendahópsins í heild töldu að skólaþjón-
ustan legði mikla áherslu á kennslufræðilega ráðgjöf við kennara í daglegu starfi en 54% töldu þessa
áherslu litla eða enga. Afgerandi munur var milli svarendahópa eftir starfsvettvangi: Rétt innan við
30% grunnskólastjóra töldu þessa áherslu mikla en 68% töldu hana litla eða enga. Í hópi forsvar-
manna skólaþjónustu töldu 59% áhersluna mikla en 40% töldu hana litla eða enga. Eins og víða
annars staðar lágu svör leikskólastjóra þarna á milli (tafla 7).
Tafla 7. Hversu mikla eða litla áherslu leggur skólaþjónustan á kennslufræðilega ráðgjöf
við kennara í daglegu starfi?
Svör – allir þátttakendur Fjöldi Hlutfall % 95% öryggisbil
Mjög mikla 20 9,7 6,2–14,3
Frekar mikla 69 33,5 27,3–40,1
Fremur litla 86 41,7 35,2–48,6
Mjög litla/enga 24 11,7 7,8–16,6
Veit ekki 7 3,4 1,5–6,6
Alls svör 206 100
Svöruðu ekki 62
Þátttakendur alls 268
Svör eftir starfsvettvangi
(p < .001)
Fjöldi
svara
Mjög
mikla
Fremur
mikla
Fremur
litla
Mjög litla/
enga
Veit
ekki
Grunnskólastjórar 72 2,8% 26,4% 48,6% 19,4% 2,8%
Leikskólastjórar 102 7,8% 40,2% 39,2% 7,8% 4,9%
Í forsvari fyrir skólaþj. 32 31,3% 28,1% 34,4% 6,3% 0,0%
Þegar spurt var um áherslu skólaþjónustunnar á almenna ráðgjafar- eða fræðslufundi fyrir kennara
taldi rúmlega helmingur svarendahópsins í heild slíka áherslu mikla en 46% töldu hana litla eða
enga. Hér leiddi nánari greining einnig í ljós marktækan mun eftir starfsvettvangi: Einn af hverjum
þremur í hópi grunnskólastjóra taldi slíka áherslu mikla en 82% þeirra sem eru í forsvari fyrir skóla-
þjónustu. Svör leikskólastjóra lágu þarna á milli en þó nær svörum þeirra sem eru í forsvari fyrir
skólaskrifstofur en kollega þeirra í grunnskólum (tafla 8). Stöðu sinnar vegna eru bæði skólastjórar
og forsvarsaðilar skólaþjónustunnar í lykilstöðu til að bregðast við umræddri áskorun með fræðslu
og stuðningi við kennara og starfsfólk.