Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 6

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 6
6 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 97. árg. 2021 Tímamótarannsóknir í hjúkrun á tímum COVID-19 Á aðalfundi félagsins 26. maí síðastliðinn var samþykkt ný stefna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í hjúkrunar- og heilbrigðismálum til ársins 2030. Aðalbjörg Finnbogadóttir, verkefnastjóri fagsviðs, var fengin til að semja stefnuna, í samstarfi við stjórn og fagdeildir félagsins, þar sem faraldurinn kom í veg fyrir að hægt væri að vinna sameiginlega að henni á hjúkrunarþingi vorið 2020. Við framsetningu stefnunnar var horft til heilbrigðisstefnu heilbrigðisráðuneytisins fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030. Stefna félagsins er lýsing á hlut hjúkrunarfræðinga og hjúkrunar til að ná fram heilbrigðisstefnu stjórnvalda. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna voru einnig höfð til hliðsjónar sem og aðrar stefnur félagsins í einstökum málaflokkum, eins og til að mynda geð-, öldrunar- og heilsugæsluhjúkrun. Ég tel nauðsynlegt fyrir hjúkrunarfræðinga og félagið að hafa slíka stefnu, hún tekur mið af þeirri hugmyndafræði sem starfsemi félagsins byggist á og endurspeglast jafnframt í gildum félagsins sem eru ábyrgð, áræði og árangur. Nýju stefnuna má finna á heimasíðu félagsins og vil ég hvetja alla hjúkrunarfræðinga til að kynna sér hana og hafa að leiðarljósi í málefnum hjúkrunar. Dagana 2. og 3. júní 2021 fór fram árleg líf- og heilbrigðisvísindaráðstefna Háskóli Íslands og fannst mér hún einstaklega áhugaverð, enda var haldin sérstök málstofa um covid-19 og hjúkrun. Þar birtu hjúkrunarfræðingar tímamótaniðurstöður úr rannsóknum sínum tengdum áhrifum og afleiðingum faraldursins, til dæmis mat sjúklinga með covid-19 á öryggiskennd og heilsulæsi. Einnig voru kynntar niðurstöður úr rannsóknum á annars vegar reynslu hjúkrunarfræðinga á að hjúkra covid-19 smituðum sjúklingum á covid-19- göngudeild og hins vegar reynslu hjúkrunarstjórnenda af stofnun göngudeildar fyrir covid-19-smitaða sjúklinga. Þar kom berlega í ljós, enn og aftur, mikilvægi hjúkrunarfræðinga í baráttunni við veiruna og hversu miklu lykilhlutverki hjúkrunarfræðingar hafa gegnt í faraldrinum. Hjúkrunarstjórnendur, til að mynda, höfðu tækifæri til að nýta að fullu þekkingu sína og hæfni við koma á nýju skipulagi og taka ákvarðanir fumlaust. Það sama var að segja um aðra hjúkrunarfræðinga sem notuðu sína heildræna þekkingu, meðal annars til að skipuleggja ýmsar nýjar leiðir við að sinna sjúklingum við krefjandi aðstæður; ýmist á staðnum eða í fjarhjúkrun. Það kemur ekki á óvart að sjá í niðurstöðum einnar rannsóknarinnar, að starfið í faraldrinum hafði víðtæk sálfélagsleg og líkamleg áhrif á hjúkrunarfræðinga, og að mörkin milli vinnu og einkalífs voru óskýr. Að mínu mati eigum við eflaust eftir að sjá frekari eftirköst faraldursins þegar fram líða stundir, enda er honum ekki lokið þótt við sjáum vissulega vel til lands núna. Þessar rannsóknarniðurstöður koma kannski ekki öllum á óvart en hér er þó búið að staðfesta þær með vísindalegum aðferðum og það skiptir gífurlega miklu máli. Hjúkrunarfræðingar, sem annars skipuðu svo veigamikinn sess í viðbrögðum heilbrigðiskerfisins við veirunni, eiga að rannsaka áhrif faraldursins og taka þannig þátt í vísindarannsóknum innan heilbrigðiskerfisins. Það er meðal annars á niðurstöðum slíkra vísindarannsókna sem við byggjum áfram upp hágæðahjúkrunarþjónustu. Ég vil því hvetja hjúkrunarfræðinga til að halda áfram þessu góða rannsóknarstarfi og kynna það, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi, til að þessi einstaki árangur okkar hér á landi, í viðbrögðum við faraldrinum, verði öðrum sýnilegur. Við horfum nú til betri tíma og strax í haust fáum við fyrsta tækifærið til að sameinast á ráðstefnunni Hjúkrun 2021 sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica dagana 16. – 17. september næstkomandi. Ég hlakka mikið til þess að hitta sem flesta hjúkrunarfræðinga þar, enda tími til kominn að við náum að tala saman, hlæja, fræðast og gleðjast, eins og okkur er einum lagið. Við þurfum að halda áfram að standa saman, vera góð hvert við annað og muna að þessi heimsfaraldur hefur tekið, og tekur enn þá, sinn toll af landsmönnum. Við gerum áfram það sem við erum góð í sem er að hjúkra fólki, styðja hvert annað og sýna manneskjunni skilning á annars fordæmalausum tímum. Nú er sumarið komið og langþráð sumarfrí byrjuð. Það verður aldrei of oft sagt að hjúkrunarfræðingum, sem og öðrum, er það lífsnauðsynlegt að taka sér frí frá störfum og skerpa um leið á mörkum vinnu og einkalífs. Ég vona að þið njótið frísins með ykkar nánustu og komið endurnærð aftur til starfa að því loknu. Gleðilegt sumar. Pistill formanns „Það kemur ekki á óvart að sjá í niðurstöðum einnar rannsóknarinnar, að starfið í faraldrinum hafði víðtæk sálfélagsleg og líkamleg áhrif á hjúkrunarfræðinga, og að mörkin milli vinnu og einkalífs voru óskýr.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.